Fréttablaðið - 01.12.2009, Qupperneq 2
2 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Af uppgjörsskyldum
frambjóðendum í síðustu alþingis-
kosningum voru flestir hjá Sjálf-
stæðisflokki, og þeir eyddu líka
mestu.
Uppgjörsskyldir frambjóðendur
eru þeir sem eyða meira en 300 þús-
und krónum í kosningabaráttuna.
Þeir þurfa að skila Ríkisendurskoð-
un fjárhagslegu uppgjöri.
Í allt voru þessir frambjóðend-
ur 45 talsins, þar af 33 í Sjálfstæð-
isflokki. Þessir 33 eyddu rúmum
45 milljónum króna. Þó kunna ein-
hverjir uppgjörsskyldir að vera
ótaldir, því 21 frambjóðandi hefur
alls ekki svarað Ríkisendurskoðun.
Uppgjörsskyldir frambjóðendur
Samfylkingar voru tíu talsins og
eyddu rúmum fimm milljónum alls.
Tveir frambjóðendur Framsóknar
eyddu svo 650 þúsund krónum. Þetta
kunngjörir Ríkisendurskoðun.
Samkvæmt upplýsingum frá VG
á enginn frambjóðandi flokksins að
vera skyldugur til að gera upp sín
fjárútlát, því bann var lagt
við auglýsingum í
kosningabarátt-
unni. Tíu frambjóðendur VG hafa
þó ekki svarað Ríkisendurskoðun.
Óvíst er með frambjóðendur
Frjálslynda flokksins, því helming-
ur þeirra á eftir að svara.
Sé deilt í þessar tölur kemur í ljós
að meðalframbjóðandi Sjálfstæð-
isflokks, sem á annað borð eyðir
meira en 300 þúsund krónum, þarf
að punga út einni milljón og tæpum
365 þúsundum.
Meðalfjárútlát hjá svipuðum
frambjóðanda Samfylkingar væru
500 þúsund.
Framsóknarmaður myndi eyða
325 þúsund krónum.
En margir ganga lengra. Tveir
frambjóðendur Sjálfstæðisflokks,
Illugi Gunnarsson og Guðlaug-
ur Þór Þórðarson eyddu meira en
fjórum milljónum. Jón Gunnarsson
eyddi tæpum þremur milljónum en
Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal
voru með rúmar tvær.
Hjá Samfylkingu eyddi mestu
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir. Bar-
áttan kostaði hana 893.292 krónur.
Þau Helgi Hjörvar, Skúli Helgason
og Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir koma þar á eftir, sú síðastnefnda
með 777 þúsunda króna útgjöld, sem
hún greiddi úr eigin vasa.
Af þeim 21 sem ekki hafa skil-
að uppgjöri samkvæmt lögum um
fjármál stjórnmálasamtaka er einn
þingmaður, Árni Johnsen, og einn
flokksformaður, Guðjón Arnar
Kristjánsson.
klemens@frettabladid.is, - kóp, sh
Guðni, eru menn gjörsamlega
að sleppa sér?
„Nei, ég held að það sé ekki teljandi
hætta á ferðum. En menn verða að
vita hvað er á seyði.“
Ekki hefur verið haldið markvisst utan
um upplýsingar um tölu laxaseiða
sem sleppt er í íslenskar ár. Sleppingar
hafa verið eftirlitslausar í tólf ár. Guðni
Guðbergsson er sviðsstjóri auðlindasviðs
Veiðimálastofnunar.
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
ENGINN GÚMMÍTÉKKI Grýla virti
vandlega fyrir sér ávísunina áður en
hún afhenti Jónasi Þ. Þórissyni, fram-
kvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar,
tékkann. Skyrgámur fylgdist með.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HJÁLPARSTARF Grýla mætti ofan úr
fjöllum ásamt sonum sínum með
nýbakað brauð í fórum sínum á
blaðamannafund Hjálparstarfs
kirkjunnar í gær. Þar afhenti
Skyrgámur tæplega 600 þúsund
króna framlag sem er afrakstur
Jólasveinaþjónustu Skyrgáms.
Peningunum verður skipt jafnt á
milli innanlands- og utanlands-
þjónustu hjálparstarfsins.
