Vikan


Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 9

Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 9
SÖGULOK „Ég er komirm til þess að ná i manninn minn!“ Hún hló við og kyssti hann á munninn. „En ég hélt —" byrjaði Reade. ,,Eg skil ekki. . .“ Hún lagði fingui- á varir hans. „Segðu ekki orð, elskan! Eg skil. Og Doyle skilur líka. En þú hafðir rangt fyrir þér. Þetta voru kjánaleg mistök." Doyle settist á stólinn andspænis honum og fór fingnmum gegnum hár sitt. „Og þeir kalla mig sálfræðing!" sagði hann og andvarpaði. „Guð minn góður!" Renee hristi höfuðið. „Mér þykir þetta hræði- lega leitt, elskan! Eg veit ekki hvernig ég á að bæta þér þetta. Að hugsa sér að ég •—• ég hafi ekki trúað því, að þú elskaðir mig.“ H;n starði út í loftið og brosti. „Og ég fékk þig næstum til þess að fremja glæp, vegna þess hve ég var mlkill kjáni!" „Ég hef víst gefið þér tilefni til að efast, Renee," sagði Reade, sem smám saman var að skiljast hvað á gekk. „Eg var bölvaður kjáni! En hann efaðist enn. Doyle neri á sér kjálkann. „En ég var samt mesti kjáninn, Reade! Það var ég, sem stakk upp á öllu þessu við konuna þína. Það var ég, sem endilega þurfti að gera úr þessu sálfræðilega til- raun. Það var ég sem þóttist þekkja mannlegt eðli!“ Renee brosti veiklulega. „Það er fyrir mestu, að þú ert heill á húfi, Reade. Og ég mun aldrei efast um ást þína framar. Ekki eftir það, sem þú gerðir mín vegna i kvöld!“ „En ég —•“ Doyle greip fram í fyrir honum. „Ég ætlaði að sýna þér hvílíka ágætiskonu þú ættir. Skilurðu það? Þetta var sálfræðikenning.“ Doyle glotti. „Nema hvað tilraunin heppnaðist ekki allskost- ar.“ „Þú,“ hélt Renee áfram og brosti til Reade. „Þú, sem lætur alltaf skynsemina ráða.“ Hún kyssti hann á kinnina. „Þú slepptir þér alveg. Þú gekkst berserksgang. Vegna þess að þú hélzt, að þú hefðir misst mig." En Reade var ekki fyllilega ánægður. Hann sagði: „1 dag leit ég þangað inn. Þið Renee gátuð ekki vitað, að ég myndi. . . Hvernig . . .“ Renee leit snöggt á Doyle. Hann hló. „Nú, það! Þvílík tilviljun! Við hittumst þar, til þess að finna út leið til þess að gera þig bálvondan, og þú komst einmitt inn á kaffihúsið. Ég varð að grípa fast í Renee, til þess að hún eyðilegði ekki þetta gullna tækifæri. Við ætluðumst til, að þú heyrðir í okkur. En þú gafst ekki Renee tækifæri til þess að útskýra málið. Og í örvinglan sinni gat hún ekki sagt þér sannleikann." „Ég hringdi i Doyle, þegar þú fórst að heim- an,“ sagði Renee lágt. „Ég var hrædd um, að þú myndir gera eitthvað af þér, og siðan fór ég sjálf á eftir þér hingað.“ „Svo að ég hlóð teppum í rúmið og beið eftir þér,“ útskýrði Doyle. Reade yppti öxlum og bi-osti kuldalega. Hann sneri sér að Renee. „Ég skaut ekki Doyle, vegna þess að ég hafði ekki kjark í mér til þess að taka.í gikkinn." Do'yle hristi höfuðið. „Það hefðir þú einmitt átt að gera, Reade. Ég sé, að ég er langt frá því að vera góður sálfræðingur." Reade tók upp byssuna, sem lá á gólfinu, greip fast um hana og stakk henni i vasann. Hann tók í handlegg Renee og leiddi hana að dyrun- um. Hann átti erfitt með að bjóða Doyle góða nótt, án þess að koma upp um það hatur, sem hann enn bar til hans. SÖGULOK Reade Buckley enskukennari, hefur veðjað við kunningja sinn, sálfræðinginn Doyle Craft- on, að ekki sé hægt að fá sig til þess að myrða. Buckley þykist nú sjá, að Crafton sé að gera sér dælt við konu hans, Renee, og veðmálið hafi einmitt verið til þess að breiða yfir þetta samband þeirra tveggja. En Craft- on, sem hafðl spáð því, að hann sjálfur yrði fórnarlamb Buckley, skjátlast, Buckley hefur ákveðið, að fórnarlamb hans skuli vera Renee . , . Nýtt 10 mínútna permanent „STYLE“ frá elsta og stærsta framleiðanda á hársnyrtivörum RICHARD HIJDISIIJT EGGJASHAMPOO fyrir þurrt og feitt hár, fæst í pökkum og flöskum. CREIVIE RIISISE í hverja hárskolun. E M D CIJ R L (permanent) notað á einstaka lokka milli ,,permanenta“ DAINIDRUFF TREATIVIEMT losar yður við flösu. Fæst í öllum betri snyrtivöruverzlunum og apótekum HEILDVERZLUN PÉTURS PÉTURSSONAR HAFNARSTRÆTI 4. — SÍMAR: 19062 og 11219. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.