Vikan - 05.11.1959, Blaðsíða 4
Þepcar hlé verður á sýningunni, fær prímadonnan, Guðrún
Högnadóttir, sér „smók“ í hringstiganum upp í búningsher-
bergi kynbombanna.
Krisiinn Hallsson breytir sér með nokkrum pensilstrikum
í Stefán Þ. Jónsson veitingamann og stórbraskara.
„KOFINN
„Ef leikhúsmenning vorri fólkið fagnar,
þá fussa helztu gáfnaljós;
en það er nóg ef Ásgeir minn og Agnar
um okkar stykki skrifa hrós.
Þeir munu finna strax á sjálfum sér,
þá sönnu list er birtist hér.
Já, það er nóg ef Ásgeir minn og Agnar
um okkar stykki skrifa hrós ...“
Karlmannleg baryton-röddin smýgur út í hvert horn þéttskipaðs áhorfendasalar, menn
spenna makindalega greipar framan á ýstr jnni en konur leggja hönd undir kinn. Allir
hlusta. Þjónarnir eru meira að segja hættir að servera á borðin í bili, en hópa sig
frammi við „buffið“. Einn og einn þeirra, se n til þekkja, hugsar með sér: „Mikið skrambi
hefur hann Múli verið heppinn með þetta lag.. . eða kannske er þetta ekki heppni.
Kannske er maðurinn tónskáld ...“
„Já, það er nóg ef Ásgeir minn og Agnar
um okkar stykki skrifa hrós ...“
Þetta er í Framsóknarhúsinu, þar sem verið er að sýna söngleikinn „Rjúkandi ráð“,
og við ætlum að bætast í hóp þeirra, sem „skrifa um stykkið", eins og segir í vísunni
sem Kristinn Hallsson syngur í hléinu eftir annan þátt. Kristinn er reyndar ekki „hann
sjálfur" þarna á sviðinu, heldur kemur hann fram í gervi Stefáns Þ. Jónssonar, veit-
ingamanns og Iánveitanda, sem rekur veitingahúsið Stebbakaffi. Tjaldið fellur. Kristinn
hefur nokkurra mínútna hlé, og við gripum hann í búningsherberginu undir leiksviðinu.
Þar sitja menn við langborð og horfa á sjálfa sig í speglum, meðan þeir bera farðann
framan í sig af list, og breyta eigin ásjónu í glæpEynannsandlit, harðsoðið bisnisfés eða
Frá vinstri: „ . . . breyta eigin ásjónu í glæpamannsandlit, eða mála á sig
einbeitnislegan lögregfnsvip með köldu blóði . . .“ Erlingur Gíslason og Jón
Kjartansson. — „Leikarar á svið . . . við byrjum“. Leikstjórinn við Ijósatækin.
— Sigurður Ólafsson með lögregluhundinn Úlf, sem lcikinn er af fallegum
kjölturakka.