Vikan - 28.07.1960, Side 5
Paradísarströndin Flórída,
landi lífsgleoinnar
MIAMI BEACH paradísarströndin í Flórída
landi lifsgleðinnar ....
Miami Beach er geysilöng landræma, sem
liggur meðfram Flórídaströnd og er tengd
ströndinni með nokkrum löngum brúm, sem
kallaðar eru „causeways“. Á þessari mjóu land-
ræmu er baðströndin, sem allir kannast við.
Þetta er fullkomin sumarparadis, heiðblár him-
inn, hvitar strendur, tært vatn, rómantiskir
pálmar og' fallegar stúlkur. Sérhverjum hátt-
settum og efnuðum manni ber breinlega nú
orðið að hafast þarna við í nokkrar vikur á
ári hverju, annaðhvort á Miami Beach eða i
sjálfri borginni Miami, sem liggur á móts við
baðstaðinn fræga.
1 Báðir þessir staðir eru orðnir eftirsóttustu
baðstaðir i heimi, og gistihúsunum hefur skot-
ið upp, eins og gorkúlum siðustu 10—15 árin.
Á Miami Beach einni er 381 gistihús, þar sem
svæði, sem er á stærð við Reykjavík, búa
54 þúsund manns. Samkeppnin milli Miami
og Miami Beach er ákaflega hörð. Öllum
klækjum er beitt til þess að laða ferða-
menn til beggja staða. Sem stendur hefur
Miami Beach betur, þótt Miami geti státað af
betri samböndum við umheiminn. Járnbraut-
in, höfnin, flugvöllurinn eru eins góð og
frekast verður á kosið, og ef vel er að gáð,
má sjá, að í bænum tíðkast ýmsar erfðavenjur,
þóttir borgin sé ung miðað við borgir á meg-
inlandi Evrópu.
Miami Beach auglýsir af kappi nýjustu gisti-
húsin, hina notalegu klúbba, glæsilegustu
verzlanirnar og fallegustu konurnar.
Þarna halda Bandaríkjamenn til þess að
hvíla sig og lifa þar i öllum lífsins lystisemd-
um. En mönnum vinnst enginn tími til hvíld-
ar ef þeir ætla að fylgjast með fjöldanum.
sem er á ferli dægrin löng.
Forstjóri nokkur, sem hefur verið skipað
af lækni sínum að hvíia sig, lifir þægilegu
lífi í þessari paradís: Áður en hitnar i veðri,
leikur hann hinn vinsæla boltaleik, sem upp-
runninn er á Norðvestur-Spáni. Boltanum er
fleygt i stóran vegg og sprettur til baka. Kúnst-
in er sú að snúa boltanum og kasta svo fast,
að andstæðingurinn geti ekki gripið hann.
Þessi leikur heitir pelota og var upprunalega
leikinn með berum höndum. En nú á dögum er
boltanum slöngvað með tæki, sem líkist einna
helzt langri brauðkörfu.
Stuttu síðar getur hann farið og horft á
liundaveðhlaup og legið í fjörunni og notið
sólarinnar. Ef til vill má hann vera að
þvi að láta nudda sig á meðan hann liggur
makindalega á legubekk og lætur stjana i kring-
um sig. Siðan verður hann að fara að verzla
með konunni sinni. Hann fer í verzlanir við
Lincoln Road, sem er aðalgata borgarinnar,
og þar úir og grúir af alls kyns fólki. Þarna
Það eru ekki sízt synir
og dætur auðugra manna, sem
leggja leið sína til
Miami Beach.
Synirnir eru þá venjulega þekktir
sem „playboys‘*: Þeir haía
fullar hendur fjár; aka í
sportmódeli af evrópiskum bíl og
leggja stund á kvenna-
veiðar og alls konar skemmtanir.
VIKAN
Meira
um
Miami
Beach
F
I
næstu
opnu