Vikan - 05.11.1959, Page 13
90 (
9S -J- 9 O -7 -v 75 — t
M f
i---/9o-------i
frá Húsnæðismálastofnun ríkisins
Ég er nefnilega viss um, að það má græða á
búskap og útgerð atveg einsog verzlun, ef menn < ,<
eru ekki nein fífl og kunna eittlivað fyrir sér i T
bransanum. '
Langt finnst þeim sem bíður í . . .
OG FYRST maður er á annað borð að tala
um bísnis, þá verð ég að segja það, að ég er feg-
inn að Jóhannes skuli vera búinn að fá leyfi til
að selja þeim á Skjaldbreið Borgina, því það er
alveg ábyggilegt að ef nokkuð hús i bænum -
er orðið of litið, þá er það Hótel Skjaldbreið.
Það hefur sagt mér maður, sem vinnur í Land- /
símahúsinu við glugga, sem snýr að Hótel
Skjaldbreið, að það sé til liáborinnar skammar
hvernig Kanarnir verði beinlinis að standa'
úti á götu fyrir framan Iiótelið, livernig sem
viðrar, með unglingsstelpur, kanslci varla
fermdar, og illa klæddar, lil að bíða eftir þvi^.
að fá herbergi. Og þó hótelfólkið sé allt af
vilja gert og skipti um leigjendur i herbergjon-
um eins fljótt og það getur, og kanski oft á
dag, þá er alltaf biðröð við Hótelið Skjald-
breið, að minnstakosti um helgar.
Og þó, að menn, sem eru búnir að vera hér
árum saman, skilji að svona fyrirgreiðsluleysi
stafar bara af hótelskorti í landinu, þá er ekki
þar með sagt að útlendingar, sem eru hér
kanski ekki nema nokkra mánuði, skilji það.
Og við þurfum ábyggilega ekki að búast við
því að verða nokkurntíma ferðamannaland
meðan ekki er betur búið að þeim, sem þurfa
gistingu.
Nú er ég viss um að biðröðin við Hótel
Skjaldbreið stórmínkar við það að þeir taka
við Borginni, og ég þori lika að hengja mig
uppá að það verður margfalt betri rekstursút-
koma á þessu stærsta gistihúsi landsins, sem
allir vita að Borgin er, hjá þeim á Skjaldbreið,
og það að langmestu leiti í dollurum.
Og það er ánægjulegt, að svona menn, sem
ríkisstjórnin er búin að láta annast fyrir sig
allar opinberar stórveizlur og gróðarisnu í
næstum tuttugu ár, skuli loksins fá almennilegt
olnbogarúm fyrir starfsemi sina. Enda segir
það sig sjálft að þeir myndu ekki eiga 18
milljón krónúr til að snara út fyrir Borginni
ef þeir hefðu verið einhverjir asnar í þessum
bransa.