Vikan - 28.07.1960, Side 10
Val sálnahirðisins
IX osningar eru í eðli sínu hitamál. Þeir eru
margir, sem. komast í liáspennu um al-
þingiskosningar, og bæjarstjórnar- eða
hreppsnefndarkosningar eru oft engu siðri
að því leyti. Þó tekur út yfir prestskosn-
ingum. Val sálnahirðisins er slíkt hitamál,
að halda mætti að aðaláhugamál sóknarbarn-
anna væri að sækja helgar tiðir.
Nýlega birtist í finnsku blaði grein um
prestskosningar i Finnlandi. Hún var rnjög
athyglisverð fyrir þær sakir, að prestskosn-
ingar hjá þessari nágrannaþjóð virðast að
mörgu leyti vera spegilmynd af þvílíkum
kosningum hér á landi. Sýnir það vel, að
hugsunarháttur þessara norrænu þjóða er
mjög líkur, þrátt fyrir það, að þjóðirnar eru
annars óskyldar.
í greininni segir meðal annars svo:
„Ef kirkjusókn og safnaðarstarf er haft
fyrir mælikvarða á kristnina, er vist liægt
að segja ineð sanni, að Finnar séu i flokki
hinna ókristnustu þjóða heimsins. Að visu
sækja menn kirkju um jól og páska og ef
um einhverjar einstakar athafnir er að ræða,
en að jafnaði er kirkjusókn mjög léleg, að
minnsta kosti þegar tala sóknarharnanna i
heild er borin saman við tölu kirkjugesta.
En fyrir utan stórhátíðir er aðeins einn
atburður, sem megnar að draga fólkið að
kirkjunni. Þessi atburður er prestskosning í
söfnuðinum. Einhver kaldhæðinn hefur sagt,
að sálarfjandinn hafi i prestskosningum
fundið kirkjulegt vinnusvið. Prestskosningar
i Finnlandi eru lýðræðislegar, allir með-
limir safnaðarins, sem kosningarétt hafa,
eiga rétt á að greiða atkvæði.”
Siðan er í greininni tekinn upp kafli lír
kirkjulögunum, þar sem tilgreint er á ákaf-
lega uppskrúfuðu máli og liátíðlegu, hvernig
lausar prestsstöður skuli auglýstar og eins
hvernig umsækjendur skuli fara að. Þeir
sem sækja um viðkomandi brauð, eiga sem
sagt að halda reynslupredikanir þrjá sunnu-
daga í röð. Svo kemur lýsingin á kosning-
unni;
„Herra N.N. hefur um langan aldur gegnl
prestsskap i kirkjusókn ABC. Hann lætur af
störfum fyrir aldurs sakir og embættið er
auglýst. Frainbjóðeiidur predika þrjá sunnu-
daga í röð i kirkjunni eins og lög mæla fyrir.
Ahugiiin er geysilegur. Þar er gamli sóknar-
presturinn, presturinn úr nágrannasókninni,
sem margir þekkja og annar úr fjarlægari
sókn. Kirkjan er troðfull og þar sjást aiicllit,
sem annars eru sjaldséð jiar.
Nú skal prcstsefnið sýna söfnuðinum það
svarl á hvítu úr predikunarstólnum, hve
fráhær ræðumaður hann er og vel til jiess
fnllinn að gegna hlutverki sálnahirðisins og
sálusorgarans.
Tæplega nokkur söngvari, leikari eða lista-
maður verður að þola svo mlsktmnarlausa
gagnrýni sem þessi vesalings maður. Það
þarf vissulega stáltaugar til að stauda frammi
fyrir slíkum áheyrendum. Prestsefnið
getur gert ráð fyrir þvi sem visu, að hluti
álieyrenda er fyrirfram á móti honum. Þar
eru menn, sem eru sannfærðir um, að ein-
hver annar frambjóðandi er sá eini rétti til
að gegna því útvalda embætti. Hann veit, að
í hópnum cr cinnig fólk, sem ákvcðið er í
því að styðja hann gegnum þykkt og þunnt
og fagna þvi sem liann segir i stólnum, eða
þá að minnsta kosti, hvernig hann segir það.
