Fréttablaðið - 19.11.2009, Side 56

Fréttablaðið - 19.11.2009, Side 56
BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 36 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Jólameistaramótið í glímu aldraðra, opnum flokki. Siðlaust en árangurs- ríkt! Hver er næst? Eftir að hafa straujað fötin þín og brotið þau saman ákvað ég að raða þeim eftir lit og árstíð. Þú hugsar fyrir öllu mamma Ó, elskan. Hún er æðisleg. Geymdirðu ekki kvittunina? Ái! Hannes lamdi mig í magann. Ég gerði það ekki. Ég lamdi þig í fótinn. Já, það er rétt. Sérðu, hún er bara að þykjast. Ái! Hannes lamdi mig í fótinn. Þótt það hafi verið hinn fóturinn? Fréttir af þjóðfundinum mikla í Laugardal, sem mér bárust hingað til Spánar, urðu til þess að ég fór að hugleiða hvernig þjóðfélag ég vil. Ég ræddi þetta meira að segja við Manolo kaupmann meðan ég var að versla hjá honum fyrir skemmstu. HANN og nýlenduvöruverslun hans mega muna sinn fífil fegri. Karlinn heyrir afar illa og er ósköp fótalúinn. Þess vegna ganga viðskiptin oftast hægt fyrir sig því panta þarf yfir búðarborðið og bíða uns sá aldni nær í varninginn í hólfum og hillum sem sumar ná margra metra upp í loft. MÉR er minnisstætt þegar ég spurði hann hvaða rauðvín þetta væri í efstu hillunni. Ég ætlaði einungis að forvitnast um vínið en hann fór þá þegar að fikra sig upp óstöndugar tröppurnar. Ég bað hann að hætta þessu brölti enda sá ég fram á að vínleiðangur þessi yrði honum að aldurtila. Hann hélt sínu striki en þegar komið var í efsta þrep varð honum ljóst að enn vantaði upp á svo hann næði í flösku. Ekki veit ég hvort hann hafði skroppið svona saman frá því að hann raðaði í efstu hilluna. MANOLO náði í prik, hélt síðan aftur upp til að ná í vínflösku og hélt mér í sálar- angist á meðan. „Þetta er afskaplega gott vín,“ sagði kaupmaðurinn en náði svo að fikra flösku fram af hillunni með prikinu en greip hana svo í fallinu. Ég var við það að hringja í spænsku neyðarlínuna. „Það gera fimm evrur, góði,“ sagði hann loks er hann kom niður. FRÁ Manolo fór ég í Mercadona- stórmarkaðinn. Þar sá ég nær ótakmarkað úrval af ávöxtum sem voru óaðfinnanlegir í laginu en ekki skítugir og óreglulegir eins og hjá þeim gamla. En ég hef oft keypt ávexti í stórmarkaðnum og þeir reyndust iðulega svo bragðlausir að þeir minntu á svipbrigði starfsfólksins meðan það býður góðan daginn með vélrænum hætti. Eflaust er starfsliðið löngu orðið hálfgeggjað á pípinu í skannanum, tómlætislegu viðmóti viðskiptavinanna, viðbjóðslegum auglýsingastefjum sem dynja úr hátölurunum og gerviefnunum í vörunum sem boðið er upp á. ÉG hef enn ekki ákveðið hvernig þjóðfélag ég vil nema þá að ég kysi heldur að hafa það í anda Manolos gamla en Mercadona. Mitt framlag til þjóðfundar Þú ferð samt í skammarkrókinn! GÓÐAR FRÉTTIR Frídreifing verður áfram á höfuðborgarsvæðinu, suðvestur- horninu, Akranesi, Reykjanesi, Akureyri, í Borgarnesi og Árborg. Nú verður Fréttablaðið líka aðgengilegt í öllum öðrum landshlutum og fæst í lausasölu á kostnaðarverði. Þeir sem hafa áhuga á að fá blaðið til sölu á kostnaðarverði vinsamlegast hafi samband við Pósthúsið í síma 585 8300. Hér færðu Fréttablaðið á kostnaðarverði: Nú er Fréttablaðið aðgengilegt hringinn í kringum landið. Ásbyrgi Verslunin Ásbyrgi Bakkafjörður Mónakó Baula Verslun Blönduós N1 Potturinn og pannan Dalvík N1 – Olís Egilsstaðir N1 Eskifjörður Shell skáli Kría veitingastaður Fellabær Olís Hella Olís Hellissandur Hraðbúð N1 Shell Húsavík N1 – Olís – Shell skáli Hvolsvöllur N1 – Söluskálinn Björk Höfn N1 – Olís Ísafjörður N1 Kópasker Búðin Kópasker Laugarvatn Tjaldmiðstöðin Neskaupstaður Olís Ólafsfjörður Olís Ólafsvík N1 – Olís Patreksfjörður Grillskálinn Patreksfirði N1 Raufarhöfn Verslunin Urð Reyðarfjörður N1 – Olís – N1 Rif Umboð Shell / Tandur Sauðárkrókur N1 – Shell skáli Hlíðarkaup Siglufjörður Olís Skagaströnd Olís Staðarskáli N1 Stykkishólmur Bónus – Olís – Bakarí Stöðvarfjörður Brekkan veitingastaður Víðigerði Verslunin Víðigerði Vík N1 Vopnafjörður N1 Þórshöfn N1 Allt sem þú þarft... Hægt er að fá Fréttablaðið sent frítt í tölvupósti á morgnana eða nálgast það á Visir.is. Patreksfjörður Bakkafjörður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.