Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 80
60 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
N1-deild kvenna
Valur - Stjarnan 24-24 (13-11)
Mörk Vals (skot): Hrafnhildur Skúladóttir 7/4
(11/6), Katrín Andrésdóttir 6 (7), Hildigunnur
Einarsdóttir 3 (3), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
3 (4), Rebekka Skúladóttir 2 (5), Íris Pétursdóttir
2 (5), Ágústa Edda Björnsdóttir 1 (3), Kristín
Guðmundsdóttir 0 (5)
Varin skot: Berglind Hansdóttir 24/2
Hraðaupphlaupsmörk: 1 (Katrín)
Fiskuð víti: 6 (Katrín 3, Íris 2, Rebekka)
Utan vallar: 4 mín.
Mörk Stjörnunnar (skot): Alina Tamasan 9/1
(20/3), Þorgerður Atladóttir 4 (8), Aðalheiður
Hreinsdóttir 3 (5), Elísabet Gunnarsdóttir 3 (6),
Þórhildur Gunnarsdóttir 2 (2), Esther Ragnars-
dóttir 2 (5), Jóna Halldórsdóttir 1 (1), Harpa Sif
Eyjólfsdóttir 0 (2), Kristín Clausen 0 (2)
Varin skot: Florentina Stanciu 11/1, Sólveig
Ásmundsdóttir 2
Hraðaupphlaupsmörk: 3 (Þorgerður, Jóna,
Þórhildur)
Fiskuð víti: 3 (Kristín, Esther, Þórhildur)
Utan vallar: 4 mín.
Fylkir - Fram 19-20 (12-7)
Mörk Fylkis: Sunna Jónsdóttir 6, Elín Helga Jóns-
dóttir 4, Ela Kowal 4, Sunna María Einarsdóttir 2,
Sigríður Hauksdóttir 2, Hildur Harðardóttir 1.
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 8, Guðrún Þóra
Hálfdánardóttir 3, Hildur Þorgeirsdóttir 3, Marthe
Sördal 2, Karen Knútsdóttir 2, Pavla Nevarilova 2.
STAÐAN
Valur 7 6 1 0 216-130 13
Stjarnan 8 6 1 1 248-178 13
Fram 7 6 0 1 205-148 12
Fylkir 7 3 0 4 172-150 6
Haukar 6 3 0 3 161-165 6
FH 6 3 0 3 162-168 6
KA/Þór 6 1 0 5 138-174 2
HK 7 1 0 6 152-227 2
Víkingur 6 0 0 6 101-215 0
Iceland Express d. kvenna
Haukar - Keflavík 67-68 (29-43)
Stig Hauka: Heather Ezell 27, Ragna Margrét
Brynjarsdóttir 18 (14 fráköst), Telma Fjalarsdóttir
12 (10 fráköst), Bryndís Hanna Hreinsdóttir
6, Margrét Rósa Hálfdánardóttir 2, María Lind
Sigurðardóttir 2.
Stig Keflavíkur: Kristi Smith 19, Bryndís Guð-
mundsdóttir 18 (13 fráköst, 7 stoðsendingar),
Marín Rós Karlsdóttir 10, Birna Valgarðsdótt-
ir 7, Rannveig Randversdóttir 6, Telma Lind
Ásgeirsdóttir 4, Svava Ósk Stefánsdóttir 3, Sigrún
Albertsdóttir 1.
Snæfell - Hamar 71-87 (45-41)
Stig Snæfells: Kristen Green 36, Hrafnhildur Sif
Sævarsdóttir 8, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 6, Sara
Sædal Andrésdóttir 5, Helga Hjördís Björgvins-
dóttir 5, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 3, Ellen Alfa Högnadóttir 3, Rósa
Indriðadóttir 2.
Stig Hamars: Koren Schram 26, Kristrún
Sigurjónsdóttir 18, Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir 16, Guðbjörg Sverrisdóttir 14, Fanney
Guðmundsdóttir 7, Hafrún Hálfdánardóttir 4, Íris
Ásgeirsdóttir 2.
Grindavík - Njarðvík 75-60 (34-31)
Stig Grindavíkur: Ingibjörg Jakobsdóttir 14,
Michele DeVault 14, Jovana Lilja Stefánsdóttir 13,
Helga Hallgrímsdóttir 11 (18 fráköst), Petrúnella
Skúladóttir 10, Íris Sverrisdóttir 9, Berglind Anna
Magnúsdóttir 2, Alma Rut Garðarsdóttir 2.
Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 23, Auður
Jónsdóttir 11, Sigurlaug Guðmundsdóttir 8, Anna
María Ævarsdóttir 6, Heiða Valdimarsdóttir 5,
Harpa Hallgrímsdóttir 5, Ólöf Helga Pálsdóttir 2.
STAÐAN
KR 7 7 0 509-340 14
Hamar 7 5 2 514-484 10
Grindavík 7 4 3 454-439 8
Keflavík 7 3 4 468-479 6
Haukar 7 3 4 502-478 6
Snæfell 7 2 5 401-504 4
Valur 7 2 5 405-482 4
Njarðvík 7 2 5 472-519 4
Undankeppni HM 2010
Úkraína - Grikkland 0-1
0-1 Dimitris Salpigidis (31.)
Grikkland vann samanlagt, 1-0.
Frakkland - Írland 1-1
0-1 Robbie Keane (33.), 1-1 William Gallas (103.)
Frakkland vann samanlagt, 2-1, en framlengja
þurfti leikinn.
Bosnía - Portúgal 0-1
0-1 Raul Maireles (55.)
Portúgal vann samanlagt, 2-0.
Slóvenía - Rússland 1-0
1-0 Zlatko Dedic (44.)
Slóvenía kemst áfram á útivallarmarki þar sem
liðin skildu jöfn eftir samanlögð úrslit, 2-2.
Alsír - Egyptaland 1-0
1-0 Antar Yahia (40.)
Þýska úrvalsdeildin
Füchse Berlín - HSV Hamburg 25-37
Rúnar Kárason komst ekki á blað hjá Füchse
Berlin.
Göppingen - TV Grosswallstadt 27-27
Sverre Andreas Jakobsson komst ekki á blað hjá
Grosswallstadt en Einar Hólmgeirsson var ekki
með liðinu vegna meiðsla.
Hannover-Burgdorf - Gummersbach 24-28
Hannes Jón Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Hann-
over-Burgdorf og Róbert Gunnarsson 4 mörk fyrir
Gummersbach.
SG Flensburg - MT Melsungen 34-30
Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyrir
Flensburg.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur eru
komnar á sigurbrautina eftir fjög-
ur töp í röð í upphafi móts og í gær
unnu þær sinn þriðja sigur í röð
þegar liðið vann Íslandsmeistara
Hauka, 68-67, í æsispennandi leik
á Ásvöllum. Keflavíkurliðið lagði
grunninn að mikilvægum sigri í
fyrri hálfleik en það var með 14
stiga forskot í hálfleik, 43-29.
Keflavíkurliðið hélt Heather
Ezell í aðeins sex stigum í fyrri
hálfleik en Ezell var nærri því
búin að koma sínu liði í fram-
lengingu þegar hún skoraði 21
stig í seinni hálfleik. Heather
fékk reyndar gullið tækifæri til
að jafna rúmum fimm sekúndum
fyrir leikslok en klikkaði á seinna
víti sínu. Hún var þá búin að skora
úr átta vítum í röð.
„Heather er stórkostlegur leik-
maður og takmarkið í dag var að
halda henni undir 30 stigum. Það
tókst því hún skoraði bara 27 stig,“
sagði Jón Halldór Eðvaldsson,
þjálfari Keflavíkur, í léttum tón en
Heather var samt einu misheppn-
uðu vítaskoti frá því að tryggja
Haukum framlengingu. „Það var
flott hjá henni að klikka á eina
vítinu sínu í leiknum þegar fimm
sekúndur voru eftir. Ég var mjög
ánægður með það en ég þakkaði
henni þó ekkert sérstaklega fyrir
það í leikslok,“ sagði Jón.
„Fyrri hálfleikurinn fór alveg
með okkur því það er ekki nóg að
spila bara einn hálfleik. Stelpurn-
ar mættu bara ekki tilbúnar í leik-
inn og það gengur ekki að lenda
fjórtán stigum undir á móti alvöru
liðum því þau gefa ekki svona for-
skot frá sér,“ sagði Henning Henn-
ingsson, þjálfari Hauka en hann
segir sitt unga lið enn vera að
læra. „Þær læra vonandi hvern-
ig þær eiga koma til leiks því þær
lærðu allavega hvernig á ekki að
koma til leiks,“ sagði Henning.
