Vikan


Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 4

Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 4
þeim oft á skyssur í gagnrýni sinni. Ein ástæða þess, að menn misbeita gagnrýni sinni, er sú að mönnum hættir til þess að reyna að mikla sjálfan sig með gagnrýni sinni. Þetta veldur oft ósanngjamri gagnrýni, sem eykur hróður gagnrýnandans á kostnað þess, sem gagnrýndur er. Maður, sem sér vel galla í fari annarra en ekki sína eig- in, er oft ósanngjam og ýkju- kenndur í gagnrýni sinni. Fólk streitist meet móti gagnrýni, þegar ekki leikur allt í lyndi fyrir því og er móttæki- legast, þegar vel gengur. I fyrsta tilfellinu, hefur það næg- ar áhyggjur, og finnst ekki á þær bætandi með því að fara að hugsa um utanaðkomandi gagn- rýni. En þegar menn hugsa hins vegar til gagnrýninnar, þegar ekkert angrar þá, getur óhlutlæg gagnrýni komið að miklu gagni. Stundum er mönnum auðvit- að hollt, að úthellt sé gagnrýni yfir þá. Venjulega skyldi samt gagnrýnandinn velja sér hent- ugan stað og tíma til gagnrýni sinnar. Til dæmis skyldi verk- stjóri aldrei gagnrýna undír- mann sinn í viðurvist sam- verkamanna hans. Hjónum ber ekki að gagnrýna hvort annað í viðurvist bama sinna. Manni ber ekki að gagnrýna vin, ekki einu sinni einslega, í samkvæmi. Eru konur taugaóstyrk- ari en karlmenn? ER HÆGT AÐ BÆTA MMNID? NEI, en það er hægt að bæta hæfileikann til þess að muna, á sama hátt og ekki er hægt að bæta sjónina, er hægt að bæta sjónskynjunina. Við getum ekki lært að muna betur, heldur getum við lært ýmsar aðferðir til þess að út- nýta minnið. Það er gamalt húsráð að binda snærisspotta um fingurinn, til þess að muna eitthvað, en einmitt þetta er ein af gmndvallarreglum minnis- æfinga. Dr. Leonard Carmichael hef- ur bent á það í sálfræði sinni, að næstum allar minnisæfingar byggist á velþekktum húsráð- um, eins og það með snærið, og margir nota ímynduð snæri til þess að muna eitthvað. Til dæm- is, ef maður ætlar sér að taka með sér bók á skrifstofuna og hugsar urn þetta í einrúmi, skrifar dr. Carmichael, ,,sér hann ef til vill fyrir sér hurðar- húninn á skrifstofu sinni ásamt bókinni. Það era líkur fyrir þvi, að næsta morgun muni hann eftir húninum og þar með bók- inni.“ Það er beinlínis hægt að mæla minnið með því að rannsaka hversu marga hluti eða tölu- stafi menn geta munað eftir að hafa litið á þá einu sinni. Nem- andi, sem er að búa sig undir munnlegt próf, lærir venjulega betur, ef hann les upphátt í stað þess að lesa í hljóði. Yfir- leitt er auðveldara að læra heilt kvæði utanbókar en muna eitt og eitt vísuorð, jafnvel þótt til séu undantekningar. Er þaö list að gagn- rýna aöra? Sanngjörn gagnrýni er öllum holl, eins og vitað er. Mark- mið gagnrýninnar er að sýna einstaklingnum fram á mistök sín, svo að hann geti forðast þau framvegis. Til þess að gagn- rýnin nái markmiði sinni, verð- ur hún að vera hlutlæg, verður að vera gefin á vissum stað og stund af réttum aðila, og hún verður að vera þannig, að sá sem gagnrýndur er verði ekki fyrir neinni minnkim. Flestir era fremur lélegir gagnrýnend- ur, og þar af leiðandi verða EF til vill ekki, en^a þótt flestar konur hafi nfcari til- finningar en menn. Samkvæmt kenningu Freuds, veldur innri hvöt konunnar sterkari þrá eft- ir ástúð, og þetta veldur rík- ara tilfinningalífi. Margir nú- tíma kvensálfræðingar játa hinu ríka tilfinninganæmi kon- unnar en sættast ekki á að það stafi af innri hvöt. Þeir benda á, að höfuðgögnin, sem Freud byggði kenningar sínar um sálarlíf kvenna á, hafi verið fengin að mestu leyti frá karl- mönnum. Dr. Karen Homey trúði því, að hvorki tilfinninganæmi né ástarsamband sé á nokkum hátt háð karlmannleik og kvenleik; að sérkenni bæði kvenna og karla stafi af menningarorsök- um. Það eðli konunnar að sinna mest persónulegum efnum, hef- ur mótazt af aldagömlum venj- um, sem hafa orðið þess vald- andi, að konan er svift allri ábyrgð utan heimilisins. Þar sem konan lifir innan viss til- finningahrings, verður hún að byggja allt á ástinni, sem verð- ur henni langstærsti kostur lífs hennar. Því miður hefur trúin á það, Framhald á bls. 24. 4 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.