Jólasveinaþjónustan hefur nú
gefið rúmlega fimm milljónir til
Hjálparstarfs kirkjunnar á tólf
ára starfsferli. Fénu hefur verið
varið hérlendis sem og í Malaví
og Úganda þar sem Hjálparstarf
kirkjunnar er með þróunarverk-
efni. Jólasveinaþjónustan heim-
sækir leikskóla, fyrirtæki og ein-
staklinga fyrir jólin með boðskap
og grín og gefur fimmtung af velt-
unni til hjálparstarfsins.
Skyrgámur og bræður hans:
Safna fyrir
hjálparstarfi
kirkjunnar
Spurt um fatlaða í fangelsum
Sigmundur Ernir Rúnarsson vill fá
upplýsingar frá dómsmálaráðherra
um hve margir fatlaðir sitji í fang-
elsum. Þá vill hann vita hver fötlun
umræddra sé og á hvern hátt komið
er til móts við sérþarfir þeirra.
ALÞINGI
SKIL FRAMBJÓÐENDA Á UPPLÝSINGUM, 29.11.2009
Uppgjör Yfirlýsing Óskilað Samtals
Framsóknarflokkurinn 2 46 0 48
Frjálslyndi flokkurinn 0 3 3 6
Samfylkingin 10 65 1 76
Sjálfstæðisflokkurinn 33 45 7 85
Vinstrihr. - Grænt framboð 0 92 10 102
Samtals 45 251 21 317
ATVINNA Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson hefur sagt upp rúm-
lega þrjátíu starfsmönnum frá
og með deginum í dag.
Í tilkynningu frá fyrirtæk-
inu eru uppsagnirnar skýrðar
með því að auk almennra efna-
hagsþrenginga takist iðnfyrir-
tæki á við auknar skattaálögur
sem þýða verulegan samdrátt á
markaði.
Þar að auki glíma mörg þeirra
nú jafnframt við hærra vöru-
gjald og virðisaukaskatt.
Til að minnka þörf á frekari
uppsögnum eru þeir starfsmenn
sem eru með hærri laun en 350
þúsund á mánuði beðnir um að
afsala sér 3,5 prósenta hækkun
launa sem stendur til samkvæmt
kjarasamningum.
Aðrir verða beðnir um að sam-
þykkja minna starfshlutfall.
- shá
Brugðist við kreppu:
Ölgerðin segir
upp 30 manns
ALÞINGI Margrét Tryggvadóttir,
Hreyfingunni, lýsti á þingi í gær
áhyggjum af boðuðum breyting-
um á lögum um fæðingarorlof.
Kvaðst hún óttast að með stytt-
ingu orlofsins í mest fimm mán-
uði í senn væri réttur ungbarna
til næringar fyrir borð borinn
en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
mælir með því að brjóstamjólk sé
eina fæða barna fyrstu sex mán-
uðina.
Innti hún Álfheiði Ingadóttur
heilbrigðisráðherra álits á mál-
inu. Álfheiður sagði Margréti
misskilja breytingarnar; mæður
gætu valið hvort orlof þeirra
styttist eða orlofsgreiðslur
skertust.
Þann skilning var ekki að finna
í orðum félagsmálaráðherra í
Fréttablaðinu í gær. - bþs
Óttast um réttinn til næringar:
Vegið að fæðu-
rétti ungbarna
BANDARÍKIN Talið er líklegt að Bar-
ack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, muni senda um 30 þúsund
hermenn til viðbótar til Afganist-
an í baráttunni við Talibana.
Obama á að hafa tjáð háttsett-
um mönnum innan hersins þetta á
sunnudaginn en mun, samkvæmt
fjölmiðlum vestanhafs, kynna
þetta opinberlega í sjónvarps-
ávarpi í dag.
Forsetinn mun hafa upplýst
leiðtoga Bretlands, Frakklands
og Rússlands um ákvörðun sína
í gær. Ef hugmynd Obama um að
fjölga hermönnunum gengur eftir
verða Bandaríkjamenn komnir
með tæplega 100 þúsund hermenn
þar í landi. Aðrar þjóðir hafa um
30 þúsund hermenn þar.
Ákvörðunin kemur í kjölfar þess
að Gordon Brown, forsætisráð-
herra Bretlands, lýsti því yfir að
Bretar myndu fjölga hermönnum í
Afganistan um fimm hundruð.
