Vikan


Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 21

Vikan - 19.03.1959, Blaðsíða 21
FORSAGA: Gilles Mauvoisin hlýtur óvænt allar eigur látins frænda sins aö erfðum. Hann sezt að i húsi frænda sins. Viss skilyrðl fylgja arfinum og ýmis vandahál virðast steðja að. 1 húsinu býr einnig hin ótrúa ekkja gamla mannsins, Colette, sem lengi hefur haft náið samband við lækninn Sauvaget. Hann er teklnn fastur, grunaður um morð & konu slnni. óvæntir atburðir koma í ljós: Þau skötuhjúln liggja undir þeim grun, að hafa myrt Mauvoisln gamia. Gilles gengur i hjónaband með Alice Lepart. Menn Gilles segja upp starfi og hann veit ekki, hvaðan & sig stendur veðrlð. var gamla konan vön að segja, þegar Mauvoisin nálgaðist, þarna kemur björninn. Hann var alltaf kallaður þessu nafni I kaffihúsinu. Þegar frændi yðar kom inn, þrýsti hún á hnapp, sem hringdi bjöllu uppi á næstu hæð. Þetta var merki um að laga te handa gamla manninum og færa honum það.“ Rinquet hafði staðnæmzt við bryggjuna, þar sem eyjabátarnir voru vanir að leggja að. Einn þeirra átti að leggja af stað eftir nokkrar minút- ur. Fáeinir hásetar voru að reyna að koma sauð- þrárri kú upp Iandgöngustigann og áhorfendur skemmtu sér hið bezta. „Einstaka sinnum var Bob, frændi yðar, á kaffihúsinu. Þá var hann vanur að fiyta sér út, þegar Mauvoisin kom inn, því að Mauvosin gamli þoldi ekki að sjá hann. Hann talaði alltaf um hann sem bölvaðan ónytjung, og gamla konan þorði aldrei að svara honum. ,Hvað er bölvaður ónytjungurinn að gera þessa dagana? var hann vanur að spyi’ja. Hann var vanur að reika um kaffistofuna, með hendur i vösum og hattinn á höfðinu. Stund- um tók hann upp sardínudós og spurði um verð- ið á henni, eða þá hann benti á dós af parafín- olíu og spurði, hvaðan hún væri. „Meðan hann var þarna, voru allir á nálum. Frú Eloi benti þrásinnis mönnum sínum að halda sér saman. Ef skipstjóri var þarna staddur til þess að panta eitt eða annað, var hann vanur að skerast 1 leikinn og útkljá málið, ef gömlu kon- unni og skipstjóranum kom ekki saman um verðið. „Eftir nokkrar mínútur kom svo þjónustu- stúlka með bakka og fór með hann inn á skrif- stofuna. Mauvoisin gekk á eftir henni, enn með hattinn á höfðinu. Stundum kom þó fyrir, að hann tók hattinn ofan í mestu hitunum, til þess að þerra á sér kollinn, en hann setti alltaf hatt- inn upp hið skjótasta aftur. „Teið var alltaf eins eins og líf hans yfirleitt. Tveir bollar af veiku tei. Tvær sneiðar af ristuðu brauði smurðar með marmelaði. Hann settist alltaf í stól frú Eloi, eins og hann ætti þennan stað. Og ég býst við, að hann hafi einmitt átt staðinn. Ef hann sá bréf á skrifborð- inu, tók hann þau og las. „Mér hefur ekki verið sagt meir, Gilles. Ef þér viljið fara inn, er bezt að ég bíði hér eftir yður." Inni í skuggsælli kaffistofunni sá Gilles Gérardine frænku sína í sama svarta kjólnum sínum. Honum fannst hún hafa verið að horfa á sig. Hann tók á sig rögg, gekk yfir götuna og opnaði dyrnar. Honum til mikillar undrunar, tók frænka hans alls ekki eftir honum. Hún stóð við afgreiðslu- borðið og horfði á tvo menn, sem voru að leggja fram pöntun. Hún var teinrétt að vanda, og gull- slegna nælan hennar var næld i barm hennar, „Sæl vertu, Gérardina, frænka," bjrjaði hann feimnislega. Hún þóttist ekki taka eftir honum í fyrstu. Hún fölnaði lítið eitt, og í stað þessa að taka undir kveðju hans, sagði hún kuldalega.. „Hvað vilt þú? . . . Ég veit, að þér finnst þú hálfvegis eiga þennan stað, og ég geri ráð fyrir, að þess verði ekki langt að bíða, þangað til þú átt hann og átt hann einn'." „En . . .“ „Ég er systir móður þinnar og ég vil ekki hafa þessa lögreglumenn snuðrandi um allt.“ Hún gekk til dyra og horfði um stund á Rinquet, sem beið handan við götuna. „Viltu, að ég hætti í lok mánaðarins?" Gilles vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hann hefði aldrei getað ímyndað sér, að fimmtug kona, fyrirtaks kaupsýslukona eins og Gérardina frænlta, sem var annáluð fyrir skapfestu, gæti skyndilega kastað öllu frá sér í algerri uppgjöf. Hann óttaðist, að hún myndi hvað úr hverju bresta í grát, og hann leitaði að einhverju sem hann gat sagt til þess að róa hana. 1 þessu kom Bob niður hringstigann. Fyrst sáust fætur hans, síðan búkurinn, og loks birtist rautt og sællegt andlit hans uppi í stiganum. Þegar móðir hans sá hann, kom það henni al- gerlega úr jafnvægi. Hún þaut að stiganum, hrasaði við og ýtti Bob á undan sér upp stigann. Skyndilega ríkti þögn i stofunni. Aðstoðarmenn frú Eloi litu imdrandi hver á annan, siðan á Gilles. Og Gilles, sem var engu minna undrandi, sneri sér við og gekk skömmustulega til dyra. Framhald á bls. 13. YIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.