Vikan - 10.11.1960, Blaðsíða 34
Umhverfis jörðimi
á So dögum
Járnbrautarferöalagiö yfir Ameríku gekk misjafnlega og var l meira lagi
ævintýralegt. Þegar allt um ýraut var siglt eftir járnbrautinni á vagni,
sem knúinn var vindinum einum.
1 myndinni úir og grúir af frcegum stjörnum. Hér sjást nokkrar og lengst
til vinstri er Mexíkaninn Cantinflas, sem leikur hinn dygga þjón Passer-
partout. Þá kemur sjálfur Fhileas Fogg og þaö er David Niven, sem
leikur hann. Meö þeim á myndinni eru Marlene Dietrich og Frank Sinatra,
sem leika aukahlutverk í myndinni.
Tripolibíó sýnir um þessar mund-
ir liina stórfrægu mynd „Umhverfis
jörðina á 80 dögum“ eftir sam-
nefndri sögu Jules Verne. í fyrra-
vetur var sagan flutt í útvarp í leik-
formi og er hún öllum íslendingum
í fersku minni síðan. Það er sem
fyrr, að sjón er sögu rfkari og enda
þótt sýningartími myndarinnar sé
náfægt þrír tímar, er sá timi fljót-
ur að lfða fyrir þann ,sem fylgist
með ævintýralegu ferð'atagi herra
Phileasar Fogg og þjóns hans,
Passepartout.
Myndin er álíka ævintýrafeg og
saga Jules Verne. Mike Todd, mað-
urinn sem stóð bak við töku mynd-
arinnar sparaði ekkert til. Heims-
frægar stjörnur sjást fleiri í þessari
mynd en nokkurri annarri, sem hér
hefur verið sýnd. Þar leika hvorki
meira né minna en 50 ])ekktir leik-
arar, e nalls koma fyrir í mynd-
inni 68.894 persónur. Til þess að
taka mvndina þurfti að fara kring-
um jörðina og taka mvndir í 13
iöndum. Á þeim ferðalögum var
flogið fjórar milljónir mílna og
100 þúsund heitar máltfðir fram-
reiddar fvrir leikara og myndatöku-
menn. Við kvikmvndatökuna á
Spáni og f Frakklandi voru veittar
8972 flöskur af víni til að skola
kverkarnar milli máltíða. Meðan á
upptökunum í London stóð, drakk
kvikmyndafólkið 4.220 könnur af
te. f myndinni koma fyrir 34 mis-
munandi tegundir dýra og samtals
7595 dýr.
David Niven liefur útlit, sem
virðist passa einstaklega vel fyrir
hinn stifa Breta, Phileas Fogg.
Hinsvegar mætti málrómurinn vera
settlegri og talandinn hægari og
virðulegri, svipað því sem Mac
Millan talar. Þjónninn Cantinflas
verður ógleymanlegur hjá Maxíkan-
anum Cantinflas, sem Chaplin segir
að sé mesti skopleikari heims. Hann
hefur ekkert feikið utan heima-
lands síns fyrr en í þessari mynd.
Aondu prinsessu leikur Holly-
v.'oodstjarnan Shirley Mc Laine.
Hlutverkið krefst ekki mikilla
átaka og er mjög slétt og fellt i með-
förum hennar, en talsvert vantar
upp á, að útlit he-nnar geti talizt
indverzkt, eins og þó á að vera.
Robert Hewton leikur fylgifiskinn
Fix lcynilögreglumann og er tals-
vert gert til þess að hann verði
kómisk aulapersóna með ytra útlit,
sem minnir á Sherlock Holmes.
Stjörnur eins og Frank Sinatra og
Fernandel koma fyrir í smáhlut-
verkum og sömuleiðis Charles
Boyer, Martine Carol, Noel Covard,
Cesar Romeo, Marlene Dietricli og
Louis Miguel Dominguin. ★
Passerpartout i Indíánaíhasnar. Þeir
reyndu aö komast upp i lestina, en
þjónninn fór í örvadrífunni upp á þak
lestarinnar til þess aö freista þess
aö komast í fremsta vagninn.
EINKAUMBOÐ - AKURFELL - Hallveigarstíg 9 Sími 24966
270 L.
Ég vissi að GRAM var þinn óskadraumur
34 VIKAN