Í síðustu viku sagðist Obama
ætla „að klára verkið“ í Afganist-
an. Talsmenn Hvíta hússins sögðu
Obama hafa verið að beina orðum
sínum til bandamanna Bandaríkj-
anna í Afganistan, þar á meðal Ítala,
Breta, Frakka og Rússa. - kh
Barack Obama mun tilkynna í dag fjölgun hermanna í Afganistan:
Fjölgi um 30 þúsund í Afganistan
Í AFGANISTAN Um 68 þúsund bandarískir hermenn eru nú
þegar staddir í Afganistan. Ef Obama fjölgar þeim um 30
þúsund verða um 130 þúsund manns í fjölþjóðahernum.
VIÐSKIPTI Helstu hlutabréfavísitölur
í Miðausturlöndum lækkuðu í gær
vegna ótta við að stoðir arabísku
fyrirtækjasamsteypunnar Dubai
World myndu valda nýrri fjármála-
kreppu.
Skuldir samstæðunnar nema sex-
tíu milljörðum dala og óskuðu for-
ráðamenn hennar eftir því í síð-
ustu viku að fá hálft ár til að gera
upp mál sín. Dubai World hefur að
mestu staðið fyrir uppbyggingu í
arabaríkinu Dúbaí og byggt þar upp
skýjakljúfa og manngerðar eyjar.
Erlendar skuldir Dúbaí-ríkis eru
aðeins tuttugu milljörðum dala
hærri en skuld fyrirtækjasam-
steypunnar, sem er að öllu leyti
í eigu hins opinbera. Þrátt fyrir
það hafði bandaríska stórblaðið
Wall Street Journal eftir háttsett-
um ráðamönnum í Dúbaí ekki ríkis-
ábyrgð á skuldum fyrirtækisins og
ætti ríkið ekki að greiða fyrir óráð-
síu einkafyrirtækis. Helstu lánar-
drottnar Dúbaí og fyrirtækja þar í
landi eru bresk fjármálafyrirtæki.
Gengi hlutabréfa þeirra lækkaði
hressilega í dag vegna óvissunnar
í Dúbaí bæði í síðustu viku og um
helgina.
Ástandið batnaði nokkuð síðdeg-
is í gær í kjölfar þess að seðlabanki
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna ákvað að ábyrgjast skuldir
nágrannaríkisins og fyrirtækja í
eigu þess. Í kjölfarið hafði Bloomb-
erg eftir fjármálasérfræðingum að
líklegt þyki að fyrirtæki í landinu
geti staðið við skuldbindingar sínar.
- jab
Skuldavandi ríkisfyrirtækis í Dúbaí vakti ugg á alþjóðlegum fjármálamörkuðum:
Óttuðust annað hrunaskeið
MANNGERÐ EYJA Ríkisfyrirtækið Dubai
World hefur staðið fyrir ævintýralegri
uppbyggingu í Dúbaí. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Sjálfstæðismennirnir
eyddu 45 milljónum
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks eyddu sumir á fimmtu milljón króna í próf-
kjörsbaráttu fyrir alþingiskosningarnar. Enginn frambjóðandi annarra flokka
eyddi meira en milljón krónum. Enn á 21 frambjóðandi eftir að svara.
1. ILLUGI GUNNARSSON
4,410,297 kr.
2. GUÐLAUGUR Þ. ÞÓRÐARSON
4,226,425 kr.
3. JÓN GUNNARSSON
2,918,046 kr.
4. BJARNI BENEDIKTSSON
2,269.862
5. ÓLÖF NORDAL
2,192.772
ALÞINGI Icesave-umræðum var
frestað á Alþingi í gærkvöldi, svo
ræða mætti fjáraukalög.
Illugi Gunnarsson þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins
segir stjórnarandstæðinga mjög
ánægða með að ríkisstjórnin hafi
tekið tilboði sínu um þetta. „Auð-
vitað er hægt að leysa þessi mál
með sem bestum hætti þegar
menn vilja vera skynsamir og
ábyrgir,“ segir hann.
Engin niðurstaða hafi náðst um
hvenær Icesave fari á dagskrá,
en það verði eftir fyrsta desem-
ber. „Enn stendur tilboð okkar
um að ræða skattamálin fyrst,“
segir Illugi. - kóþ
Samkomulag á Alþingi:
Icesave-ræðum
frestað í bili
SPURNING DAGSINS