Vikan - 29.09.1960, Side 34
Það léttir heimilisstörfin
að nota nýjustu og beztu efnin til
Hreinsunar og þvotta
SPIC and SPAN
gólfþvotta- og hreingerningaefnið.
AÐEINS EÍN YFIRFERÐ.
EKKERT SKOL.
Amerízku klórtöfiurna r
Þvoið
barnaprjónafötin úr
Softly
Allur prjónafatnaður þveginn úr Softly, verður
sem nýr, með
ferskum ilmVengin ullarlykt |
Það auðveldasta og bezta til að þvo og hvítta
allt nylon. Einnig sérstaklega auðvelt og
gott til að þvo SKYRTUR SEM MÁ EKKI
LÍNSTRJtÍKA.
Sqezy
I UPPVASKIÐ og leirtauið
verður óhjákvæmilega hreint
og gljáandi jafnvel þó eigin-
mennirnir þvoi upp.
Easy - off
ofnhreinsunarefnið, hreinsar alla brennda fitu úr bökunarofninum,
svo að þeir verða sem nýir.
Dóttir ávaxtakaup-
mannsins
Framhald af bls. 15.
og Pólverjinn flíkaði stórum og
smáum seðlum, eins og hann væri
eigandi heillar úraverksmiðju, en
ekki litlu kompunnar. Já, þetta var
allt eitthvað dularfullt, og ekki
leystist gátan, þótt við reyndum að
komast til hotns í þessu öllu.
Við höfðum um þessar mundir
þjón, sem Leópold hét og var Belgi.
Hann var rauðhirkinn og ræfilsleg-
ur, en ákaflega veikur fyrir veika
kyninu. Hann var ekki ýkjagamall,
en ástareldurinn logaði glatt, og
Guð einn veit, hvað hrærðist í synd-
ugri sál hans. Hann stóð lengi gap-
andi, og augu lians skynjuðu ekki
það, sem þau sáu.
Kvöld eitt tók liann i handlegg
mér og sagði:
— Hefurðu séð, að hún er komin
með nýtt armbandsúr?
Það lá eiginlega i augum uppi.
Hún var sífellt að hampa gripnum
og hera liann upp að ljósinu, svo
að glitraði á hann meðal skartgrip-
anna, sem hún har. Og stundum
lagði hún úrið að eyranu og brosti
barnalega, þegar hún heyrði, hversu
léttilega sekúndurnar liðu. En þá
gerðist dálitið, og auðvitað var það
Leópold, sem fyrstur tók eftir þvi.
VVHann kom varia upp nokkru orði:
— Hefurðu séð, að hún er komin
> »með armbandsúr á hina höndina
i .lika!
t — Vertu rólegur, sagði ég, —
t hún er húin að fá alla búðina.
'Leópold hefði vafalaust ekki sloppið
'betur.
» Þannig liðu dagarnir, og skötuhjú-
in komu á hverju kvöldi, fengu sama
borð og nutu lífsins. Nei, það var
. erfitt að skilja þau, jafnvel þótt við
kynntumst æ hetur. Úrsmiðurinn
var ávallt jafnrólegur og settur og
virtist öðrum fráhverfari en nokkru
sinni fyrr. Hann minnti talsvert á
varðhund í leyni, sem hýr sig undir
stökk við minnstu hreyfingu. En
þegar ég hugsaði um Variniu, varð
mér smám saman ljóst, að það, sem
hinn almáttugi hafði látið henni í
té af líkamskostuin, væri ekki annað
en skorpa um innri tómleika, sem
menn finna ekki fyrr en um seinan.
Þetta létti áhyggjunum af Leópold
og flestum þeim, sem litið höfðu
hana hýru auga.
Úrsmiðuriiin hafði greinilega
fundið eitthvað í fari liennar, sem
hann mat mikils, blindur af ást. Og
ef til vill var hún gædd kostum,
sem aðeins ástin gat afhjúpað. En
hún var tignarleg, þarna sem lmn
laut yfir horðið og lagði hrúna,
silkimjúka handleggina á hvítan
dúkinn, og augu liennar dáleiddu
næstum hvern þann, sem leit í þess
myrku töfrasteina.
