Vikan - 05.11.1959, Blaðsíða 22
KVIKMYNDIR
ANTONELLA LUALDI
c
Á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í sumar var m. a. sýnd frönsk
kvikmynd, þar sem þessi unga og undurfagra stúlka lék aðalhlutverkið.
Þó hún njóti mikilla vinsælda bæði í Frakklandi og í heimalandi sínu,
Ítalíu, hefur samt lítið sem ekkert af kvikmyndum hennar verið sýnt
hérlendis, þótt undarlegt sé. Hún er hins vegar einhver fallegasta leik-
kona, sem ítalir eiga. í síðustu kvikmynd sinni leikur hún á móti
eiginmanni sínum, en hann heitir Franco Interlenghi.
Ricky Nelson fæddist 8. maí 1940. Hann
er sonur hljómsveitarstjórans Ozzie
Nelsons, sem fyrir allmörgum árum
stjórnaði einni allra vinsælpstu dans-
hljómsveit Bandaríkjanna, svo að hann
á ekki langt að sækja tónlistaráhugann.
Þegar Ricky var tæplega ársgamall,
fluttust foreldrar hans frá New Jersey
til Hollywood, sem þá var að verða mið-
stöð amerisks söng- og leiklistarlífs.
Auðvitað er Hollywood fyrst og fremst
höfuðborg kvikmyndanna, en útvarp,
sjónvarp og hljómplötur fá bar þó æ
meira rúm. Átta ára gamall kom Ricky
fram ásamt bróður sinum, Dave, i sjón-
varpsþætti foreldra sinna, og allt frá
þeim tíma hefur Nelsons-fjölskyldan
verið í hópi vinsælustu sjónvarpsstjarna
vestra.
Hinn 10. apríl 1957 varð sögulegur dag-
ur fyrir Ricky Nelson. Þá hafði hann
nefnilega í fyrsta sinn gítarinn sinn með-
ferðis í sjónvarpsþáttinn og söng þar
rokklög. Á fáeinum timum varð hann
átrúnaðargoð bandarískra táninga. Þeir
létu sér ekki nægja að sjá hann á sjón-
varpstjaldinu, heldur fóru í flokkum til
sjónvarpsstöðvarinnar og réðust þar til
inngöngu. Fyrsta hljómplata Rickys,
I’m walking, varð metsöluplata á stutt-
um tíma, og fyrir hina næstu, Be Bop
Baby, fékk hann fyrstu gullplötúna sína.
Hljómplötufyrirtækin hafa það nefnilega
fyrir sið, þegar plata selst f meira en
milljón eintökum, að færa listamannin-
um gullna plötu að gjöf til að heiðra
hann.
1 Bandarikjunum eru um 3000 aðdá-
endaklúbbar Ricky Nelsons og það er
skiljanlegt. að hann skuli vera svo dáður
meðal æskufólks vestra. Auk þess sem
hann syngur að smekk fjöldans er útlit
hans nákvæmlega eins og ungu stúlk-
urnar vilja hafa það. Kvikmyndajöfrarn-
ir hafa fyrir löngu uppgötvað hann, og
hann á þegar þrjár kvikmyndir að baki.
Fyrst lék hann í Þrjár ástarsögur ásamt
Ethel Barrymore og Leslie Cai'óh, á eftir
fylgdi Hér kemur Nelsons-fjölskyldan,
og þriðja myndin hans var kúrekamynd.
Ricky Nelson skilur mætave] að hann
getur ekki byggt framtíð sína upp á
rokksöng, og miðar því æ meir að því
að fara að syngja á „eðlilegan" hátt, þeg-
ar táningaskeiðið er að baki. En á meðan
halda plöturnar hans áfram að renna
út. Af metsöluplötum hans má nefna
Poor Little Fool, Someday, Never be
anyone else but you og It’s late.
Ricky Nelson
Some Like It Hot er mikið rædd
kvikmynd og þykir mjög góð. Aðal-
hlutverk myndarinnar leika Marilyn
Monroe, Tony Curtis og Jack Lemm-
on. Þeir Tony og Jack leika þó ekki
alla myndina út sin venjulegu
„sjarmör“-hlutverk, heldur koma þeir
S I L V A N A
Boðordin tíu
Kvikmyndin Boðorðin tíu er næstsiðasta verk kvikníyndastjórans Ceells B. De
Mille og talin ein hin bezta í flokki þeirra stórmynda, þ'ar sem hann hefur Sött
efnið í bibliuna. I myndinni er sýnd saga Móses, sem linnst í vöggu, fljótandí á
Níl. Það er egypzk konungsdottir, sem finnur vögguna. Móse er alinn upp sem
egypzkur prins, er þegar hann kemst að hinum hebreska uppruna sínum gen«ur
liann i lið með þjóð sinni, sem Egyptar lialda i ánauð. En Egyptar verða’að þola
Móse færir þjóð sinni töflurnar með boðorð-
unum.
Tugþúsundir statista unnu við kvikmyndina.
Yul Brynner sem Ramses, — hann óttast Móse.