Vikan


Vikan - 05.11.1959, Blaðsíða 3

Vikan - 05.11.1959, Blaðsíða 3
r Kvæöiö, sem dægurlag þetta er samiö viö, er eftir DavíÖ Stefánsson skáld frá Fagra- skógi — og alls ekici ort sem dcegurlagatexti, enda þótt þau hafi oröiö örlög þess. Þaö þótti gott kvœöi á þeim tímum, sem raunverulegir eldar brunnu til raunverulegrar ösku, en nú þekkist eldur yfirleitt ekki nema í eldsvoöa og ekki önnur aska en sígarettuaska. 1 þeirri ösku geta aö vísu leynzt neistar, — jafnvel hættulegir neistar, — en vart sá eldur, sem skáldiö tekur líkingu af, en sem sagt, neistar, og þvi veröur aldrei of varlega fariö, jafnvel þótt aöeins sé um sígarettuösku aö ræöa. Hald- iö þvi áfram aö vera eldhræddar ... Kveðskapur, skáldskapur — eða hvað . . . Kæra Vika. Mamma gat gert vísur, og það er víst þess vegna, að ég fór að fást við að yrkja, strax þegar ég var krakki. Svo hætti ég því, þegar ég eltist og vitkaðist, en samt sem áður hef ég gaman af að lesa kvæði, það er að segja kvæði og ljóð, sem eru kvæði og ljóð. En þessi nýju skáld eru að gera mig gersamlega ruglaða í riminu í bók- staflegri merkingu, og nú langar mig til að spyrja þig nokkurra spurninga i því sambandi. Fyrst: — Hvað er kvæði eða ljóð? Annað: — Hvað er hvorki kvæði né ljóð. Þriðja: — Hvað er leirbull og glórulaus della? Fjórða: — Hvenær eru menn að gera gys að öðrum og hvenær að sjálfum sér? Með beztu þökkum fyrir væntanleg svör. Þórdís Halldórsdóttir. Ekkert aö þakka, Þórdís, —- því miöur. Eg treysti mér nefnilega alls ekki ttl aö svara neinni af þessum spurningum, aö minnsta kosti ekki nema fyrir mig. Engu aö síöur birti ég bréf þitt í þeirri von, aö einhver kunni aö vita svör viö öllu eöa einhverju af því, sem þú spyrö um, og sýni þá þér og mér þá vinsemd aö láta okkur njóta góös af. Sem sé — oröiö er laust . .. Sumarleyfisást. Kæra Vika. Hvað í ósköpunum á ég til bragðs að taka? Eg skrapp upp í sveit í sumarleyfinu ásamt vin- konu minni; við lágum í tjöldum í birkikjarri, dásamlega rómantísku, skilurðu. Og svo komu til okkar strákar af næsta bæ þarna, sveitastrákar, og við ætluðum bara að spila svolítið með þá, og það tókst vinkonu minni líka með þann, sem hjá henni lenti, en það fór öfugt með mig, því að minn var ekki af þeirri sortinni, að hann léti spila með sig. Hann sló mér svo aldeilis við, að ég vissi bara ekki, hvaðan á mig stóð veðrið, og nú var ekki eins og hann væri neitt sjarmer- andi eða þess háttar, alltaf órakaður og ekki sérlega þrifalegur með sig. En hann var — eins og villimaður, gæti ég hugsað mér. Ég var, svei mér þá, alltaf hálfhrædd um, að hann bara hrein- Iega dræpi mig, ef . .. Þú skilur, hvað ég á við. Og svo urðum við að fara, og hann tók sér það víst ekki nærri. En síðan er ég bara, hreint og beint kreisý, — horast og hef ekki gaman af neinu, og vinkonur mínar eru farnar að ráð- leggja mér að taka inn vítamín. Mig dreymir hann og allt þess háttar, og ég skil ekkert í sjálfri mér. Hvað á ég að gera? Eg verð vitlaus, ef þetta heldur áfram. Mér finnst allir þessir fínu strákar hérna svo uppskafningslegir og ekki neitt, neitt siðan, en áður var ég alltaf hálftrúlofuð tveimur eða þremur; nú get ég ekki hugsað til þess, að þeir komi við mig, — hvað þá meira. Hvað finnst þér, að ég eigi að gera? Með kærri kveðju. Sumarskvísa. Taktu inn vítamín . . . Ég held ekki. Kæra Vika. Þarf maður að kunna nokkuð til að geta orðið dægurlagasöngkona, — söng, tónfræði, tungumál og þess háttar? Er það kannski eitthvað sérstakt, sem af manni er krafizt? Dódó. Eg held ekki, aö minnsta kosti ekki, aö þvl er fyrri spurninguna varöar. Mætti meira aö segja segja mér, aö bezt væri aö hafa ekkert af þessu lært. ViÖ seinni spurningunni er svar- iö hiö sama: — Ég held ekki, — nema hvaö þaö ætti svo sem ekki aö saka, aö þú heföir hlotiö drottningartitil einhverra hluta vegna. AÖrar kröfur, sem kannski koma til greina, eru þær, aö þú getir ekki lært texta og ekki sungiö. I---------------------------------------- VIKAM Útgefandi: VIKAN H.F. Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.) Auglýsingastjóri: Ásbjörn Magnússson Framkvæmdastjóri: Hilmar A. Kristjánsson Verð i lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr. 216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholti 33. Simar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Miklubraut 15, simi 15017 Prenlun: Prentsmiðjan Hilmir h.f. Myndamót: Myndamót h.f. ---------------------------------------_l Nú er Jóni Jónssyni brugöiö. Hann liefur ekki varaö sig á því aö vet- urinn hefur haldiö inn- reiö sína. Honum hefur förlast fatamenntin og veriö of léttklœddur á rúntinum. Og nú er hann altekinn þessu líka herj- ans kvefi og mikiö ef hann getur mætt tii vinnu í fyrramáliö, þrátt fyrir heitt fótabaö og brennsluspritt. Björn Haysen teiknaöi. Nú hefst tími heimsókna Yeturinn er sá tími sem heimilislífið skipar æðsta sess. Þá verður að leggja Áherzlu á matargerð og bakstur, enda létt með hinum viðurkenndu * (ígg) krydd- og bökunarvörum Brúnkökukrydd Hunangskrydd Allrahanda Engifer Karry Kardemommur, Kanel, heill Kanel Múskat Kúmen, Negull, Kókósmjöl Pipar, Vanillusykur Saltpétur Sítrónusykur Rúllupylsu-krydd Lárviðarlauf Matarsódi Bláber Súkkat Hjartarsalt Súpujurtir Rauðkál Karamellusósa Salatolia Sellofanpappir i rúllum, Vínsýra Vcrdol þvottalögurinn í þvottinn; í uppvaskið. Brauðraspurinn er ómissandi við ýmiskonar pönnusteikur, kótelettur, fisk o. fl.; gefur matnum óviðjafnan- legt bragð og fallegan rauðgullin lit. Eplakaka með raspi og rjóma er vinsæll eft- irmatur. Heildsölubirgðir ^lti|ih«H Vf SKIPHOLTI 1 REYKJAVÍK Simi 2-37-37. V I K A N 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.