Bryndís Guðmundsdóttir átti
mjög góðan leik hjá Keflavík þar
sem hún var með 18 stig, 13 frák-
öst og 7 stoðsendingar. Keflavík-
urliðið hefur unnið þrjá af fjórum
leikjum sínum eftir að hún fékk
langþráða leikheimild. „Við vorum
aðeins værukærar í seinni hálf-
leiknum og við spiluðum ekki vel
í honum. Það var einhver spenna
í okkur en það var mjög sterkt að
klára leikinn og það mun hjálpa
okkur mikið í stigatöflunni,“ sagði
Bryndís og bætti við: „Mér finnst
ég verða betri og betri með tím-
anum. Það er erfitt að tapa fjórum
leikjum í röð og sérstaklega þegar
maður getur ekki verið með og
situr á bekknum,“ sagði Bryndís.
Stigin tvö voru Keflavíkurlið-
inu miklu mikilvægari en hvern-
ig leikurinn spilaðist og þjálfar-
inn var sáttur í leikslok. „Ég var
rosalega ánægður með að ná því
að vinna þennan leik. Stelpurnar
voru skíthræddar í restina um að
þær væru að fara að tapa þessu.
Ég var mjög ánægður með að við
náðum að halda þessu, hleypt-
um þeim ekki fram úr okkur og
kláruðum leikinn,“ sagði Jón Hall-
dór og bætti við:
„Það vissu það allir sem vildu
vita að það var ekkert eðlileg byrj-
un. Það vita það allir í Keflavík að
það er ekki í boði að tapa fyrstu
fjórum leikjunum og vonandi verð-
ur talað jafnmikið um það að við
séum búnar að vinna þrjá í röð,“
sagði Jón að lokum. - óój
Heather Ezell var einu misheppnuðu víti frá því að tryggja Haukum framlengingu:
Keflavíkurkonur komnar á sigurbrautina
BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR Átti góðan
leik með Keflavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI „Fyrir fram ætluðum
við okkur að ná í tvö stig en miðað
við hvernig leikurinn þróaðist má
segja að eitt stig sé sigur fyrir
okkur. Við vorum nánast ekki með
í seinni hálfleik en sýndum karakt-
er í lokin,“ sagði Elísabet Gunnars-
dóttir, fyrirliði Stjörnunnar, eftir
jafnteflið í toppslagnum gegn Val
á Hlíðarenda.
Heimakonur voru yfir allan
seinni hálfleikinn en gestirnir
voru aldrei langt undan og Elísa-
bet jafnaði 24-24 með síðasta
marki leiksins.
Leikurinn hófst á mýmörgum
mistökum á báða bóga en Stjörnu-
liðið var þó á undan að finna ein-
hvern takt á sinn leik. Liðið náði
fjögurra marka forystu snemma
en þá náðu heimastúlkur að laga
varnarleik sinn, sem var ekki upp
á marga fiska í byrjun, og sneru
taflinu sér í vil. Staðan var 13-11
fyrir Val í hálfleik.
Snemma í seinni hálfleiknum
komst Valur í 19-15 en Garðabæj-
arliðið gafst ekki upp og krækti í
ansi mikilvægt stig upp á stöðuna
í deildinni að gera. Bæði lið hafa
þrettán stig en Stjarnan leikið leik
meira. Stefán Arnarson, þjálfari
Vals, var greinilega alls ekki sátt-
ur við úrslitin.
„Við byrjuðum mjög illa og
lékum alls ekki nægilega vel
fyrstu tíu mínúturnar. Síðan
vorum við betra liðið og áttum að
klára þennan leik. En á einhvern
óskiljanlegan hátt töpum við stigi
hérna. Eina skýringin er sú að það
vantaði skynsemi,“ sagði Stefán.
„Við höfum verið lengi í gang
í leikjunum, ég hef ekki fund-
ið ástæðuna fyrir því. En ef við
tökum það jákvæða er liðið enn
taplaust og var að mínu viti betra
liðið í þessum leik.“
Markahæst í liði Stjörnunnar
var Alina Tamasan með níu mörk.
Hrafnhildur Skúladóttir skor-
aði mest fyrir Val, sjö mörk, og
þá Katrín Andrésdóttir frábæran
leik og skoraði sex. Berglind Hans-
dóttir var eins og oft áður í stuði
í marki Valsliðsins og varði 24
skot.
„Mér finnst mjög gott að hafa
náð stigi með Berglindi á móti sér
í þessum ham,“ sagði Atli Hilmars-
son, þjálfari Stjörnunnar. „Þetta er
ekki einn af okkar betri leikjum.
