Vikan


Vikan - 29.09.1960, Síða 29

Vikan - 29.09.1960, Síða 29
allt fór aldrei í fötin mín.“ „Nú, livernig var þetta þá saman?“ „Já, og ég flýði aldrei út úr hús- inu.“ Nú greip Júlli fram i: „Heyrðu Gísli. Ertu að spila með oklair eða hvað? Hvernig var með þennan draugagang?“ ,;Það var aldrei neinn drauga- gangur.“ Andlitið á Palla lengdist um þriðjung. „Ætlarðu að segja mér, að þú haf- ir verið að ljúga okkur fulla?“ „Lygi, það er stórt orð.“ Lækn- irinn kímdi. „Þið vildnð fá drauga- sögu, eða jafnvel ævintýri á borð við Þúsund og eina nótt. Nú hef ég lagt fram minn skeijf. Þá er ykkar hlutur eftir.“ Við vorum eitthvað einkennileg- ir innan um okkur, það sem eftir var kvöldsins, allir nema læknirinn. Hann lék á als oddi. Og svo mikið er víst, að sögurnar urðu ekki fleiri þetta kvöldið. Við .Túlli urðum samferða heim um kvöldið. Hvorugur sagði orð alla leiðina, við létum frúrnar hafa fyrir þvi að halda uppi samræðum. Þegar við kvöddumst, sagði Júlli: „Og ég trúði þessum þvætting eins og nýju neti! Mikill bölvaður refur er lækn- irinn!“ tAt Barnaqaman Trrnmhalcl af bls. 22. rumdi í tröllapabba. — Ég hlakka lika til að siá hau, sagði trölla- mamnia. — Heldurðu virkilega að þau hurfi að vera hurtu i tvær heil- ar vikur? Það er nú dálitið frekt, að foreldrar skuli eiga að vera án harna sinna svo lengi. — .Ta. hetta eru siálfsagt reglur, saaði tröllanahhi. — en þær eru ekki alveg réttmætar. Svo var komið kvöld, og þegar tröllapahhi og tröllamamma voru húin að horða. sátu hau án hess að segia nokkuð, þangað til tröllanahhi saaði: — Ég held hetta ekki út Tengur. Það er svo kyrrt hérna að mér er illt i eyrunum. Manstu hvað hað var skemmtilegt þegar allir krakkarnir hrópuðu og æptu og vildu ekki fara i rúmið, og þegar þau komu hlaunandi til að fá nýj- ar dýnur af þvi að þau höfðu rifið göt á hinar. — .Tá, og hvað það var skermmti- legt, hegar dúnninn sveif um alTt, svo við gátum næstum því ekki séð hvort annað, sagði tröllamamma hryggri röddu. — Eigum við að láta taka börn- in svona frá okkur? sagði trölla- pabbi. — Nei, þú hefur rétt fyrir þér. Þessi heimski skólakennari fékk mig til að ... .íseja, það er húið og gert. Nú fer ég og krefst þess að fá börnin min aftur, sagði trölla- mamma, og svo stakk hún halan- um i svuntuvasann, svo að hún dytti ekki í honum, og fór. Þegar hún var hálfnuð til borg- arinnar, mætti hún skólakennaran- um. Hann ætlaði að segja eitthvað, en hún varð á undan. — Ég krefst þess, heyrið þér það; ég krefst þess að fá börnin min til baka eins og skot ... Það er gott að þér takið þessu svona, sagði kennarinn, — því að þau hafa verið send til baka frá sumarleyfistjaldbúðunum, og nú sitja þau öll inni í eldiviðarskúr, ef þau eru þá ekki búin að rífa hann niður, ég skal nefnilega segja yður, að ... En tröllamamma var hlaupin í burtu. Kennarinn losnaði við að segja það, að þau höfðu verið svo óþæg í tjaldbúðunum að ekki var hægt að hafa þau þar. Tröllapabbi stóð og tólc á móti þeim þegar tröllamamma kom heim með krakkana fjórtán. Hann grét af gleði. Þau þutu strax inn í stofu og veltu um horðinu, sem matarstellið stóð á, vel saman límt og næstum því eins og nýtt. — Nei. heyrið þið nú, sagði tröllapabbi ... ' — Það gerir ekkert til, sagði tröllamamma, — það getur ekki ver- ið til endalaust. Eftir þann dag fóru tröllabörnin aldrei í sumarleyfi. ★ Þekktu sjálfan þig Framhald af bls. 11. tímum er betta breytt. Hjá miklum fjölda þjóða krefst nauðsynjafram- leiðslan aðeins lítils hluta fram- leiðslugetunnar. Meginframleiðslan er óhófsvarningur. Höfuðvandamál nútímaframleiðslu