Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 64
44 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
> Í SPILARANUM
Me, the Slumbering Napoleon - The Bloody Core of It
Snorri Helgason - I‘m Gonna Put My Name on Your Door
Bloodgroup - Dry Land
Ourlives - We Lost the Race
BB & Blake - BB & Blake
> Plata vikunnar
GusGus - 24/7
★★★
„Aðdáendur GusGus fá
skammtinn sinn og vel það
á fremur alvörugefinni plötu.
Endurkoma Daníels Ágústs er
fagnaðarefni.“
Kjartan Guðmundsson
Franska menningarhátíðin Pourquoi pas? sem haldin var í Reykjavík
vorið 2007 er eftirminnileg m.a. fyrir fína tónleika. Hin mjög svo líf-
lega sveit Dionysos opnaði hátíðina í Hafnarhúsinu og Emilie Simon
spilaði í Háskólabíói með aðstoð íslenskra hljóðfæraleikara. Dionysos
heldur upp á 15 ára starfsafmæli þessa dagana með safnplötu og tón-
leikahaldi og Emilie var að senda frá sér nýja plötu, The Big Machine,
sem er hennar þriðja plata, – fjórða ef platan með tónlistinni úr kvik-
myndinni Ferðalag keisaramörgæsanna er talin með.
Emilie, sem stundum hefur verið kölluð „hin franska Björk“, nýtur
mikilla vinsælda í heimalandinu þar sem hún er marg-
verðlaunuð. Hún ákvað hins vegar að breyta til fyrir
nýju plötuna og prófa eitthvað alveg nýtt. Í stað-
inn fyrir að semja hana á tölvuna í huggulegheit-
um heima í Montpellier þá flutti hún búferlum til
New York þar sem hún kom sér fyrir í Williams-
burg í Brooklyn. Hún setti sér þá reglu að nota
engar tölvur við vinnslu plötunnar og spilaði
lögin sem hún samdi með hljómsveit á tón-
leikum víðs vegar um Bandaríkin áður en
hún tók þau upp. Og útkoman er töluvert ólík
fyrri plötunum. Á The Big Machine er Emilie
undir greinilegum áhrifum frá Kate Bush
eins og glöggt heyrist í fyrsta smáskífulag-
inu Dreamland og hljómurinn er breyttur.
Annað sem er breytt er tungumálið. The Big
Machine er næstum öll á ensku sem tekur
kannski burt hluta af sjarmanum fyrir
suma. En lagasmíðarnar eru mjög góðar
og platan hefur fengið fínar viðtökur.
Nýjar áherslur Emilíu
EMILIE SIMON Hélt ágæta tónleika í Háskóla-
bíói vorið 2007 og var að senda frá sér nýja
plötu, The Big Machine.
Nýjasta Hjálma-platan, IV, er nú komin út á
vínylplötu. Vínylsnobbarar landsins gleðjast
eflaust við þessi tíðindi og eins þau að
Hjálmar stefna á að gefa út hinar
plöturnar þrjár á vínylforminu.
„Það verður reyndar að bíða
eitthvað því við viljum ekki fara
alveg strax á hausinn,“ segir
Guðmundur Kristinn Jónsson, gít-
arleikari og prímus mótor hjá
útgáfufélaginu Borginni. Hann
segir rándýrt að láta framleiða
vínylplötur og að markaðurinn fyrir
þetta útgáfuform sé ekki stór, þótt
hann stækki ört. „Þetta er ekki gert
af gróðahyggju, heldur finnst okkar
bara að það geti verið gaman að
allar plöturnar okkar séu til á
vínyl þegar til langs tíma er
litið.“
Hjálmar á vínyl
EKKI GRÓÐAHYGGJA
Rándýrt en gaman, segir
Guðmundur Kristinn.
Þriðja plata Diktu, Get It
Together, er loksins komin
út. Á plötunni má finna
lögin „Let Go“ og „Just
Getting Started“, sem hafa
verið vinsæl, auk tíu ann-
arra. Platan var hljóðrituð
sumarið 2009 af sveitinni
sjálfri en sænski upptöku-
stjórinn Jens Bogren var
fenginn til að hljóðblanda
verkið.
Haukur Heiðar Hauksson, söngvari
og gítar- og píanóleikari, útskýrir
tilkomu Svíans. „Hann hefur verið
að taka upp metal-bönd aðallega,
til dæmis Opeth og Amon Amarth.
Við hlustum mikið á metal í band-
inu, mismikið þó. Á Bandaríkja-
túr í fyrra vorum við á glænýjum
mínivan með geðveikum græj-
um. Nýja Opeth-platan var mikið
spiluð á fullu blasti og við gátum
ekki annað en tekið eftir því hvað
þetta sándaði rosalega vel. Svaka
kraftur og allt kristaltært. Seinna,
þegar við fórum að taka upp sjálfir
í æfingahúsnæðinu okkar, spurð-
um við okkur: Hvað með að finna
náungann sem mixaði Opeth? Bara
upp á djókið. Það kom svo í ljós að
við þekkjum umboðsmanninn hans
svo þetta gekk upp. Við gerðum
fyrst eitt lag og þegar við fengum
það til baka frá honum vorum við
ótrúlega sáttir og gerðum heila
plötu með þessari aðferð.“
Mesta floppið í Færeyjum
Haukur segir nýju plötuna
rólegri en þá síðustu, Hunting for
Happi ness, sem kom út 2005. „Það
er samt alveg rokk á henni. Mesti
munurinn finnst mér vera að öll
lögin á nýju plötunni eru góð og
mér þykir vænt um þau. Við byrj-
uðum með einhver 30 lög svo erf-
iðast var að velja hvaða 12 lög ættu
að koma út. Það er því ekkert upp-
fyllingarefni á plötunni.“
Strákarnir í Diktu eru búnir
að ströggla í meikinu um hríð.