Leópold bandaði höndunum til
mín, þegar hann kom dag einn til
að leysa mig af. Iívöldið áður hafði
hún skyndilega ekki komið, og úr-
smiðurinn liafði setið þarna einn
og starað frain fyrir sig stjörfum
augum. Það sást engin hreyfing
framan í honum, hann var eins og
stirð gipsmynd, sem einhver galgopi
hafði fært í jakka. Hann var svo
djúpt sokkinn í hugsanir sínar, að
það hefði ekki komið honum til svo
mikils sem depla augunum, ef hleypt
hefði verið af skammbyssu við eyrað
á honum. Ef hann vantaði vin, bað
hann ekki um það, heldur ýtti
glasinu að borðröndinni og kinkaði
koili veiklulega. Og þegar Leópold
hafði spurt hann hugsunarlaust:
Eruð þér einn i kvöld? — hafði
úrsmiðurinn starað á hann stundar-
korn og siðan sagt: — Sjáið þér
illa?
Eftir þvi sem á leið kvöldið, tók
Pólverjinn að roðna i andliti, og
þegar klukkan sló þrjú, var hann
orðinn rækilega fullur. En þegar
hann fór, var hann furðustyrkur á
l'ótunum og gaf dyraverðinum
drykkjupeninga.
Eitthvað hafði komið Leópold til
þess að elta hann. Hvort hann komst
að einhverju leyndarmáli þessa
nótt, er ekki upplýst enn, nema hvað
úrsmiðurinn kvað hafa strunsað
beint heim í búðarkompuna sína og
læst þar að sér.
Næsta dag endurtók þetta sig.
Þegar Leópold leysti mig af siðla
dags, dró hann mig afsiðis og sagði,
að hún hefði ekki heldur komið
kvöldið áður. Og úrsmiðurinn hafði
setið og hellt í sig vini og einblínt
á útidyrnar. Og hann hafði verið
óhugnanlegur ásýndum.
Veðrið tók skyndilega fjörkipp,
ef svo mætti segja. Þetta gerðist
dag einn, þegar ég átti að taka við
af Leópold og vinna i kránni um
kvöldið. Þá voru þau skötulijú aftur
komin á sinn stað, en bæði virtust
þau eitthvað snubbótt og fýld. Jú,
þau höfðu fjarlægzt hvort annað, og
ekki virtust þau nálgast, er á leið.
Og Leópold, sem leit inn þetta sama
kvöld, sagði:
— Það er engu likara en þau séu
að leita að einhverju, sem þau eru
búin að týna, og trúi því, að það
finnist fyrr eða síðar. Þau hoi'fa
hvort á annað, eins og þau hafi
stoiið einhverju livort frá öðru, og
reyndar er hún bara með eitt arm-
bandsúr i kvöld. Ég hef hugboð um
það, að minn tími sé bráðum kom-
inn. Hefði ég aðeins verið eins stór
og glæsilegur og þú ...
— Farðu heim að sofa, sagði ég,
og skiptu þér ekki af því, sem þér
kemur ekki við. Auk þess koma þau
mér ekkert við lengur.
— Þú hefur breytzt mikið, sagði
hann og gekk hægt út úr kránni.
Enn komu dagar, og enn komu
kvöld, og með þeim kom einnig
regnið. Það var sífelld rigning, og
göturnar blikuðu eins og fljót í
rökkrinu. Gestirnir i Hlébarðanum
fjarlægðust enn meir. Bimmer stóð
óbifaniegur við barborðið og starði
upp i loítið eða fram fyrir sig. Við
kveiktum ekki lengur á öllum ljósa-
krónunum. Það var argasta eyðslu- .
semi að eyða ljósi á þessa fáu gesti.
En borðlamparnir loguðu áfram, og
kráin fékk á sig einhvern notalegan
hlæ.
Pólverjinn sat þarna og hún lika.
Hún hló minna, og hún virtist farin
að hugsa. Orðin, sem þeim fóru á
miili, virtust færri og færri. Ég
horfði stöku sinnurn i augu hennar,
og augnaráð hennar var hlýtt og
ómótstæðilegt, og sama er að segja
um brosið, sem fylgdi á eftir.
Bimmer hallaði sér fram á bar-
borðið afundinn og sagði:
— Hvað í ósköpunum ætli laði
þessi tvö livort að öðru?
— Spurðu véfréttina í Delff,
sagði ég.
Kvöld eitt kom einnig fjögurra
manna hljómsveitin okkar aftur.
Það varð eitlhvað að gera til þess
að laða gesti að staðnum. Pallur-
34 viKAN