Vikan


Vikan - 14.01.1960, Side 30

Vikan - 14.01.1960, Side 30
sildarfarmurinn í lestinni braut stíuskilboSin;;-- — Ef ekki versnar enn, ættum við að hafa <>g seig út í annað borðið, og í stað þess aðíT*jþað af, sagði hann vongóður. létta sig aftur á kjöl, hallaðist Brimi enn^j' — Svo bezt, að nokkrum komi til hugar meir á hliðina, og þeir Sörin og Kristján ’ að leita okkar á þessum slóðum, svaraði lunnu fyrir borð — í hafið. Með herkjubrögðuin tókst Sörin að halda sér á floti. Hann náði taki á planka, en vissi, að þar var ekki nema um stundarhald að ræða. Hann hafði rekið spöl frá flakinu, og þegar hann svipaðist um, sá hann eitthvert dökkt < g lágt rekald skammt undan, ------ það hlaut í>ð vera björgunarflekinn. Hann náði að hon- cm eftir nokkur sundtök og tókst að klöngrast um borð i hann. Sem snöggvast varð honum að minnast þess, hve Franz gamli hafði alltaf fátið sér annt um þennan fleka og gætt þess vandlega, að frá honum væri gengið eins og vera bar. Nokkra stund lá Sörin endilangur á flekagólfinu og liafði smeygt höndunum i öryggislykkjurnar. Þetta var rammlega gerð- ur farkostur, botninn tvöfalt lag diggurra bjálka, hylkjum úr sterkum málmi komið fyr- ir á milli þeirra og borðstokkarnir úr korki, saumuðu innan í segldúk. Hann flaut vel, það var víst um það. Þegar Sörin liafði hvilzt i svip, varð hon- mn hugsað til félaga sinna. Hann settist upp (•g svipaðist um; Brimi var hvergi sjáanlegur. Cn allt í einu kom hann hins vegar auga á inann á sundi rétt við flekann. Það var Kristján. Eftir nokkur sundtök var hann kom- i'in svo nálægt, að Sörin gat náð lionum um I orð. Hann kastaði upp sjó nokkrum sinn- ■ n, en náði sér brátt. Annarra af skipinu > »rð ekki vart. — Við höfum heppnina með okkur, varð bórin að orði. — Það ber ekki á öðru, svaraði Kristján, án þess þó að nokkurs fagnaðar gætti i rödd hans. Sörin svipaðist lengi um, en kom ekki í .iga á neitt nema hvitfexta sjóina. Kristján. Það var orða sannast. Enginn hafði hug- mynd um, að þeir voru þarna staddir. Og það var hvorki vatn né vistir um borð i flekan- um. Það varð myrkt af nótt. — Ég held, að storminn sé að lægja, sagði Sörin, fyrst og fremst til að segja eitthvað. Kristján svaraði engu. Um nóttina lygndi nokkuð og dró úr sjó- ganginum. — Hvernig líður þér? spurði Sörin Kristján, jiegar dagaði. En Kristján svaraði ekki frem- ur en fyrr, starði kynlega á Sörin og þagði. Sörin tók af sér sjóliattinn, hálffyllti liann sjó og svalg nokkra sopa. Ekki var það bragðgóður drykkur, en svalaði þó sárasta þorstanum í bili. Hann var máttvana og hungraður, en lifsvonin jafnsterk og áður. Hann rétti Kristjáni hattinn. — Fáðu þér sopa, sagði hann. — Það er skárra en ekki. Kristján reis skyndilega upp til hálfs, greip i öxl Sörin og hratt honum harkalega frá sér. Sörin náði þó jafnvæginu, stillti sig, fyllti sjó- hattinn enn til hálfs og rétti að Kristjáni. — Það eru margar síldarskútur hérna á mið- urium, svo að það liður varla á löngu, áður en einhver þeirra kemur i námunda við okk- ur. Og þá ætla ég mér að vera á lífi, lags- maður. Nú tek ég við stjórninni, og þú verð- u r að sætta þig við að gera eins og ég segi þér. Að svo mæltu tók hann í hnakkadrambið á Kristjáni og lét hann lúta að haltinum. Og svo fór, að Kristján lilýddi honum og drakk. — Þú verður að herða upp hugann, Kristján, mælti Sörin enn. — Maður getur lifað án matar, svo að dögum skiptir. Við erum ungir, hraustir og ómeiddir. Við höfum verið furðulega beppnir. Það er blátt áfram skylda okkar að gera allt, sem í okkar valdi stendur, til að hafa þelta af. Kristján þagði, gerði aðeins að stara á hann hatursaugum. Það var bersýnilega gagnslaust að .eiga orðastað við hann. Þegar á daginn leið, sótti svefn svo fast á Sörin, að hann gat ekki með neinu móti haldið augunum opnum. Hann blundaði, cn rétt í svip, að honum fannst, •— hrökk upp og glaðvaknaði við það, að Kristján stóð yfir honum, laut að honum, og svipurinn á and- iiti hans var þrunginn ólýsanlegu hatri. — Fái ég ekki að njóta Þórdísar, skal ég sjá svo um, að þú njótir hennar ekki heldur, bvæsti hann. Það blikaði á bnif i reiddri hendi hans. Sörin hugsaði sig ekki um. Hann sló, snöggt og fast. Hann fann til sársauka, þegar hnúar lians snertu hnifseggina. Um leið skall hnefi Kristjáns á kjálka hans. Þeir liöfðu oft tekizt á, oft slegizt, en venjulega græskulitið, eins og títt er um sterka og fjörmikla stráka. En að þessu sinni var gamanið grárra. Sörin fór ekki í neinar grafgötur um það, að nú var um líf og dauða að‘ tefla. Og loks hafði liann það af að brjóta Kristján á bak aftur. Hnif- urinn féll úr hendi hans. ^örin blés mæðinni. Hann var að niðurlot- um kominn eftir átökin. En ekki mátti hann láta það á sig fá. Hann þreif hnifinn og kastaði honum fyrir borð. Nóttin var myrk og löng. Það var erfitt að halda sér vakandi. En Sörin vissi, að undir ]jví var líf hans komið. Það leyndi sér ekki, að Kristján var ekki lengur með réttu ráði. Og enda þótt hann virtist enn sljór og mátt- vana eftir átökin, þá var því ekki að treysta. Það var annars einkennilegt, þetta ásig- koinulag hans. Hann virtist ómeiddur með 10 V IK A N

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.