er ekki það, hvernig takast megi að fullnægja daglegri þörf okkar, heldur hitt, hvernig vaktar verði hjá okkur sýndarþarfir og við skjótast vanin á þann óhófsmunað, sem samsvari framleiðslugetunni hverju sinni. Auðsöfnun og fullkomin hagnýt- ing auðsins hafa ekki alltaf átt sam- leið. Hinn glitrauði fjársjóður, sem var rammlega læstur inn í fjár- hirzlu Midasar, var glatað haugfé. En peningurinn, sem veltur, ávaxt- ast og margfaldast, og þó því aðeins, að manninn hungri og þyrsti allt eins sárt eftir munaði eins og dag- legum mat og drykk. Ef við nsettum okkur öll að leyfa okkur engan nýjan munað, levfa v'ðskintaáróðrinum ekki að vekia hiá okkur nýjar sýndarjiarfir, þá kölluðum við yfir heiminn við- skiptakreppu, sem ætti sér engan líka i sögunni. Örbirgðin stæði við hvers manns dyr, glæsilegar stór- borgir, sem nú töfra okkur með auði sinum, fegurð og listum. sýndu bráðlegá hið ömurlega yfirbragð hingnunar og hruns. TOGSTREITAN UM PERSÓNU- IÆIKANN. Skyldi höfundi Hávamála þá hafa missýnzt að öllu leyti? Hvað mundi verða úr einstaklingnum, ef hann væri upnnæmur fyrir hverri nýjung sölumarkaðarins? Þú væru hin ópersónulegu fram- leiðsluöfl einráð um að vekia hiá okkur sýndarþarfir og spenna okk- ur þannig fvrir vagn viðskiptahagn- aðarins. Einstaklingurinn yrði há að strita ákafar og ákafar fvrir þeim munaði, sem framleiðsluöflin gerðu honum að njóta. Þar með væri sjálfsákvörðunarréttur og persónu- leiki einstaklingsins upphafinn. , i S K O L'A F O L K Iteikningsbækur, þrjár tegundir Stílabækur, fjórar tegundir Glósubækur, þrjár tegundir Teikniblokkir, fjórar stærðir Skrifblokkir, fimm stærðir Spíralblokkir, fimm stærðir Rissblokkir, þrjár stærðir Kvartbækur, línustr. og reikn.str. Kladdabækur, línustr. og reikn.str. Frunibækur, tvær stærðir Reikningseyðublöð, tvær stærðir Sellofanpappír, Smjörpappír, Gestabækur o. m. fl. Heildsölubirgðir: jSMpbolt b.f. SKIPHOLTI 1 Sími 2-3737. REYKJAYÍK HUSMÆÐUR < m 30 N i- C Z > 30 -n -< 30 30 H — Þú segir mér að spyrja mömmu og hún segir mér að spyrja þig. — Hvenær ætlið þið að fara að hugsa sjálfstætt. — Hvenær fórum við eiginlega út að skemmta okkur síðast? Mörgum þykir viðskiptaáróður- inn þegar kominn æðilangt með okkur í þessu efni og kapphlaupið um kaupverð munaðarins orðið nægilega tryllt. Ef Hávamálahöf- undurinn, Rousseau og aðrir þeir, sem boðað hafa einfaldleika hóf- seminnar, mættu nú líta upp úr gröf sinni, mundu þeir undrast, hversu lítið við finnum til eymdanna und- an aktygjunum. En þeir skildu ekki, að þessi togstreita um persónu- leikann er örlög manns og mannlegs samfélags. Persónuleiki einstakl- ingsins er aldrei öruggur fyrir þvi að soghst inn i hringiðu samfélags- þróunarinnar og hverfa. Togstreitan um persónuleikann mun ráðast eftir þvi, hversu ein- staklingnum tekst að samræma per- sónulega hófsemd með sívaxandi allsnægtum hinnar ópersónulegu framleiðslu. Djúpt i eðli einstakl- ingsins lifir sjúlfræðisþráin, vit- undin um rétt sinn og skyldu til að taka ákvarðanir sínar í fullu frelsi og án leyndrar eða opinberrar ytri þvingunar. Það er hægt að æsa nautnafikn mannsins svo gersam- lega, að hann verði óhæfur til að njóta þess, sem hann þegar hefir aflað. Þá' væri maðurinn orðinn vél, sem hefði það eitt hlutverk, að svelgja upp framleiðsluna. Um leið hefði hann glatað þvi aðalsmerki, sem lióf hann yfir hverja aðra líf- veru. Hann væri þá fanginn í járn- hörðu lögmáli, engu mildara en fjötrar eðlisávisunarinnar eru dýr- inu. Munchen, 20. ágúst 1960. Matthías Jónasson. VIKAN Z9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.