Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 47
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2009 7ævisögur ●
„ Ævisaga Árna prófasts
Þórarinssonar eftir Þórberg
Þórðarson er að mínum dómi
albesta ævisagan sem skrifuð
hefur verið hér á landi, og
þótt víðar væri leitað,“ segir
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
bókmenntafræðingur.
Þórunn segir allt hjálpast að
til að gera söguna góða. „Áhuga-
verður maður, sem hefur lifað
langa og viðburðaríka ævi, segir
frá og óviðjafnanlegur rithöfund-
ur færir í letur. Sögur af vondu
fólki og góðu fólki, munnmæli
um þennan heim og annan, frá-
sagnir af eilífðarverum og þjóð-
þekktum stórmennum jafnt sem
óbreyttum vinnumönnum. Allt
svo ljóslifandi og skemmtilegt,
eða sorglegt og átakanlegt.“
Þórunn segir vart hægt að
ímynda sér vinnuna sem Þórberg-
ur hefur lagt í ævisöguna. „En
samviskusemi hans, nákvæmni
og stílgáfa virðist hafa verið ein-
mitt það sem hinn kjaftagleiði
klerkur þurfti til þess að búa
minningum sínum viðeigandi
form. Sagt hefur verið að séra
Árni hafi verið síðasti fulltrúi
hinnar fornu íslensku frásagna-
listar. Ég veit svo sem ekki ná-
kvæmlega hvað í henni er fólg-
ið en ég veit að Þórbergur sagði í
eftirmælum um séra Árna: „Það
er ein af náðargáfum snillingsins
að trúa því sem hann veit að er
lygi,“ segir Þórunn. - kg
Allt hjálpast að
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
bókmenntafræðingur.
„Ég held voðalega mikið upp á
ævisögu Sigurðar Ingjaldssonar
frá Balaskarði, sem hann skrif-
aði á elliheimili í Gimli í Kanada
á þriðja áratugnum,“ segir Einar
Kárason rithöfundur.
„Sigurður átti stórbrotna ævi. Í
harðindum í kringum 1890 ákváðu
hann og konan hans að selja allt
sem þau áttu og flytja til Kanada.
Í ljós kom að það dugði bara fyrir
farinu handa öðru þeirra, svo Sig-
urður ákvað að fara á undan og
vinna fyrir farinu handa henni.
það tók hann tólf ár.“
Einar segir söguna skrifaða
í yndislegum tón. „Þótt þetta sé
saga um gífurlegar hrakningar
er Sigurður alltaf þakklátur og
glaður og lofar forsjónina og guð
fyrir allt sem lífið hefur fært
honum,“ segir Einar Kárason. - kg
Stórbrotin ævi
Einar Kárason rithöfundur.
„Lang-uppáhalds ævisagan mín
er Hvunndagshetjan eftir Auði
Haralds. Hún er ekki bara há-
femínísk og sjúklega fyndin,
heldur lýsir hún líka þeim gild-
um sem foreldrar og samfélagið
þröngvuðu upp á stúlkur, og pilta,
til að halda þeim niðri og steypa
í sama mót um miðbik síðustu
aldar,“ segir Ólafía Erla Svans-
dóttir bókaútgefandi.
„Auður lýsir vel hvernig sam-
félagið tók á móti einstakling-
um sem féllu ekki inn í hið fyrir-
framgefna form; að vilja í fyrsta
lagi, giftast fyrsta kærastanum
sínum, í öðru lagi eignast barn
innan hjónabands og í þriðja lagi
geta unnið fyrir sér og börnum
sínum án þátttöku þá svokall-
aðrar fyrirvinnu, sem var aðal-
hlutverk karlmanna á þessum
tíma.“
Ólafía segir Auði gera
stólpagrín að þessu öllu saman,
og þá sérstaklega sjálfri sér.
„Hún er alin upp til að verða hin
ágætasta rýjamotta fyrir hvern
þann sem vill þurrka fætur
sína á. Uppreisn fær hún, en þó
ekki fyrr en eftir tilheyrandi
baráttu við fjölskylduna, kerfið,
ofbeldisfullan barnsföður og
fjölskyldu hans. Hún verður
aldrei aftur að meðalmanneskju
sem tekur kreddum samfélagsins
sem heilögum sannleik,“ segir
Ólafía. - kg
Feminísk og fyndin
Ólafía Erla Svansdóttir, bókaútgefandi.
EFTIRMINNILEGAR ÆVISÖGUR
STÓRAUKIÐ ÁHORF
Á FRÉTTIR STÖÐVAR 2 OG ÍSLAND Í DAG!
Tölurnar tala sínu máli. Um leið og við þökkum
áhorfendum frábærar viðtökur, bendum
við auglýsendum á þennan skýra valkost.
* Skv. rafrænum mælingum frá Capacent í 12-80 ára aldurshópi,
meðaláhorf á mínútu fyrstu 8 mánuði ársins.
40%36%
Áhorf á Ísland í dag
hefur aukist um
40% milli ára
Áhorf á fréttir
hefur aukist um
36% milli ára
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...