Guð hjálpi frnmbjóðanda i jieirri útvöldu
sókn, sem hefur verið svo óheppijjn að fá
kvef. Eftir messuna heyrist úr öllum áttum:
Hann getur nú ekki einu sinni tónað þessi.
Guð hjálpi einnig þeim, sem talar um
kristindóminn og þýðingu hans fyrir nútim-
ann og menninguna, þegar menn höfðu kom-
ið og búizt við ósvikinni gamaldags dóms-
dagspredikun.“
Siðan er talað um kosningabaráttuna og
áróðurinn. Þar er engin hálfvelgja i hlut-
Framhald á bls. 33,
HVERS VEGNA SKILJA HJÓM?
Fyrr á tíð voru hjónabönd ósjald-
an ókveðin án þess að spurt væri
um tilfinningar brúðar né brúð-
guma. Aðrar hagnýtari ástæður
voru teknar fram yfir ástina. Marg-
ur hefir eflaust unað illa við hlut-
skipti sitt, en sætt sig við það samt
og sýnt börnum og maka fulla
tryggð og skyldurækni. Nú má það
teljast viðburður, ef fólk er neytt
í hjónaband. Ást og sjálfsvild ráða
öllum giftingum. Samt eru hjóna-
skilnaðir mjög tiðir.
|-|vað veldur því, að hjónaband,
sem spunnið er eingöngu af
hinum sterka toga ástarinnar, rofn-
ar?
Auðvitað keinur ófullkoinleiki
mannsins fram í ást hans eins og
öðru atferli. Fólk með alls konar
skapgerðargalla, taugaveiklun, geð-
villu, geðveiki og glæpatilhneig-
ingu gengur í hjónaband, og ást
þess ber svipmót þessarar veiklun-
ar. Hún er hvorki nógu fórnfús tll
þess að setja eigingirninni hæfi-
leg takmðrk né nægilega umburðar-
lynd gagnvart göllum makans.
Þannig fléttast skapgerðargallarnir
inn í daglegt samlíf; spilltar og
sjúklegar hvatir, óheilt og grunn-
fært tillinningalíf, slappur vilji og
likamleg ólireysti. Við slikt elds-
neyti kulnar glóð ástarinnar fljótt.
^st veillar skapgerðar megnar
ekki að færa jiær fórnir, sem
hjónabnndið krefst. Og jafnvel hið
ástrikasta hjónaband krefst fórna.
Ýmsum skapgerðarveilum fylgir
skefjalaus eigingirni, sem gerir
makann litt hæfan eða óhæfan til
þess að rækja skyldur sinar í
hjónahandinu og í samfélaginu.
f mörgu hjónabandi verður engr-
ar misfellu vart, fyrr en ómegð
fer að valda kostnaði og takmarka
þannig frjálsræði foreldra til
skenimtana og annars munaðar. Sú
tilfinning er að breiðast út, að
Inirnið sé foreldrum sínum byrði,
sem jiau eigi rétt á að losna við.
Þessi tilfinning ásamt hinni
ökonomisku jireytu ýta undir
mnrgan heimilisföður að draga sig
í hlé frá ómegð, sem annas myndi
hægja homim frá kostnaðarsöinum
nautnum og skemmtunum. Rétt til
þessa liefir liann tryggt sé með lög-
gjöf, sem gerir honum nokkurn veg-
inn jafnfrjálst að yfirgefa afkvæmi
sín eins og gerist lijá karldýrum
annarra tegunda. Enn um skcið býr
konan við minna frjálsræði í þessu
efni.
ÞRIÐJA FRÚ.
C amfélagsþróunin stefnir að upp-
** lausn hjónabandsins. Með
ismeygllegum áróðri er leynt og
Ijóst lialdið að fólki tækifærum til
frjálsræðis og aukins munaðar, sem
því bjóðist, ef það aðeins smeygi
af sér hnappheldu hjónabandsins
og varpa af sér framfærsluoki barn-
anna. Tíðarandinn gengur eindreg-
ið i þessa átt. Sá hópur verður
ávallt l'jölmennari, sem þykir fint
eða að ininnsta kosti interessant að
skilja, en dálitið sveitó að láta æsku-
ástina endast til æviloka. Fjöldi
fólks villist inn í hjónaband fyrir
10
VIKAN