Fréttablaðið - 01.12.2009, Page 8
8 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hvað hyggst athafnamaður-
inn Otto Spork fyrir á Snæfells-
nesi?
2. Hvað notaði eiginkona
Tiger Woods til að brjóta rúðu
á bifreið hans eftir bílslys á
dögunum?
3. Hvað hyggjast írönsk stjórn-
völd byggja mörg kjarnorkuver
á næstu árum?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50
REYKJAVÍK For-
seti borgar-
st jór n a r er
a ð þ ók n a s t
landsbyggð-
arhagsmun-
um í borginni
með málflutn-
ingi sínum um
Reykjavíkur-
flugvöll og það
er skammar-
legt að hann hnýti í eina mann-
inn sem gætir hagsmuna borgar-
búa í Sjálfstæðisflokknum, Gísla
Martein Baldursson.
Svo segir Örn Sigurðsson, einn
talsmanna Samtaka um betri
byggð. Hann minnir á að Reyk-
víkingar hafi kosið sérstaklega
gegn flugvellinum árið 2001.
Forseti borgarstjórnar, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, sagði
í blaðinu í síðustu viku að ljóst
væri að flugvöllurinn yrði ekki
færður á næstunni og vísaði til
efnahagsástandins í landinu.
Hann vildi ekki svara því hvort
til greina kæmi að breyta aðal-
skipulagi til að festa völlinn í
sessi.
Örn segir að Vilhjálmur hafi
lofað kjósendum sínum fyrir
kosningarnar 2006 að flugvöllur-
inn yrði farinn árið 2016. Að vilja
festa flugvöll í sessi vegna efna-
hagsástandsins sé út í hött.
„Það var alltaf slæmt að hafa
flugvöllinn þarna en nú eftir
hrunið er markaður innanlands-
flugs hruninn. Og unga fólkið
sem kemur út á markaðinn næstu
ár getur ekki rekið marga bíla til
að búa uppi á heiði. Sá tími er lið-
inn. Núverandi ástand hrópar á
að fleirum verði gefinn kostur á
að búa á besta stað á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Örn. Vilhjálmur
horfi ekki á málið í heild sinni.
„Svo gerir hann lítið úr yfir-
lýsingu Gísla Marteins um að
vera vallarins kosti fjóra millj-
arða á ári. Borgarstjóri og sam-
gönguráðherra samþykktu að
gera úttekt árið 2005 á þessum
kostnaði. Samkvæmt henni kost-
ar flugvöllurinn að minnsta kosti
fjóra milljarða á ári, á verðlagi
ársins 2005. Við teljum þetta vera
allt að tíu sinnum dýrara,“ segir
Örn.
- kóþ
Talsmaður Samtaka um betri byggð andmælir forseta borgarstjórnar um framtíð Reykjavíkurflugvallar:
Vilji þóknast landsbyggðarhagsmunum
ÖRN SIGURÐSSON
„Það var alltaf slæmt að
hafa flugvöllinn þarna
en nú eftir hrunið er markaður
innanlandsflugs hruninn“
ÖRN SIGURÐSSON
HJÁ SAMTÖKUNUM UM BETRI BYGGÐ
MP Sjóðir hf. hefur útvistað hluta af verkefnum sínum til MP Banka hf. á grundvelli 18. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. MP Sjóðir hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi
sem rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingarsjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. 3.gr. og 1.-3. tölul. 1.mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Starfsleyfið tekur til reksturs verðbréfa-
og fjárfestingarsjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu skv. 7. tölul. 1.mgr. 3.gr. laga nr. 161/2002 og til eignastýringar, fjárfestingarráðgjafar og vörslu og stjórnunar fjármálagerninga
í sameiginlegri fjárfestingu skv. 1.-3. tölul. 27. gr. laga nr. 161/2002. Nánari upplýsingar um verðbréfasjóði og fagfjárfestasjóði MP Sjóða hf. má finna á www.mp.is/mp-sjodir. Vinsamlega hafið í huga
að ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.
Kynntu þér Ríkisskuldabréfasjóð MP
á www.mp.is, í síma 540 3200 eða hjá
viðskiptastjórum í Skipholti 50d eða
Borgartúni 26.
