Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 82
62 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Hér fyrir neðan má
sjá yfirlit yfir hvaða leikmenn
liðanna koma best út í nýja töl-
fræðiþættinum á heimasíðu KKÍ.
Fyrri talan er gengi liðs leik-
manna þegar þeir eru inni á vell-
inum en innan sviga er síðan
gengi liðsins þegar viðkomandi
leikmaður er utan vallar. - óój
HÆSTIR Í PLÚS OG MÍNUS:
Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Snæfelli
+112 (-12)
Jóhann Árni Ólafsson, Njarðvík
+110 (-30)
Hlynur Bæringsson, Snæfelli
+96 (+4)
Magnús Þór Gunnarsson, Njarðvík
+86 (-6)
Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli
+81 (+19)
Sigurður Gunnar Þorsteinss., Keflavík
+78 (+29)
Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli
+75 (+25)
Jovan Zdravevski, Stjörnunni
+75 (-10)
Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík
+72 (+35)
Sveinn Arnar Davíðsson, Snæfelli
+72 (+28)
Justin Shouse, Stjörnunni
+71 (-6)
Magnús Helgason, Stjörnunni
+68 (-3)
Friðrik Stefánsson, Njarðvík
+65 (+15)
Brenton Joe Birmingham, Grindavík
+64 (-15)
Páll Kristinsson, Njarðvík
+61 (+19)
Emil Þór Jóhannsson, Snæfelli
+61 (+39)
Rashon Clark, Keflavík
+59 (+48)
Elentínus Margeirsson, Keflavík
+59 (+48)
*Leik Fjölnis og KR vantar þar sem
tölfræðin var tekin á gamla mátann.
Finnur Atli Magnússon (+51) og
Semaj Inge (+46) ættu því örugglega
að vera báðir inni á þessum lista.
Iceland Express-deild karla:
Hæstu menn
KÖRFUBOLTI Ný aðferð er komin
fram til að meta mikilvægi leik-
manna í körfuboltanum. Snæfell-
ingurinn Pálmi Freyr Sigurgeirs-
son og Njarðvíkingurinn Jóhann
Árni Ólafsson eru hæstir í nýjum
tölfræðiþætti KKÍ eftir fyrstu sex
umferðir Iceland Express-deildar
karla – þeir koma best út í svo-
kölluðum plús og mínus tölfræði-
þætti.
Snæfell hefur unnið þær 180
mínútur sem Pálmi hefur spil-
að með 112 stigum og Njarðvík
hefur unnið þær 182 mínútur sem
Jóhann Árni Ólafsson hefur spilað
með 110 stigum.
Það er flestum ljóst að tölfræði
í körfubolta segir ekki alla sög-
una og margir mikilvægir þættir
innan leiksins skila sér aldrei inn á
tölfræðiskýrsluna eftir leik. Hlutir
eins og góðar ákvarðanir, góð
vörn, góðar hindranir eða óeigin-
girni inni á vellinum stuðla oftast
að betri leik liðsins en koma hvergi
fram í tölfræðilínu leikmanna.
Í nýju tölfræðikerfi KKÍ er þó
komin fram ein leið til þess að
mæla áhrif leikmanna á leik liða
þeirra. Nú er nefnilega hægt að
sjá hvernig liðunum gengur þegar
ákveðinn leikmaður er inni á en
þar má sjá hvort liðið sé í plús
eða mínus þegar viðkomandi
leikmaður er meðal þeirra fimm
sem eru á vellinum hverju sinni.
Pálmi Freyr Sigurgeirsson kom
til Snæfells fyrir tímabilið og
hefur hjálpað sínum mönnum til
þess að vinna 4 af 6 fyrstu leikj-
um tímabilsins. Snæfell er 112 stig
í plús með Pálma inni á vellinum
en í 10 stig í mínus þegar hann er
utan vallar. Pálmi er sjálfur með
8,8 stig, 5,2 fráköst og 4,2 stoð-
sendingar að meðal-
tali í leik og framlag
hans er upp á 12,3
stig í leik. „Pálmi er
okkur gríðarlega
dýrmætur. Hann
er reynslumik-
ill og góður alhliða
leikmaður. Hann er skapandi
auk þess að vera prýðis skytta,“
segir Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari Snæfellsliðsins.
