Vikan


Vikan - 17.12.1959, Qupperneq 17

Vikan - 17.12.1959, Qupperneq 17
JT í fljúgandi með gráljóst hár beri með sér ömbruilm, en konur með kast- aníubrúnt hár fjóluilm og brúnhærðar og svarthærðar konur ilmi eins og ibenholtvið- ur, Skapgarðin skiptir einnig miklu máli við val ilmvatna. Tilfinninganæmar konur vilja gjarnan rósa-, cýprus- eða jasminuilm, en skapfastar og ákveðnar konur vilja frekar daufan ilm. Konur, sem nota bung ilmvötn, hafa oft marg- þætta skapgerð og eru listræn- ar í sér. En þær, sem nota létt Kölnarvatn, eru yfirleitt fín- gerðar, hafa hreinar skapgerð- arlínur og næman smekk. Ef eitthvað er til í þessu, sem Fransmaðurinn segir, þá er stórvarasamt að vera að arta upp á ókunnugt kvenfólk með ilmvatnsgjöfum. En í því til- felli, að rétt ilmvatn rati nú i hendurnar á réttum kvenmanni, þá er nauðsynlegt að kunna að nota það á réttan hátt. Umfram allt, notið ekki of mikið. Þessar gangandi ilmvatnsfabrikkur eru hræðileg fyrirbæri. Það á ekki að setja ilmvatn í föt nema þá föt, sem eru oft þvegin, því að ilvvatnslykt úr fötum verður að vondri lykt, þegar frá líður. Það á að ilmbera sjálfa húðina. Bezt er að bera á bak við eyrað, á efri vörina og auðvitað i hárið. færi °g brakandi frosti Hér kemur uppskrií't af lilýrri og t'allegri skíðahúfu. Sjálfsagt er að prjóna úr grófu garni, en sé það ekki til, má gjarn- an vinda garnið tvöfalt, sé það snúð- lint. Fitjið upp 124 1. á prjón nr. 3 (ath., að fitin sé ekki föst) og prj. 1 1. sl. og 1 1. br. 3 sm. Skiptið um prjóna, og takið nr. 314, og prjónið mynztur. Mynztrið: 1. umf. * 3 1. sl. og 1 1. l>r. *, endurtakið frá * til * umfcrð- ina á enda, og endið með 1 1. br. 2. umf. * 1 1. sl. 3 1. br. *, endur- tekið frá * til * umf. á enda, og endið með 3 1. br. 3. umf. eins og 1. umferð. 4. umferð eins og 2. umferð. 5. umferð * 3 1. br., 1 1. sl. *, end- urtakið frá * til * umf. á enda, og endið með 1 1. sl. 6. umf. * 1 1. br.f 3 1. sl. *, endurtakið frá * til * umferðina á enda. 7. umf. eins og 5. umf. Nú þegar þessar mynzturumferð- ir hafa verið prjónaðar, eru tvær kaflaraðir myndaðar, sem siðan eru endurteknar. Athugið, að mynzturkaflarnir standist á, hvort sem byrjnð er að prjóna þá frá réttu eða röngu. Prjónið nú þetta mynztur, þar til 20 sm mælast frá uppfitjun. Prjónið þá úrtöku frá réttu, og prjónið 3. og 4. hverjar lykkjur saman, — siðan aftur í næstu umf. frá röngu með þvi að prjóna 2. og 3. liverja 1. saman. Prjónið þannig 4 umferðir. Dragið garnið í gegnum síðustu lykkjurnar, og saumið húfuna sam- an með aftursting. Gjarnan má pressa Iauslega yfir sauminn frá röngu. muH Ilmvatnsglas er alltaf kær- komin gjöf. En að velja rétta ilminn, það er önnur saga, og kemur margt til athugunar í sambandi við það. Fallegar um- búðir og fínt merki er ekki einhlítt. Aðalatriðið er, hvort ilmtegundin hentar viðkomandi dömu. Sagt er, að hverri manneskju fylgi sérstök lykt, og það atriði skiptir miklu við notkun ilmvatna. Franskur maður, sem er sérfræðingur í ilmfræðum, skiptir konum niður i ilmflokka eftir háralit. T. d. heldur hann því fram, að konur JÓLASVUNTA Á GUNNU ÞaÖ er orÖiO fremur sjaldyœft aö sjd litlar telyur meö svuntu. Einu sinni var engin telpa alklœdd, fyrr en búiö var aö binda á 'hana svuntuna. Hvers vegna aö leggja niöur þetta þrifafat? Ef til vill af því, aö þaö þykir ekki fínt nú á dögum. Hvort sem þaö er nú af þeirri ástceöu eöa annarri, þá er svuntan jafn- nauösynleg og hún var í gamla daga til hlíföar góöum fötum. Vceri ekki ráö aö taka upp þennan gamla góöa svuntu-siö og sauma eina utan yfir jólakjólinn? Svuntan á myndinni er sérlega hentug, þar sem hún hlífir svo vel bceöi aftan og framan. Ekki er nauösyn aö punta liana á sama hátt og gert er á myndinni. Setjiö hugmyndaflugiö heldur í gang, og finniö nýjar leiöir. T. d. vceri fallegt aö brydda hana allt i kring aö utan, setja á hana vasa, einn stóran framan á eöa tvo minni sinn hvorum megin. Einnig má binda hana saman á bakinu í staöinn fyrir aö hneppa henni, og svona mætti lengi telja. 19ika lil jóla Nú er ekki seinna vænna, að 4 Koma jólapóstinum út á land. 4 Kaupa allar helztu jólagjafirnar. 4 Panta jólahangikjötið og rjúpurnar. 4 Kaupa jólaölið og vindlana. 4 Búa til jólakonfektið.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.