Eignasamsetning
Ríkisskuldabréfasjóðs MP
30.11.2009
ÖRUGGARI
STAÐUR FYRIR
PENINGANA ÞÍNA
Hversu stór hluti af þínum sparnaði er í ríkistryggðum bréfum?
Við bjóðum þér einfalda leið til að tryggja fjármunina þína með
kaupum í Ríkisskuldabréfasjóði MP.
10,2% ávöxtun sl. 12 mánuði
85%
verðtryggð
ríkisskuldabréf
Íbúðabréf 72%
Húsbréf 13%
Ríkisbréf 8%
Innlán 7%
Auglýsingasími
– Mest lesið
ATVINNUMÁL Stærsta verktakafyr-
irtæki Vestfjarða, KNH á Ísafirði,
segir upp 60 af 84 starfsmönnum
sínum í dag. Í tilkynningu fyrirtæk-
isins segir að forsvarsmenn sjái ekki
fram á að geta haldið úti óbreyttri
starfsemi ef stjórnvöld halda ekki
áfram með þau verkefni sem þegar
eru tilbúin til útboðs.
Finnbogi Sveinbjörnsson, formað-
ur Verkalýðsfélags Vestfirðinga,
segir uppsagnirnar mikinn skell.
Hann hafi fundað með forsvars-
mönnum fyrirtækisins í síðustu
viku og farið hafi verið yfir mögu-
legar leiðir, en engar fundið. Hann
segir að í þessu tilviki liggi ábyrgð-
in hjá stjórnvöldum.
„Fyrir svona stór fyrirtæki sem
eru í jarðvinnuframkvæmdum
skiptir meginmáli að það sé ekki
dregið saman í þessum geira.“ Finn-
bogi segir mikilvægt að stjórnvöld
grípi inn í. Menn hafi hegðað sér
rangt í þenslunni með fjölda fram-
kvæmda, en í kreppu verði að auka
verkefnin.
„Ég veit að það er hart í ári hjá
ríki og sveitarfélögum, en þau
verða að ganga fram fyrir skjöldu
og reyna að endurfjármagna sig
og halda atvinnulífinu gangandi.
Það má ekki endalaust skera niður
í útgjöldum, þú færð engar tekjur
inn þannig. Það er ekki leiðin til að
vinna sig út úr kreppunni.“
Finnbogi kallar eftir því að ríkis-
stjórnin ræði við lífeyrissjóðina um
aðkomu þeirra að verkum.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, segir uppsagnirn-
ar reiðarslag fyrir bæjarfélagið.
Hann er mjög harðorður í garð rík-
isstjórnarinnar og stefnu hennar í
atvinnumálum.
„Það er allt á sömu bókina lært
hjá þessari ríkisstjórn, það er bara
þannig. Hún er að frysta allt sem
hún getur fryst í atvinnulífinu og
er með stórhættulega stefnu sem
verður að víkja af. Það gengur ekki
að setja allt í frost og vera svo með
einhverjar ótrúlegar þæfingar varð-
andi gífurlegar álögur á fyrirtæki.
Svo er veri að setja sjávarútveg-
inn í svo mikla óvissu að þar er allt
í frosti. Þetta er akkúrat versti tím-
inn til að gera nokkurn skapaðan
hlut af því tagi, nú á að reyna að
örva atvinnulífið og láta hjólin snú-
ast hraðar.“
kolbeinn@frettabladid.is
Stjórnvöldum
kennt um upp-
sagnirnar
Stærsta verktakafyrirtæki Vestfjarða hefur sagt upp
70 prósentum starfsmanna sinna. Bæjarstjóri Ísa-
fjarðar segir ríkisstjórnina hafa fryst atvinnulífið.
Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga vill aðgerðir.
ÍSAFJÖRÐUR Verktakafyrirtækið KNH segir upp 60 starfsmönnum í dag. Fyrirtækið
er langstærsta verktakafyrirtækið á Vestfjörðum og sinnir verkefnum í vega- og jarð-
vegsframkvæmdum víða um land. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FINNBOGI
SVEINBJÖRNSSON
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
VEISTU SVARIÐ?