Fréttablaðið - 01.12.2009, Síða 16
16 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Fundi strandríkja
um stjórn makrílveiða á árinu
2010 var slitið í Edinborg í síð-
ustu viku án þess að niðurstaða
næðist. Greint var frá þessu í
vefútgáfu norska dagblaðsins
VG. Þar er haft eftir fulltrúum
norska sjávarútvegsráðuneytis-
ins að andrúmsloftið á fundin-
um hafi verið erfitt og markast
af deilum Norðmanna og Evrópu-
sambandsins um veiðirétt þeirra
fyrrnefndu innan lögsögu ESB.
Fyrsti fundur deiluaðila í Berg-
en var árangurslaus.
Sjávarútvegsráðherra gaf
nýlega út reglugerð um makríl-
veiðar Íslendinga á næsta ári, þar
sem heimilt er að veiða 130 þús-
und tonn.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, fagnar þeirri
ákvörðun eins og kemur fram á
heimasíðu samtakanna. „Sem
fyrr er strandríkisréttur Íslands
hunsaður og við útilokuð frá þátt-
töku í stjórn veiðanna þrátt fyrir
skýlausan rétt okkar þar um. Það
var því mjög mikilvægt að til-
kynna um áætlaðan afla okkar
fyrir fundinn. Þannig geta þess-
ir aðilar tekið tillit til hans við
ákvörðun um afla sinn á næsta
ári og tryggt að heildarveiðin
verði innan marka.“
- shá
Strandríkin slitu öðrum samningafundi sínum um stjórn makrílveiða:
Pattstaða í makrílviðræðum
SIGHVATUR BJARNASON Íslensku skipin
fá 130 þúsund tonna makrílkvóta á
næsta ári sem er ákveðinn með einhliða
ákvörðun Íslendinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
ÁSTRALÍA, AP Vísindamenn í Ástr-
alíu vonast nú til þess að geta
ræktað kindur sem menga minna.
Að sögn vísindamannanna
reyna þeir nú að komast að því
hvað veldur því að sumar kind-
ur ropa minna en aðrar, og eru
þannig umhverfisvænni. Að
þeirra sögn eru ropar kindanna
mun meira mengandi en annar
vindgangur.
Þótt vitað sé að því meira sem
kindurnar borði, því meira ropi
þær, skýrir það alls ekki allt.
Um sextán prósent þeirra gróð-
urhúsalofttegunda sem Ástralar
losa ár hvert koma frá landbún-
aði. - þeb
Vísindamenn í Ástralíu:
Rækta umhverf-
isvænni kindur
ÞÝSKALAND, AP Réttarhöld yfir John
Demjanjuk, sem ákærður er fyrir
að hafa átt þátt í að myrða nærri
28 þúsund gyðinga í útrýming-
arbúðunum Sobibor í Póllandi í
seinni heimsstyrjöldinni, hófust í
München í Þýskalandi í gær.
Réttarhöldin töfðust um klukku-
stund þar sem mikill fjöldi manna
hafði safnast saman fyrir utan
dómhúsið í von um að fá að fylgj-
ast með réttarhöldunum. Demjanj-
uk, sem er 89 ára gamall, var ekið
inn í dómsalinn í hjólastól. Hann
var fölur og með augun lokuð. Fjöl-
skylda hans segir hann alvarlega
veikan en skömmu áður en réttar-
höldin hófust úrskurðaði læknir að
hann hefði heilsu til að sitja rétt-
arhöldin.
„Demjanjuk setti á svið leikrit,“
sagði Efraim Zuroff, starfsmað-
ur Simon Wiesenthal-stofnuninni.
„Hann hefði frekar átt að fara til
Hollywood en til Sobibor.
Demjanjuk er sakaður um að
hafa starfað sem fangavörður í
útrýmingarbúðunum í Sobibor.
Hann er ættaður frá Úkraínu en
flutti til Bandaríkjanna eftir stríð.
Hann var hermaður í Rauða her-
num en árið 1942 var hann hand-
tekinn af nasistum. Verjendur
Demjanjuk segja að hann hafi
verið neyddur til starfa sem fanga-
vörður. Hefði hann ekki hlýtt hefði
hann verið drepinn. Þessi rök-
semdafærsla verjenda hans er ný
af nálinni því allt til þessa dags
hefur Demjanjuk neitað því að
hafa verið fangavörður í Sobibor.
- th
Réttarhöld yfir Demjanjuk eru hafin í München:
Átti þátt í dauða 28
þúsund gyðinga
DEMJANJUK Á LEIÐ Í DÓMSALINN Í GÆR Fyrir 23 árum var Demjanjuk dæmdur til
dauða í Ísrael en síðar sýknaður þar sem talið var að honum hefði verið ruglað
saman við annan mann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Það sést hverjir drekka Kristal
MEISTARAFLOKKUR KVENNA HJÁ FRAM BORÐA
ALLTAF Á Í KÓPAVOGI FYRIR
HVERN HANDBOLTALEIK
- ENDA STANDA ÞÆR SIG FRÁBÆRLEGA!
ÁFRAM STELPUR!
ÁFRAM STELP
UR!
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000
Ein gjöf sem
hentar öllum
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að
gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
N
B
I h
f.
(L
an
d
sb
an
ki
n
n
),
k
t.
4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
39
89
1
DÓMSMÁL Karlmaður á sextugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
Héraðsdómi Reykjaness fyrir
líkamsárás á skemmtistaðnum
Fjörukránni í Hafnarfirði.
Honum er gefið að sök að hafa
í ágúst 2008 tekið utan um háls
manns og síðan tekið með báðum
höndum utan um brjóstkassa hans
í því skyni að bera hann út af veit-
ingastaðnum. Við þetta missti
fórnarlambið meðvitund. Hinum
meinta árásarmanni er einnig
gefið að sök að hafa þá sleppt tak-
inu á manninum, sem féll þá fram
fyrir sig á gangstétt. Við þetta
hlaut hann 2,5 sentimetra breitt
sár á höku sem sauma þurfti með
fimm sporum, fleiður á tungu og
hægri fótlegg og tognun í framan-
verðum hálsvöðvum auk þess sem
brotnaði úr tveimur tönnum. - jss
Maður slasaðist í áflogum:
Ákærður fyrir
líkamsárás á
Fjörukránni