„Hann er mjög fórnfús og
hugsar fyrst og fremst um liðið
áður en hann hugsar um sjálfan
sig. Það er frábært fyrir Pálma
og ýtir undir sjálfstraustið að
fá svona umfjöllun því þetta
eru tölurnar sem ekki allir
lesa. Frekar er verið að horfa
á stigaskorið og einhverjir hafa
spurt af hverju hann gerir ekki
meira. Þeir hinir sömu gera sér
ekki grein fyrir því hvað hann
hefur góð áhrif á spilið og hvað
hann býr til fyrir okkur,“ segir
Ingi, sem býst við enn meiru af
Pálma þegar hann fer að spila
stöðu skotbakvarðar á ný.
Njarðvíkingurinn Jóhann
Árni Ólafsson er ekki langt á
eftir Pálma og áhrif þess að hafa
hann ekki inni á vellinum eru
enn meiri. Njarðvík
er með 110 stig í
plús með Jóhann
á vellinum en er í
mínus 30 stigum
þegar hann situr
á bekknum.
„Jóhann
hefur
spilað
gríðarlega vel á þessu tímabili og
verið mun stöðugri í sínum leik
en ég hef séð til hans áður,” segir
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Njarðvíkur, en Jóhann er með
20,0 stig, 4,7 fráköst og 3,3 stoð-
sendingar að meðaltali í fyrstu
sex leikjunum sem gerir framlag
upp á 19,7 stig í leik.
Sigurður segir stóran hluta af
leik Jóhanns ekki koma fram í töl-
fræðinni. „Þarna koma einmitt inn
margir hlutir sem koma ekki fram
inni á tölfræðinni eins og hvað
hann spilar flotta liðsvörn.
Tölfræðin hans er líka mjög
flott en það er engu að síður fullt
af öðrum þáttum leiksins sem
hann er mjög góður í. Ákvarðana-
taka hans inni á vellinum er sífellt
að verða betri og hann er gríðar-
lega mikilvægur liðinu,“ segir
Sigurður.
„Jóhann er mikill liðsmaður og
gefur sig í að spila samkvæmt því
sem á að gera. Hann er ekkert að
reyna of mikið heldur og heldur sig
innan leikkerfisins. Það er mjög
flott þegar góðir leikmenn eins og
hann eru til í að spila eftir því sem
á að gera,“ segir Sigurður.
Þeir Pálmi og Jóhann skera sig
nokkuð úr á listanum en í þriðja
sæti er liðsfélagi Pálma, Hlynur
Bæringsson. Njarðvíkingurinn
Magnús Þór Gunnarsson er síðan
í fjórða sætinu.
Hér til hliðar má sjá hvaða leik-
menn Iceland Express-deildar
karla eru í mestum plús í fyrstu
sex umferðunum deildarinnar.
Hægt er að nálgast þessar upp-
lýsingar á nýja tölfræðivefnum á
heimasíðu KKÍ. Þar er hægt að sjá
+/- fyrir hvern leikmann í hverjum
leik. ooj@frettabladid.is
Mikill plús að hafa Pálma og Jóhann
KKÍ býður upp á nýja tölfræði en nú má sjá hvernig gengur þegar ákveðinn leikmaður er inni á vellinum.
Fréttablaðið skoðaði hvaða leikmenn koma best út í fyrstu umferðum Iceland Express-deildarinnar.
JÓHANN ÁRNI ÓLAFSSON Kom
til Njarðvíkur á ný eftir að hafa
spilað í Þýskalandi í eitt ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
PÁLMI
FREYR
SIGUR-
GEIRSSON
Kom til
Snæfells
frá KR.
FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ANTON
BESTI
KÖRFUBOLTI
Í HEIMI
ORLANDO MAGIC – BOSTON CELTICS
FÖSTUDAGSKVÖLD KL. 01:00