Vikan - 24.09.1959, Síða 10
seqi^ *
* '■
llllgfi
börn, er
klandri,
im'
' ' ,
í stórræði,
O
©
HrútsmerTciö (21. marz—20. apríl): 1
þessari viku munt Þú veröa aö ráöa
fram úr miklu vandamáli, sem getur
breytt efnahag þínum til muna. FarÖu
þess vegna að öllu með gát. Ef þú átt
hætt við því, að þau lendi í einhverju
en skeyttu samt ekki skapi þínu á þeim,
því að að öllum líkindum eru þau saklaus.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí): Ef
þú ert duglegur og iðinn þessa viku, eru
allar iíkur á þvi, að þú aukir vinsældir
þínar og fáir jafnvel launahækkun! Á
heimilinu kann að vera, að þú lendir
í orðasennu við þina nánustu, og væri skynsam-
legast fyrir þig að reyna að ná sættum sem fyrst.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þér
býðst einstakt tækifæri þessa viku, en
hætt er við, að Þú gerir þér ekki grein
fyrir, hversu þýðingarmikið þetta er.
Gríptu gæsina, meðan hún gefst! Ungt
fólk mun koma að máli við ástvin sinn um helg-
ina, en ekki er víst, að þeim komi vel saman.
Krabbamerkiö (22. júni—23. júlí): Mið-
vikudagurinn verður mikill annadagur
og skiptir þig mestu þessa viku. Þú
ættir að fara heldur sparlega með pen-
ingana þessa viku. Amor skýtur einni
af örvum sínum niður í kunningjahóp þinn, en
ekki er víst, að þér sé nema miðlungi vel við það.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þessa
viku getur þú tekið lífinu með ró, því
að engin vandamál virðast steðja að.
Þú virðist fá nægan tima til Þess að
skemmta þér, en notaðu einnig tímann
til annars. Um helgar verður þér að öllum lík-
indum boðið í eftirsóknarvert samkvæmi. Heilla-
tala 5.
Meyjarmerkiö (24. ágúst—23. sept.):
Einhverjar erjur verða i fjölskyldunni
út af einhverjum „svörtum sauði“, og er
aldrei að vita, nema þú getir einmitt
bætt úr þessum erjum. Þó er ekki víst,
að fortölur þínar, — þótt þær séu á rökum reistar,
— verði teknar gildar. Helgin verður einkar
skemmtileg og viðburðarik.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þú
skalt nota allar tómstundir þínar þessa
viku til þess að hjálpa góðvini þínum,
þvi að hann Þarf sannarlega á hjálp
að halda Seinni hluta vikunnar munt
þú fá heimsókn, sem þér er allt annað en vel við.
Líklega verður þessi heimsókn til þess að koma
upp um eithvað, sem Þú hefur haldið leyndu.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Lífið
virðist ætla að leika við þig Þessa viku,
og þú átt það sannarlega skilið, Því að
einhver skuggi hefur hvílt yfir tilveru
þinni síðustu vikurnar. Einhver send-
ing kemur til þín, liklega frá útlöndum, en hætt
er við, að þú verðir fyrir nokkrum vonbrigðum
af henni.
Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Þú
ferð í einhverja ferð, annaðhvort þér
til skemmtunar eða til þess að reka
erindi kunningja þíns, sem ekki sér sér
fært að fara í þessa ferð. Þú skalt leit-
ast við að kynnast kunningjum þínum nánar, þvi
að í hópi þeirra leynist ef til vill lífsförunautur
þinn. Heillatala 8.
Oeitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Það
gerist eitthvað furðulegt á miðvikudag
eða fimmtudag, og bá færðu aldeilis að
sýna, hvað í þér býr. Konur ættu að
hugsa sig um tvisvar, áður en þær leggja
einkanlega í ástamálum.
Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.): Þú
hefur verið ötull siðustu vikur, en nú
steðja vandamálin að úr öllum áttum,
og hætt er við, að Þig bresti kjark til
þess að horfast i augu við veruleikann.
En ef þú sýnir viljastyrk og festu, muntu einnig
uppskera ríkulega. Á föstudag gerist eitthvað, sem
§§§ kemur þér þægilega á óvart.
FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Eftir
helgina mun kunningi þinn verða til
þess að létta af þér þungum áhyggjum.
Og sparaðu ekki að sýna honum þakk-
læti þitt. Kunningi þinn, sem búið hef-
ur erlendis, mun koma öllum á óvart,
Það er einkenni hverrar kýn'slóðár að ván-
meta þá ungu, en kannski er þetta að breytast til
batnaðar. Ungt fólk er farið að skipa vandasamar ■
og ábyrgðarmiklar stöður, við eldri jálkarnir erum
hættir aö hneykslast á ykkur, þriðju kynslóðinni,
og höfum af alefli snúið áhyggjum okkar yfir á
hina fjórðu. Heldurðu annars, að heimurinn fari
ekki versnandi? Og hinn aldni kunningi minn tek-
ur hressilega í nefið.
Við sátum og hugleiddum unga fólkið og við-
horf hinna eldri til þess. Eftir þaö samtal, sem
verður ekki rakið hér, brá ég mér til fundar við
ungan verzlunarstjóra, Bjarna Grímsson, sem
stjórnar einni stærstu og umfangsmestu verzlun
á öllu landinu.