Tvö af betri liðum deildarinnar
voru þarna að mætast og þetta eru
mjög jafnir leikir eins og úrslitin
hafa sýnt.“ - egm
Stjörnustúlkur sáttari við stigið
Valskonur eru enn ósigraðar í N1-deild kvenna en þurftu að sætta sig við eitt stig þegar Stjarnan kom í
heimsókn í gær. Bæði lið hafa þrettán stig en Stjarnan hefur leikið leik meira.
SKORAÐI ÞRJÚ
Hildigunnur Einarsdóttir á fullu í sókn-
inni hjá Val gegn Stjörnunni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Sex síðustu leikirnir fóru
fram í undankeppni HM 2010 í
gærkvöldi og nótt. Úrslit réðust í
undankeppninni í Evrópu þar sem
síðari leikirnir í umspilinu fóru
fram.
Óhætt er að segja að Frakk-
ar hafi sloppið með skrekkinn á
heimavelli sínum í París þar sem
þeir mættu Írum. Frakkar unnu 1-
0 sigur í fyrri leik liðanna en Írar
náðu að svara fyrir sig í gær.
Robbie Keane kom Írum 1-0 yfir
með marki á 32. mínútu eftir lag-
legan undirbúning og fyrirgjöf
Damiens Duff. Keane skoraði með
hnitmiðuðu skoti úr vítateignum.
Írar fengu nokkur færi til við-
bótar í leiknum og hefðu vel getað
tryggt sér farseðilinn til Suður-
Afríku með því að bæta við marki
í venjulegum leiktíma.
Það gerðist hins vegar ekki og
þurfti því að grípa til framleng-
ingar.
Þar voru það Frakkar sem höfðu
lukkudísirnar á sínu bandi í fram-
lengingunni. Á 103. mínútu kom há
sending inn á teig Íranna. Thierry
Henry var við það að missa bolt-
ann aftur fyrir endamörk en náði
að koma knettinum fyrir sig með
hendinni og gefa boltann fyrir
markið. Þar var William Gallas
mættur og skallaði knöttinn í autt
markið.
Frakkar skoruðu þar með kol-
ólöglegt mark og mótmæltu írsku
leikmennirnir því mjög að markið
fengi að standa.
Guus Hiddink og lærisveinar
hans í rússneska landsliðinu máttu
sætta sig við 1-0 tap í Slóveníu í
gær. Samanlögð úrslit voru því 2-2
en Slóvenar fóru áfram á markinu
sem Nejc Pecnik skoraði í blálok
fyrri leik liðanna í á Luzhniki-
leikvanginum í Moskvu.
Rússar misstu tvo leikmenn af
velli með rautt spjald í leiknum í
gær. Fyrst varamanninn Alexand-
er Kerzhakov á 66. mínútu og svo
Yury Zhirkov sem fékk að líta sitt
síðara gula spjald í uppbótartíma
leiksins.
Portúgalar komust áfram eftir
1-0 sigur á Bosníu á útivelli og 2-0
samanlagðan sigur. Raul Meireles,
leikmaður Porto, skoraði eina mark
leiksins í gær.
Þá komust Grikkir einnig á HM
með 1-0 sigri á Úkraínu á útivelli
í gær. Dimitris Salpigidis skoraði
eina mark leiksins eftir stungu-
sendingu Georgios Samaras. Þetta
er í fyrsta sinn sem Grikkir keppa
á HM síðan 1994 en þeir urðu
Evrópumeistarar árið 2004 undir
stjórn Otto Rehhagel sem enn er
landsliðsþjálfari Grikkja.
Þá bókaði Alsír farseðilinn til
Suður-Afríku eftir 1-0 sigur á
Egyptalandi er liðin mættust í
hreinum úrslitaleik á hlutlausum
velli í Súdan.
Síðasti leikurinn var svo síð-
ari umspilsleikur Kosta Ríka og
Úrúgvæ en þeim leik var ekki lokið
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Úrslitakeppnin sjálf hefst svo í
Suður-Afríku hinn 11. júní næsta
sumar en dregið verður í riðla í
Höfðaborg þann 4. desember næst-
komandi. - esá
Síðustu leikirnir í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu fóru fram í gærkvöldi og nótt:
Hönd Henrys bjargaði Frökkum í París
UMDEILT MARK RÉÐI ÚRSLITUM Frakkar
fagna marki William Gallas í gær.
NORDIC PHOTOS/AFP