Vikan - 14.01.1960, Page 3
ERU KARLMENN FULLKOMNIR?
SPYR EIN UPPRENNANDI KVENRÉTTINDAKONA.
Útgefandi: VIKAN H.F.
RITSTJÓRI:
Gísli Sigurðsson (ábm.)
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Ásbjörn Magnússon
FRAMKVÆMDASTJ ÓRI:
Hilmar A. Kristjánsson
VerS í lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr.
216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram.
Ritstjórn og auglýsingar:
Skipholt 33.
Símar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Rlaðadreifing, Miklubraut 15, slmi 15017
Prentun: Hilmir h.f.
Myndamót: Myndamót h.f.
1
OG SVO ER ÞAÐ ROKKIÐ . . .
Kæra Vika.
Við erum hérna nokkrir rokkóðir gæjar. En
þar sem við eigum ekki lieima í Reykjavík,
langar okkur til að biðja þig að komast eftir
þvi fyrir okkur, hvort það er nokkur dans-
skóli jjar, sem kennir rokk, eða hvort það er
bara dansað svona eftir liöfðinu. Með fyrirfram
þökk fyrir svarið. Rless.
Rokkarar.
Rokk mun ekki kennt i dansskólum bæj-
jarins, að minnsta kosti ekki i þeim slil,
sem þeir rokkóðu dansa það helzt. Hins veg-
ar finnst mér persónulega, að rokkinu sé
gert helzt til hátt undir höfði með þvi að
álíta að það sé dansað eftir höfðinu —
mundi mér þgkja sönnu nær, að enda þótt
fullgrt sé, að eftir höfðinu dansi limirnir,
að þá taki limirnir stjórnina af höfðinu
þegar um rokk er að ræða. Bless . . .
ganga verður frá blaðinu löngu fgrirfram
getur alltaf farið svo að svarið dragist . . .
Við höfum leitað okkur upplgsinga, varðandi
fgrirspurn þina, og fengum það svar, að
gfirleitt mundi gagnfræðaprófs eða lands-
prófs verða krafizt, þótt góðar einkunn-
ir í vissum námsgreintim við miðskóla-
próf gætu gilt. Mun bregting á reglugerð
skólans í vændum, og er að öllu legti ráð-
legast að snúa sér beint til skólastjóra, varð-
andi allar slikar upplgsingar.
KLEPPSVEGUR OG STRÆTISVAGNAFERÐIR.
Iíæra Vika.
Ég á heima í háu prentarablokkinni við
Kleppsveg, og það er út af fyrir sig vitanlega
ekki i frásögur færandi. En strætisvagnasam-
göngurnar i þvi hverfi eru sannarlega í frá-
sögur færandi, og miklir snillingar hljóta þeir
að vera, sem ráða þeim málum. Til þess að
gera langt mál stutt — það er hægt að komast
þaðan i bæinn á hálftíma fresti og þar með
basta. Og annað enn merkilegra — þessar
samgöngur hafa verið svona í áraraðir og það
virðist engu máli skipta, að þarna er risið upp
geipifjölmennt hverfi.
Ein óánægð.
Við höfum haldið uppi fgrirspurnum með-
al fólks, í þessu hverfi og komizt að raun
um, að þú hefur mikið til þins máls. Okkur
skilst samkvæmt þeim upplgsingum, að
þarna mætist þrir strætisvagnar, svo að
segja á sömu mínútunni og siðan liði hálf-
tími án þess nokkur strætisvagn sjáist, nema
hraðferð, sem fer inn Langholtsveginn, og
mun seinfarið með henni í bæinn. Þarna
gæti skipulag þessara mál ef til vill verið
betra, og er þessu hér með komið á fram-
færi.
ERU ENGAR KRÖFUR
GERÐAR TIL EIGINMANNANNA?
Kæra Vika.
Ég kaupi alltaf Vikuna, og er yfirleitt mjög
ánægð með hana. En það er eitt, sem er alveg
óþolandi. Og það eru þættirnir, „Eruð þér
góð eiginkona? eða með einhverri álíka fyrir-
sögn. Með tuttugu spurningum til kvenfólks-
ins, hvernig það eigi að betrumbæta sig. Hvers
á lcvenfólkið að gjalda? Eigum við alltaf að vera
að betrumbæta okkur? Eru engar kröfur gerð-
ar til eiginmannanna, eða hins svokallaða
„sterkara kyns“? Eru karlmenn alfullkomnir?
Eða hvers vegna er aldrei þáttur með fyrir-
sögninni: „Eruð þér góður eiginmaður“?
Ein tilvonandi
kvenréttindakona.
Æ, hver skrambinnl Þarna hefur hin
margumtlaaða hæverskuskglda gagnvart
blessuðu kvenfólkinu leitt okkur út á heldur
en ekki hálan ís. Þessi spurningaþáttur,
sem ein tilvonandi kvenréttindakona Igsir
eftir, kemur nefnilega áður en langt um lið-
ur, verður kannski kominn á undan þessu
svari, en við höguðum okkur nefnilega sam-
kvæmt hinu alkunna hæverskuboðorði:
„Konurnar fgrstl“ Og þess lætur sú tilvon-
andi okkur nú gjalda, og verður eflaust
nokkur vandi fgrir hið svokallaða „sterkara
kgn“ að gera henni til hæfis, þegar hún er
fgrir alvöru orðin kvenréttindakona. Sem
svar við hinum spurningunum verður svo
hinn langþráði þáttur að duga,
þegar þar að kemur.
Eggjakökm (ommelettur)
verða léttari el þér notið
Vi teskeið (sléttíulla) al
ROYAL lyitiduiti á móti
hverlu eggL
Næst er þér steykið fisk
blandið ROYAL lyitiduiti
saman við raspið. Hið
steykta verður betra og
stökkara. Hæfilegt er að
nota ‘'j tsk. (sléttiulla) af
ROYAL lyftidufti á móti
30 gr. ai raspi.
Kartöflustappan verður
loftmeiri og betri ef 2 tsk.
(sléttiuUar) ai ROYAL
lyftiduíti eru hrærðar
saman við meðalskammt
Royal lyftiduít er
heimsþekkt gæðavara sem reynslan
hefur sýnt að ætíð má
Marensbotnar og annað gert
úr oggjahvitum og sykri verð-
ur ííngerðara ef ROYAL lyfti-
duft er notað. þannig: A móti 2
mtsk. (slétti.) ai sykri og einni
eggjahvítu komi Vj tsk. (sléttL)
td ROYAL lyitiduitL
NOTIÐ
Royal
Auk þess að vera
nauðsynlegt við bakstur,
er ROYAL lyftiduft ágætt við aðra matar-
gerð, t. d. við eftirfarandi:
Cfósapcrur
1000 stunda
fyrirliggjandi
13-22-40-60-82-109 wa.
Nu stendur yfir tími
heimboða og inniveru.
Athugið því að byrgja
heimilið upp af
OREOL
r af magnsper um.
Sendum gegn póst-
kröfu hvert i land
sem er.
MARS TRADING COMPANY H.F.
Klapparstíg 20. — Sfmi 1-73-73.