Vikan - 28.07.1960, Page 3
Aðrir voru úti á landi við laxveiðar
segir „reiður
Reykvíkinffa.
viðlátnir — sumir einhversstaðar úti í löndum,
var mér fortalið, aðrir einhversstaðar úti á
landi við laxveiðar eða eitthvað þessháttar, sem
slikum embœttum virðist fylgja, og ekki vænt-
anlegir fyrr en eftir viku, hálfan mánuð eða
jafnvel mánuð. Ég varð því að snúa heim aftur
án þess að geta lokið erindunum nema að sára-
litlu leyti; hafði sem sé sama og ekkert upp úr
krafsinu nema tímatöfina og kostnaðinn, sem
varð mér hvort tveggja alltilfinnanlegt. Svona
er nú sagan sú, og hún er ljót, en verst þó að
hún skuli vera dagsönn ...
Þakku birtinguna.
Reiður útkjálkakarl.
Bréfið er lengra, en rúnisins vegna urðum
við að sleppa mergjuðustu skömmum karls-
ins, ásamt fyrirspurnum um hvort slíkir
ráðamenn geti tekið sér frf eftir því sem þeim
gott þykir og þurfi ekki að taka minnsta til-
lit til almennings, sem á ýmislegt til þeirra
að sækja. Þessu getum við ekki svarað, en
vitum það hins vegar af eigin raun, að því
miður er talsvert hæft í þvf sem karlinn er
að rausa um, og ekki að ástæðulausu, eins og
hann segir. En hvað sem þessu líður, þá ætti
ráðamönnum stofnana og fyrirtækja að vera
vandkvæðalaust að sitja einhvern af undir-
útkjálkakarl“ í bréfi um sumarleyfi
mönnum sfnum í sinn stað, svo aðkomumenn
geti rekið erindi sitt, en þurfi ekki að koma
aftur og aftur eins og víða vill brenna við.
HEIMTUÐU MAT OG KAFFI UM
MIÐJA NÓTT ...
lværa Vika.
Þessi sveit komst í akvegasamband við um-
heiminn fyrir ári síSan. í suraar hefur komið
hingað margt ferðamanna, flestir úr Reykjavlk.
Nokkra hefur borið að garði hjá mér, þótt ég
búi ekki beinlínis 1 þjóðbraut, og yfirleitt allir
verið hinir prúðustu.
En um daginn brá út af því. Við hjónin vor-
um vakin upp um miðja nótt af útúrfullu fólki,
sem kom akandi í lúxusbíl. Þrennt af þessu
fólki — tveir karlmenn og ein miðaldra kona
— höfðu einkum orð fyrir þessu ferðafélagi og
af litilli kurteisi, heimtuðu heitan mat og kaffi
og hóldu vist að okkur bæri einhver skylda til
að láta það umyrðalaust í té vegna þess, að þau
veifuðu hundraðköllunum og kváðust rétt svo
sem ekki vera að sníkja. Þegar ég sagði að það
fengi hvorugt — mundi liafa reynt að verða
við beiðni þess, ef það hefði farið að mér af
svolítið meiri kurteisi og ekki verið svona útúr-
drukkið, reiddist þetta fólk, miðaldra konan þó
sérstaklega, jós yfir mig skömmum og fúkyrð-
um — og hötaði að kmra mig. Bkki veit éc
fyrir hvað, og ef einhver hefði haft ástæðu ttl
að kæra, mundi það öllu heldur hafa verið ég.
Hingað hefur að vísu komið áður og siðar
fólk, sem var með vini, en það hefur hagað sér
vel engu að síður. Bið ég þig um að birta þetta
bréf, ef það mætti verða fólki til aðvörunar;
það má vita að eftir sliku er munað.
Virðingarfyllst.
Bóndi.
Bréf þetta þarf ekki neinna skýringa við. Of
svona til bragðbætis birtum við hér eitt
rómantiskt bréf . . .
FINNDU FYRIU MIG HANN EINAR
Á GRÁA MOSKVÍTSINUM ...
Kæra Vika mín.
Gerðu mér nú greiða, sem ég skal alltaf muna
þér. Svo er mál með vexti að ég þarf nauðsyn-
lega að ná sambandi við ungan mann, dökk-
liærðan á bláköflóttu vesti, sem ekur gráum
moskvítsbíl og heitir Einar. Við kynntumst
lítillega eitt kvöldið i Mývatnssveitinni í sumar,
þegar ég var þar í sumarfríinu, en billinn hans
stóð niðri á vegi, svo að ég sá ekki númerið.
Viltu birta þetta bréf og segja honum, að þetta
hafi allt verið misskilningur og ég fái enga ró
fyrr en liann hefur talað við mig. Með fyrir-
fram þökk.
Þín Adda.
Ef þú skyldir lesa þessar línur, Einar sæll,
treystum við þér til að hafa samband við
hana Oddu, svo að þessi misskilningur megi
leiðréttast og hún megi aftur hljóta ró, Það
er alltaf leiðinlegt þegar vinslit verða eða
slitnar upp úr kynningu fyrir tóman mis-
skilning. Hafðu því samband við hana, svo
þið getið komið þessu á hreint.
HÚSBYGGJENDUR!
Athugið að þér sjiarið tíma, fé og fyrirliöfn með því að hlaða hygging-
una úr HLEÐSLUHOLSTEINUM ÚR SEYÐISHÓLAGJALLI eða SNÆ-
FELLSNESSVIKRI.
Ath: Verkfrœðilegar upplýsingar fúslega veittar.
Munið einnig okkar viðurkenndu VIKURPLÖTUR, 5, 7 og 10 cm á
þykkt 50x50 cm, til einangrunar í milliveggi.
Sendið teikningu eða riss af byggingunni. — Sendum yður verðáætlun
um hæl.
Getuin afgreitt gangstéttarhellur, 20x40 cm 9 cm á þykkt, heppilegar
í lagningu á ýmiskonar form, sbr. mynd.
Seljum einnig:
Malað Seyðishólagjall i gangstíga og
heimkeýrslur.
Vikursand sigtaðan og ósigtaðan.
Vikurmöl og fleira.
VIKURFÉLAGID N.F.
Hringbraut 121 — Sími 10000 (5 linur).
V i K A N
3