Vikan - 28.07.1960, Síða 4
Hér höfum við eitt frægasta hótelið á Miami Beach: Hótel Fontainebleu. Það myndar
boga umhverfis afar skrautlegan garð með sundlaug og sólbaðsskýlum. Hótel
Fontainebleu er eitt af dýrari hótelunum, þar búa vellauðugir bisnismenn og auð-
kýfingar, sem reyna að leita afslöppunar fjarri stórborgunum.
Það er óhætt að segja, að sjónvarpsstjörnur og kvikmyndaleikarar séu frægasta fólk
Bandaríkjanna. Þótt langt sé frá Hollywood til Miami Beach, þá er þar ævinlega
fjöldi leikara. Hér er Steve Allen, fræg sjónvarps- og kvikmyndastjarna. Hann er
þarna ásamt konu sinni.
MIAMI ER GULLSTRÖND BANDARlKJ-
ANNA. ÞANGAÐ KOMA HEIMSKUNNAR
HOLLYWOODSTJÖRNUR OG
MESTU AUÐJÖFRAR LANDSINS. SÓL-
BRÚNAR ÞOKKADÍSIR SKREYTA STRÖND-
INA KLÆDDAR DÝRINDIS BAÐFÖTUM,
SEM ERU ALLT AÐ ÞVÍ FIMM
ÞÚSUND króna virði. og ekki eru
KJÓLARNIR ÓDÝRARI! ... EN EITT ER
VÍST, AÐ MÖNNUM VERÐUR LÍTIÐ
UR HVÍLD í MIAMI, ÞÁTT ÞAÐ HAFI
UPPHAFLEGA VERIÐ ÆTLUNIN ...
4 ;
yiKAN