Bjarni hefur skrifstofu niðri. Hún er lítilpóg það
eru ekki teppi á gólfinu, rétt aðeins rúm fyrir
skrifborð og setubekk framan við.
Hann er ekki alls kostar ánægður, þegar ég ber
upp erindi mitt.
— Viðtal við mig! Það er ekkert um mig að
segja, maður. Það er ekki löng saga ungs manns.
En hann meinar þetta ekki alvarlega, og innan
stundar er hann byrjaður að svara spurningum
eins og:
—• Hvar ertu fæddur?:
— Hér í Reykjavík. Varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1953 og hélt belnt út i
sölumennsku hjá SlS, — seldi innlendar iðnaöar-
vörur. Ég ferðaðist um allt land, kynntist mörgu
fólki. Það, var gott að vera sölumaður. Maður
kemur á íjölmarga staði til sjávar og sveita. Núna,
sex árum síðar, þegar ég héýri um framkvæmdlr
i sjávarþorpum, um nýja báta og ný frystihús, uffl
raflagnir og fleira og fleira, þá get ég boriö það
saman við ástandið, sem var, þegar ég kom þar.
Þannig fylgist ég mun betur með fréttuhum, veit
um gildi hlutanna, sem framkvæmdir eru.
Haustið 1954 fór ég til Þýzkalands, til Kðlnar
í Rínardal, til að nema rekstrárhagfræði. Ég
kvæntist, áður en ég fór utan, Hönnu Gunnars-
dóttur. Við eigum nú tvær stelpur og einn strák.
í Þýzkalandi var ég við nám til haustsins 1957,
kom þá aftur til SlS og gerðist verzlunarstjóri hér.
— Við skulum ekki hlaupa svo fljótt yfir sögu.
Segðu mér eitthvað frá dvöl þinní í Þýzkalandi,
eitthvað svona til gamans.
— Hvað skal segja. Það er úr mörgu að veljá
og margs að minnast. Veturinn 1955 til 1956, 1
janúar og febrúar, voru i Þýzkalandi mestu frost-
hörkur, sem komið höfðu i manná minnum. Koná
mín var þá úti hjá mér, og við bjuggum I gömlu
húsi nálægt miðbænum. Hús þetta hafði hrúnlð
til hálfs í sprengjuárás á styrjaldaráruntim, og
við bjuggum auðvitað í þeim hluta, sem hrundi.
Hér þagnar Bjarni litla stund, lætur hugann
reika til þessara erfiðu ára, og hann broslr öðrU
hverju af svipmyndum þeim, sem fram hjá llða.
— Eigandinn hafði hlaðið múrsteinum upp aftur,
sett fjóra veggi og rafta á og klætt þá eitthvað,
og þarna hírðumst við. Hringinn í kringum hurð-
ina voru ágætar rifur, svo að við sáum prýöisvel
fram á ganginn án þess að opna dyrnar, og glugg-
inn rétt tolldi í veggnum, og gegnum veggina mátti
oft skoða veðráttuna, og við fengum stundum
sýnishorn af veðrinu, send inn í gegnum glufurnar.
1 herberginu var vaskur, í hann rann kalt vatn,
og niðurfallið var leyst á einfaldan máta. Eigand-
inn leiddi sem sé niöurfallið úr vaskinum og beint
út um vegginn, og þar endaði sú leiðsla. Þegar
maður svo hleypti niður úr vaskinum, fór vatniö
þaðan út um vegginn og niður eftir húsinu, hafn-
aði á þaki skúrræfils, sem var þar neðan undir,
rann eftir þakinu og hafnaði I tjörn, sem myndazt
hafði við rennslið. Það var lítið fyrir sýsteminu
haft, maður. 1 þessum frostum botnfraus vask-
urinn hjá okkur, vatnið rann ekki niður, og vlð
urðum því á næturþeli að ausa vatninu og henda
út um gluggann.
1 þessum kuldum seldust upp nær öll kol I Þýzka-
rUJJJJTJJJJJJJTJJJJJJJl
Rætt við Bjarna Grímsson,
verzlunarstjóra hjá S.Í.S.
í Austurstræti
mjojunjijajjjnuuiji.
landi. Kolakaupmenn, sem venjulega óku um götur
með fulla vagna, földu sig nú 1 hliðargötum og
vprú með örfáa poka hver. Og lítill var skammt-
urinn þá. Herbergið okkar var kynt með gömlum
kolaofni, og það fór heldur betur að kólna hjá
ókkur, þegar kolin voru ekki til, enda gustaði
herléga inn um rifurnar. Þegar við vorum orðin
uppiskroþpa, tók ég það til bragðs, að ég settl
kónuna niður i rúm, vafðl hana teppum og trefl-
um og hljóp siðan -út á göturnar, þar til ég fann
kolákaupmann. Tjáði ég honum, að konan lægi
fársjúk og að dauöa komin, og yltl nú allt á þvi,
að ég'fengi kolapoka, hvort hún héldi lifi. Maður-
inn aumkaðist yfir mig og bar inn poka, og á
þehnan máta höfðum við alltaf einhver kol vetur-
inn þann.
í Köln var lengl samtímis mér Eiríkur Haralds-
son, nú menntaskólakennari 1 Reykjavik. Við Elrik-
ur brölluðum margt saman. Eitt slnn fréttum við,
VIKAN