Vikan


Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 2

Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 2
PÓSTURINN „Hár í andliti“. Til Vikunnar. Þátturinn „Fegrun á sex vikum“. Ég las í þætti þínum um daginn að hægt væri að losna við hár í andliti með rafmagnsaðgerð. Langar mig nú að vita, hvort þú getur gefið mér upplýsingar um hvar hægt muni vera að fá slíkar aðgerðii'. Með fyrirfram þökk. Donna. SVAR: •— Kœri lesandi. Þér spyrjið þáttinn „Fegurð á sex vikum“ um ráð til að eyða hárum úr andliti. Við viljum benda yður á að fara til fegurðarsérfrceðinga sem eru orðnir þó nokkrir hér í höfuðborginni. Til að nefna einhverja er t. d. .Gróa Sigmundsdóttir ein með þeim fyrstu og margir að verða þekktir sem seinna hafa komið. T. d. Ásta Halldórsdóttir, Sólvallagötu 5; Anna Helgadóttir, Grundarstíg 9; Ásta Johnsen, Póst- hússtrœti 13. Bezt vœri kannske að fletta upp í símaskránni og athuga þar „Snyrtistofur" Þá getið þér sjálfar ákveðið hvert þér kjósið að fara. 1 von um góðann árangur kveðjum við yður. Færeyingur skrifar um þjónustu. Það er ein kaffisjoppa í Hafnarstræti sem ég heimsótti um daginn. Ég pantaði mér kaffi sem var mér á borð borið. Rétti ég afgreiðslustúlk- unni fimm hundruð króna seðil, en hún tók þá kaffið til baka í snarheitum og setti á sig ljót- an svip, og kvaðst ekki skipta fyrir svo litla upphæð sem pöntun mín kostaði. Mér var svo nóg boðið, að ég ætlaði að ná í sjoppueigand- ann, en hann var ekki nær staddur. Er hægt að láta bjóða okkur svona ókurteisi eftir langan og erfiðan vinnudag eða hvenær sem er? Við þurfum alla vega að borða og drekka til þess að lifa. Ég ætlaðist ekki til þess að hún færi að gefa mér kaffið, heldur að hún sýndi kurteisi og bæðist kannski afsökunar á því að geta ekki skift, eða leitaði eftir hvort ég ætti ekki smærra . . . Og bréfritarinn finnur að fleiru en þjónustunni hér á landi, hann segir ennfremur: Að lokum langar mig til þess að spyrja: Af hverju tók L.l.TJ. það marga Færeyinga inn í landið, að það er útilokað fyrir okkur að fá góð skiprúm ? Helst koma til greina 10—15 lesta bát- ar, og það einhversstaðar úti á landi, þar sem aldrei fiskast. Verður þetta svona framvegis? Ég vonast svo til, Kæra Vika, að þú reynir að botna í bréfi mínu og bæta mannkynið svolitið. Pálmasen. Vikan birtir góðfúslega svör við þessu bréfi. — leiklistaráhugi. Kæra Vika. Okkur datt í hug að skrifa yður og biðja um svör við nokkrum spurningum. Er takmakaður aldur við leiklistarskóla og þarf sérstaka menntun, t. d. í tungumálum? Er slíkur skóli á kvöldin og er hægt að stunda vinnu með skólanum? Þarf sérstaka fegurð og söngrödd? Hve lengi er hvert námstímabil, og hvað kost- ar það? Með fyrirfram þökk „Þrístirnið.11 SVAR: Pósturinn sneri sér til Ævars Kvaran, en hann hefur um fjölmörg ár annast leiklistar- kennslu hér í Reykjavík. Gaf hann okkur eftir- farandi upplýsingar: 1. Lágmarksaldur er 16 ára, og œskilegt er að fólk hafi gagnfræðapróf, eða liliðstœða mennt- un. 2. I flestum tilfellum mun hægt að stunda vinnu jafnhliða leiklistarnáminu, því skóli hans starfar frá klukkan 17—19. 3. Gott útlit hjálpar alltaf til ef hœfileikar eru fyrir hendi, en þess er alls ekki krafist. Ekki er þess heldur krafist að viðkomandi hafi söng- rödd, þótt það, sem svo margt annað, sé gott hverjum leikara. if. Skólinn starfar frá olctóber til maí, og venju- legast eru nemendur við nám í tvö ár, og reyna þá nokkrir við próf upp í Þjóðleikhússkólwm. — misræmi. Ágæta blað. Getur þú frætt mig á því hvað valda muni því herfilega misræmi í gjöldum leigubifreiða- stjóra. Bíll frá einni stöð, sem fer með mig ná- kvæmlega sömu vegalengd, kostar kannski þetta tveim krónum meira en hjá annari. Dæmi þekki VIKAN MÁLTÖKUBLAÐ Nafn_____________' ____ Heimili________________ Póststöð Mál A Mittissídd ........... Mælt frá kragahnappi niður í mitti í hæð viS mjaðmarhnútu. Mál D Brjóstvídd .................. Mælt undir höndum yfir há- brjóstið. Mál G Utanlærsmál ..... Mælt frá mjaðmarhnútu ofan á gólf. Mál H Skrefmál ............. Mæld skrefhæð ofan í gólf. Laugaveg 105. Ef maðurinn er lotinn eða sérlega beinn, óskast þess getið sérstaklega. Við veljum efnin eftir upplýsingum yðar. Peningana til baka ef yður likar ekki. — Mál E Mittisvídd .............. Mælt umhverfis mltti 8 cm. fyrir ofan mjaðmarhnútu. Mál F Mjaðmarvídd ............ Mælt umhverfis mjaðmir eins og myndin sýnir. Öltíma Mál B Jakkasídd ............. Mælt frá flibbahnappi öll sidd jakkans. Mál C Ermalengd .......... Mælt frá háöxl við ermasaum (yfir þumalfingur mál töku- mannsins eins og mynd sýnir) PRENTSMIBJAN EDDA H.F

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.