Vikan - 28.07.1960, Page 31
Ennþá eitt tækifæri
Framhald af bls. 16.
— Blessuð farðu inn og lagaðu þig til, sagði
ég í bræði. — Ég veit ekki hvað hann Páll
mætti halda, að þú skulir koma til borðs svona,
með hárnálar um allt höfuðið.
— ÉR ætla í bió með Árna i kvöld, svaraði
Margit og setti uj)p spekingssvip. — Og hann
er eins mikili með sig og Páll, bætti hún við
og brosti stríðnislega.
Páll varð hálf vandræðalegur á svip.
— Hvað gerir það til, þótt Margit sé með
hárnálar, sagði hann kindarlega.
Margit leit til mín sigri hrósandi og reigði
höfuðið, eins og lnin hafði séð kvikmynda-
stjörnur gera.
En áður en ég fengi sagt nokkuð, kom
mamma inn.
— Maturinn er til reiðu, tilkynnti hún.
— Gerið nú svo vel að koma öll saman, og þú,
Margit, getur hjálpað mér að bera inn.
Við Páll lukum úr glösum okkar, en vorum
þó ekki eins fljót og pabbi. Þegar hann kom
inn, tók hann sitt í einum teyg, um leið og
hann tautaði eitthvað um ótímabær uppátæki.
Ég kveikti á kertunum á borðinu og við
settumst kringum það. En þá kveikti pabbi
líka loftljósin, — svo hann sæi til að borða,
sagði hann.
— Þegar maður fær eitthvað svo sjaldgæft
sem steik, til að stinga gafflinum i á virkum
dögum, ættum við ekki að þurfa að þreifa
okkur áfram i myrkri, sagði hann og var
ákveðinn.
Ég beið með samanbitHar varir, þamgað til
allir höl'ðu tekið á diska sína. Þá reis ég upp
með festu og slökkti ljósið í loftinu.
Pabbi andvarpaði með undirgefni og sneri
sér að matnum. — Ef Ef hún Ánna litla vill
hafa eitthvað svona, þá verður það avona. Hún
hefir járnvilja, og svo skuluð þér ekki koma
og segja, að ég liafi ekki viðvarað yður, ungi
maður.
— Pabbi, hættu þessu, stundi ég. Ef þessu
fór fram, hlaut Páll að halda, að liann væri
nú þegar skoðaður sem tilvonandi teugdason-
ur.
— Jæja, heitir það nú „pabbi“ i kvöld. í
fyrsta lagi verð ég að fara í sparifötin, í öðru
lagi verðum við að borða i stofunni, í stað
þess að snæða i eldhúsinu, eins og vant er,
og loks er ég kallaður „pabbi“ i staðinn fyrir
„pabbi gamli“. Kæri, ungi vinur, ég vona
einlæglega að þér virðið alla þessa viðleitni.
Fyrri kunningjar Önnu liafa ekkert liaft af
henni að segja.
— Og ekki minir heldur, skaut Margit inn
í og krísti í henni.
Ekki veit ég hvað orðið hefði, ef mamma
hefði ekki farið að spjalla um alla heima og
geima. Ég var aldheit í vöngum og átti erfitt
með að verjast gráti. Það var eins og hjarta
mitt ætlaði að bresta, þegar ég sá vanþóknun-
arsvipinn á Páli.
Það var dauft yfir öllum, þangað til snæð-
ingi lauk. Samræður voru slitróttar og leit
ekki út fyrir að Páli liði vel. Ég varð að reyna
að koma honum brott héðan.
Eftir kvöldverðinn bauðst hann lil að hjálpa
mér sjálfur við uppþvottinn, en mér tókst að
keatast burt meS ha*», áður ■■■■i gat
skotið nokkru orði inn í.
— Margit getur hjálpaf þér, flýtti ég mér
að segja.
Svo sneri ég mér að Páli: — Við skulum
aka spottakorn og fá okkur ferskt loft.
Páll sagði ekkert meðan við gengum niður
stigann. Hann hjálpaði mér kurteislega inn
í bílinn, en gerði það þó eins og annars hug-
ar. Við ókum lengi þegjandi, þangað til ég gat
ekki lengur orða bundizt.
— Jæja, sagði ég þá, — nú ertu sjálfsagt
kominn á þá skoðun, að þetta hafi allt verið
misskilningur með mig ?
Hann leit snöggt til mín, svo hélt hana
áfram að stara á veginn fram undan sér.
— Já, svaraði hann lágt. — Ég er hræddur
um að það hafi einmitt verið þetta, sem ág
var að velta fyrir mér, Anna.
— Ég varaði þig við, sagði ég alveg utan
við mig. — Undir eins þegar við vorum saman
úti í fyrsta skipti, sagði ég þér að við værum
allt annað en efnaðar manneskjur.
— Já, og það kunni ég vel að meta, svaraði
liann. — Þú varst svo hreinskilin og heiðar-
leg, svo tilgerðarlaus. Ég lét mér ekki til hug-
ar koma að þú . . . að þú skammaðist þin
fyrir fjölskyldu þina.
Ég reyndi að svara, en fór að hugsa mig
um. Það var ekki fjölskylda min, sem Páll
var að finna að. Það var ég sjálf, sem hann
var ekki ánægður með. Allt i einu varð ég
fjúkandi vond.
— Er þaf ekki von að ég skammist mín
Framhald á bls. 38.
með hinum bragðgóðu
honig búðingum
ROM
VANILLA eða
SÚKKUKAÐI bragð
^f-aist
í naífiu matoituhúd
TRAUST MERKI
Heildsölubirgöir
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
Góður vörubíll þolir mákvíeuaa athugua. Kyanið yður HákvaatM-
lega uppbyggingu og efnisval í Scania-Vabis vörubilunuaa.
SCANIA SPARAR ALLT NEMA AFLIÐ
Söluumboð:
Arni Arnason
Ilamarsstíg 29.
Sími 22H2 — 1155.
Aðalmab»8:
ÍMAIt\ H.F.
Klapparstíg 27.
Sími 1727« — 15670.
V I K A JS
31