Fréttablaðið - 19.11.2009, Side 49
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2009 3fyrirtækjagjafi r ● fréttablaðið ●
HÁTÍÐLEGT HANDVERK Þeir
sem reka minni fyrirtæki þurfa kannski
ekki að gefa eins margar jólagjafir og
þeir sem reka stórfyrirtæki og geta
því leyft sér að líta um víðari völl í leit
að jólagjöfum til starfsmanna. Þá er til
dæmis hægt að skoða íslenskt hand-
verk, fallega og persónulega gripi sem
gleðja viðtakandann og verða hluti af
heimilishaldinu. Handverkstæðið að Ás-
garði er rómað fyrir fallega muni sem
eru búnir til á löngum tíma af mikilli
alúð sem skilar sér í vönduðu hand-
verki með heilmikla sál. Jólamark-
aður Ásgarðs verður haldinn að Ás-
garði í Mosfellsbæ laugardaginn 5.
desember en starfsmenn Ásgarðs
verða einnig með handverk til sölu í
Kringlunni milli 26. og
29.nóvember.
Alltaf er gaman að fá gjafakörfu eða kassa,
stútfulla af varningi sem gleður líkama og sál.
Skemmtilegast er að fá eitthvað sem manni hefði
aldrei dottið í hug að kaupa sér sjálfur, fram-
andi kaffi, öðruvísi sultu eða ilmandi krem til að
bera á sig fyrir jólanóttina. Gjafakörfur geta líka
verið heilmikil búbót þegar halda á stór jólaboð
þar sem þarf að bera á borð kræsingar og veislu-
föng fyrir fjölda manns. Þá er gaman að bjóða upp
á sérstak lega gott kaffi, öðruvísi hangikjöt eða veg-
legan ostabakka. Fréttablaðið fékk nokkur fyrir-
tæki til að útbúa gjafir
sem gaman væri að fá
fyrir jólin. - bb
Eitthvað handa öllum
og ömmu þeirra líka
Girnileg sælkeraostakarfa frá Osta-
húsinu: Fyllt ostarúlla með sætri
papriku og jurtakryddi, ostarúlla
með beikoni og papriku,
brie með hvítlauksrönd,
brie með sólþurrkuðum
tómötum og brie með
piparrönd, hvítlauksrjóma-
ostur og piparrjómaostur,
hummus, ólífur, graflax og
graflaxsósa, salami, tveir
kexpakkar og þrjá litlar
sultur. Þetta er einkar vegleg
sælkerakarfa en hægt er að sjá
staðlaðar ostakörfur á heima-
síðunni ostahusid.is. Þeim er svo
hægt að breyta eftir óskum hvers og
eins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Í þessari gjafakörfu frá Kaffitári kennir ýmissa grasa. Þar eru
fjórar tegundir af kaffi, jólate, súkkulaðihúðaðar espresso-
baunir, súkkulaðimolar með karamellufyllingu og
sírópsflaska. Svona karfa kostar 5.900 krónur.
Í gjafakassanum frá Kaffi-
tári má finna tvær tegundir
af kaffi, kramarhús með
súkkulaðimolum, öskju með
súkkulaði, kaffipokaklemmu,
tvö krembrauð og öskju með
smákökum. Þessi kassi kostar
3.400 krónur.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Gjafakassinn frá
L´Occitaine inni-
heldur náttúruvænar
dekurvörur fyrir bæði karla og
konur. Í kassanum er sturtusápa, líkams-
mjólk, handáburður og ilmpoki, allt úr
Verbena-línunni. Svona kassi kostar
5.670 krónur og þá er handáburðurinn
með sem kaupauki.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
● Í ÞAÐ MINNSTA … Ef
ætlunin er að vera á sígildum,
góðum og gegnum íslenskum
nótum er engin jólagjöf íslensk-
ari en kerti og spil. Fallegt kerti veitir öllum fjölskyldum gleði um jólin
og ekki spillir ef hægt er að styrkja góðan málstað í leiðinni og til dæmis
kaupa kertin af Kertagerðinni á Sólheimum. Spilin geta verið af ýmsum
toga og skemmtilegt borðspil er góð jólagjöf. Ýmis spil eru ný á mark-
aðnum fyrir þessi jól, til dæmis Sprengjuspilið. Kerti og spil eru ein af
þessum pottþéttum jólagjöfum sem allir eru glaðir að fá.
ÍSLENSK HÖNNUN OG GOTT MÁLEFNI Flestir skreyta heima
hjá sér fyrir jólin og flestum finnst gaman að fá nýtt jólaskraut. Íslenskir
hönnuðir hafa undanfarin ár gert garðinn frægan á jólaskreytinga-
mörkuðum og hver undra-
fallegi og alíslenski gripurinn
á fætur öðrum lítur dagsins
ljós fyrir hver jól. Kærleiks-
kúlan er til dæmis íslenskt
jólaskraut sem hannað er sér-
staklega fyrir Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra ár hvert.
Það eru þekktir íslenskir lista-
menn sem hanna kúluna
sem fær nýtt útlit á hverju ári. Með því að gefa starfsmönnum og vinum
fyrirtækja Kærleikskúluna í jólagjöf er hægt að slá tvær flugur í einu
höggi, gefa góða og fallega gjöf og styrkja gott málefni í leiðinni.