Vikan - 07.01.1960, Qupperneq 6
Hann er lítill, horaður og þunnhærð-
ur, en þó dregur hann að sér fagrar
konur eins og segullinn stálið. Er það
röddin, brosið eða persónutöfrar sem
ekki verða útskýrðir.
Giría
Lana
Ava Gardner hafði mikil áhrif á hann.
Æskuárin í Hoboken.
Hoboken er hafnarbær í New Jersey,
skammt frá New York. Þar er fátækt mikil
og lifið hrjúft og hrottafengið. í leiguíbúð
nokkurri i fátækrahverfinu þar í bæ fædd-
ist Frank Sinatra 12. desember 1917. Hon-
um gekk heldur erfiðlega að komast í
heiminn; tók iæknirinn ómjúkt á kolli hans
með töngum sínum, og ber Frank þess
enn merki. Annars hélt iæknirinn, að barn-
ið væri liðið lik, þegar hann loks náði
því, og lagði það þvi til hliðar, en beindi
allri atliygli sinni að þvi að bjarga lifi
móðurinnar. Amma gamla varð þá til þess
að bjarga iifi drengsins, tók hann og iaug-
aði undir kaldri vatnsbunu, og rankaði
hann þá við sér.
Martin Sinatra, faðir Franks, var bruna-
liðsmaður, skenkjari í knæpu og heldur
lélegur hnefaleikari, sem keppti undir
nafninu Marty O’Brien, samap rekinn ná-
ungi, sem lét aðra afskiptalausa, en leið
ekki lieldur neinum að ganga á rétt sinn,
ef í það fór.
Dolly, móðir Franks, var af allt öðrum
toga spunnin. Hún var ítalskrar ættar,
hjúkrunarkona að mennt, en eftir að hún
giftist, hjálpaði hún eiginmanni sinum við
knæpureksturinn. Auk þess söng hún i
kirkjukór kaþólskra og á safnaðarsamkom-
um þeirra, var virkur félagi í flokki demó-
krata, — og það var fyrst og fremst fyrir
stjórnmálasambönd hennar bak við tjöld-
ift, að Martin hækkaði i tigninni og var
gerður brunaliðsstjóri.
Þar sem Dolly var potturinn og pannan
í allri flokksstarfsemi demókrata þar i
hverfinu, hafði hún lítinn tíma til að sinna
drengnum, sem var þvi að mestu leyti
falinn umsjá ömmu sinnar. Aftur á móti
sparaði hvorki móðirin né móðurbræðurn-
ir skotsilfrið við Frank litla.
— Hann hafði alls ekki gott af því,
viðurkenndi móðirin seinna.
Fyrstu skólaárin var hann alltaf i nýjum
og nýjum fötum, og þegar hann var fjórtán
ára og hóf nám í gagnfræðaskóla, átti hann
„sportjakka“. Og þegar hann kvæntist i
fyrsta skipti, átti liann þrjátiu alklæðnaði
í fataskápnum.
Frank var óskaplegur fjörkálfur, og er
það til marks, að hann hafði liðað sundur
niu reiðhjól, áður en hann var orðinn
fullra tólf ára. Fimm bíla hafði hann
eignazt, áður en hann náði tvítugs-
aldri.
Sjálfur segir Frank svo um æsku sína og
uppeldi í Hoboken: — Fyrst stáluin við
sælgæti úr búðinni á næsta götuhorni, þvi
næst ýmsum smámunum úr kjörbúðunum,
síðan skiptimynt lir sjálfsölum og loks
reiðhjólum. Þetta voru strákar af öllu þjóð-
erni, sem mynduðu með sér hópa og háðu
með sér svo harða götubardaga, að blóðið
rann i striðum straumum. Ég man það
bezt, þegar ég rifja upp fyrir mér æsku
mína, að þá var lifið hrjúft og hrottalegt
og ástúð hvergi að finna.
fig get sungið eins vel og hann . . .
Frank var ekki gamall, þegar hann gerð-
ist þátttakandi i einni glæpaklíkunni.
Göturnar í hverfinu voru þröngar og myrk-
ar og byggingarnar hrörlegar og því ekki
að undra, þótt álls konar þorpurum og
morðingjum þælti þar gott athvarf. Á
bannárunum höfðu leynisalar þar bækistöð
ásamt skammbyssuföntum og svikahröpp-
um, og ckki var ótítt, að glæpaklikurnar
dræpu menn hver af annarri.
Loks þótti móður Franks meir en nóg
um og afréð að flytjast í betra umhverfi,
svo að hann gæti alizt upp við sómasam-
legri aðstæður en hún hafði sjálf átt i
æsku. En Frank hélt þó tryllingshætti
sinum og lét sér yfirleitt ekki á neinn
hátt segjast. Loks var hann rekinn úr skóla
fyrir strákapör sín.
Og hann tók sér það ekki nærri. Hann
hafði þegar ákveðið, hvað hann ætlaði að
gera sér að ævistarfi, og til þess að rækja
það þurfti hann hvorki á prófskirteinum
né hegðunarvottorðum að halda. Hann
hafði alltaf verið i söngflokki skójans, og
þegar skóladansleikir voru haldnir, útveg-
aði hann hljómsveitina og söng svo með
henni, þegar hann langaði til. "
Þegar hann var sextán ára, hóyrði hann
Bing Groshy syngja á leiksviði. Þegar hann
sat að kvöldverði með foreldrum sínum
daginn eftir, varð honum að orði: — Ég
get sungið eins vel og hann, hvenær sem
vera skal ...