„Við höfum farið í nokkrar tón-
leikaferðir til bæði Ameríku og
Evrópu og oftast gengið mjög
vel,“ segir Haukur. „Fáum reynd-
ar bestu viðtökurnar í Bandaríkj-
unum. Það kemur alltaf eitthvað út
úr þessu hvort sem það koma 200
eða tuttugu á tónleika. Oftar en
ekki kynnumst við fólki sem nýt-
ist okkur að þekkja seinna meir.
Mesta floppið var líklega í Fær-
eyjum í fyrra. Í kjölfar velgengni
G-fesivalsins fóru allir að halda
festivöl og við spiluðum á einu
slíku, Jóhannsvöku festivalurinn.
Þar var risa útisvið, rigning og
drulla og fáir á svæðinu. Stærsta
nafnið var, held ég, söngvarinn í
The Commitments.“
Doktor rokk
Haukur er læknir og vinnur
meðal annars á slysavarðstofu
Borgar spítalans. „Þetta er óvenju-
leg blanda,“ segir hann. „Pabbi
(Haukur Heiðar Ingólfsson) var
reyndar í rokkinu með Ómari
Ragnars syni á frumárum þess.
Ég er búinn að vera í tvö til þrjú
hundruð prósent vinnu og kær-
astan er mjög hrifin af því, eða
þannig. Ég tók mér því rokkfrí
núna til áramóta til að geta fylgt
plötunni eftir án þess að fara yfir
um.“
Það eru engir glæsidílar við sjón-
deildarhringinn en áfram verður
harkað. En eru menn tilbúnir að
slaufa öllu ef kallið kemur?
„Ég veit nú ekki með að slaufa
öllu, en auðvitað langar alla sem
eru mikið í tónlist að geta lifað á
þessu eingöngu. Þetta er áhuga-
málið og hver vill ekki vinna við
áhugamálið? Það eru allir í band-
inu að grautast í tónlist og starfs-
ferli í einu. Trommarinn að klára
atvinnuflugmanninn og hinir
tveir eru að læra að vera tónlistar-
kennarar.“
Dikta heldur upp á útgáfu plöt-
unnar á Nasa við Austurvöll í
kvöld. Kalli úr Tenderfoot hitar upp
kofann. „Það verður öllu tjaldað
til,“ segir Haukur. „Miðasalan
hefur gengið alveg fáránlega
vel svo maður er bæði glaður og
hrærður.“ drgunni@frettanbladid.is
Rólegri en enn þá rokkaðir
EKKERT UPPFYLLINGAREFNI Á NÝJU PLÖTUNNI Haukur Heiðar Hauksson (lengst til vinstri) og félagar hans í Diktu fagna útgáfu
nýrrar plötu á Nasa í kvöld. MYND/AUÐUR SIGURBERGSDÓTTIR
Nú þegar fyrsti áratugur 21. aldarinnar er að renna
sitt skeið á enda keppast tónlistarspekingar við að
gera áratuginn upp. Enska tónlistartímaritið NME
hefur gefið út sinn lista yfir 100 bestu plöturnar frá
2000 til 2009. Þar eru þrjú efstu sætin skipuð plötun-
um XTRMNTR með Primal Scream, Up the Bracket
með The Libertines og sú besta þykir þeim vera Is
This It með The Strokes. Tvær íslenskar plötur kom-
ast á lista NME, Ágætis byrjun með Sigur Rós nær
97. sætinu og Vespertine með Björk er númer 95.
Á samskonar lista hjá bandaríska vefritinu
Pitchfork eru þrjár íslenskar plötur á topp 200.
Vespertine Bjarkar er númer 92, en Sigur Rós eru
með plötuna ( ) í 135. sæti og Ágætis byrjun kemst
alla leið í áttunda sæti. Pitchfork segja Kid A með
Radiohead bestu plötu áratugarins, en Funeral með
Arcade Fire og Discovery með Daft Punk koma þar
á eftir.
Áratugurinn gerður upp
IS THIS IT? Plata The Strokes er best að mati NME.
MORÐINGJARNIR BB & BLAKE
FATAMARKAÐUR Í LAUGARDALSHÖLLINNI
OPIÐ FRÁ KL. 11 TIL 19
Í L
A
UG
ARDALSHÖ
LLIN
N
I
Íþróttabuxur / herra
2.499 kr.
Húfur
ódýrt
Komdu
og gerðu
kjarakaup
fyrir jólin
Nýttkorta-tímabil
999 kr.
verð frá