Vikan


Vikan - 14.01.1960, Page 13

Vikan - 14.01.1960, Page 13
— Iss, ég hlusta ekki á þetta píp. Haldiði, að ég nenni að fara að telja fram til skatts? Mér er fjandann sama, hvað þeir leggja á mig, þessir fírar. Ég hafði hvort sem cr engar tekjur, og það er ekkert af mér að hafa. Segiði þessum gægjum, að mér sé sama, ef ég fæ mitt brennivín, — hvað varðar mig um skatta og allt þetta hafurtask--------- — Þótt ég persónulega sé inipóneraður af klassískri list gríska tímabilsins, eru margir móderne listfræðingar, sem vilja meina, að arkaísmi hinna frumstæðari menningarskeiða sé engu minna interes- sant. Og víst er um það, að non-fígúratív túlkun yfirleitt er sýmpa- tísk í mínum augum, og það er raunar impressjónismi, fútúrismi og jafnvel dadaismi, ef menningarlegur bakgrunnur er rétt met- inn-------- Háttvirtu kjósendur. Eins og ég tók skýrt og greinilega frant við eldhúsdagsumræðurnar í gær, hefur Þjóðfylkingarflokkurinn aldrei verið gegnherílandi, og það er stolt okkar Þjóðfylkingarmanna að hafa aldrei verið það. Við teljum, að efnahagsmálunum verði ekki borgið nema með her, já, miklum herílandi, og að rekstrargrund- völlur útgerðarinnar verði ekki tryggður betur á annan hátt. Og viðvíkjandi því, sem háttvirtur G5. landskjörinn sagði — — — •— Það var nú öðruvísi í mínu ungdæmi, þegar ég var að alast upp vestur í Djúpi. —• Þá voru unglingarnir nú teygðir á árinni. Það er sem ég sjái, að eitthvað verði úr þessurn unglingum, sem hanga á sjoppunum. Ja, svei. — í mfnu ungdæmi hafði fólkið varla til hnífs og skeiðar og þótti gott. Þá dó varla nokkur maður, það ég man. Nú hrynur fólkið niður úr eymd og volæði. Já, þvílíkir tímar. Allt á leið til-------

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.