Fréttablaðið - 01.12.2009, Side 21
ÞRIÐJUDAGUR 1. desember 2009 21
bók Kaupþings hreint ekkert eins-
dæmi. Þannig hafi WikiLeak þurft
að standa fyrir sínu eftir að sviss-
neski bankinn Julius Baer höfðaði
mál á hendur vefnum í San Frans-
isco í Bandaríkjunum í febrúar í
fyrra. Bankinn hafði ekki erindi
sem erfiði og tapaði málinu og upp-
skar ekki annað en fleiri hundruð
milljóna kostnað. „Þeir urðu að
leggja af starfsemi sína
í Bandaríkjunum
vegna umfjöll-
unarinnar og
þó nokkrar
rannsóknir
voru sett-
ar í gang.“
Þ á s e g i r
hann að á vefnum
hafi einnig komið fram
gögn sem varða fall breska
bankans Northern Rock, en hann
var eitt af fyrstu fórnarlömbum
alþjóðlegu fjármálakreppunnar og
það hafi getið af sér lögsókn, auk
þess sem fjárfestingabanki í Dubaí
hafi nýverið höfðað mál á hendur
vefnum.
Birta ekki hvað sem er
Assange gefur ekki mikið fyrir
gagnrýni í þá veru að með því að
birta gögn sem varða bankaleynd
kunni WikiLeaks að skemma fyrir
bankaþjónustu í viðkomandi landi,
því án leyndarinnar þrífist ekki
bankastarfsemi. „Sviss er nú í hlut-
verki tækifærissinnans og dregur
til sín skattfé annarra landa. Ég
held ekki að Ísland vilji feta sömu
slóð. En vilji landið skáka í skjóli
bankaleyndur þá gengur ekki að
bæta þar við rotnum innviðum.
Bankaleynd er slæm ein og sér,
en bætist spilling við, þá er komin
banvæn blanda,“ segir Julian Ass-
ange.
Minnihluti þeirra gagna sem
WikiLeaks berst er af fjármálaleg-
um toga, en margt af því sem þar
hefur komið hefur vakið heimsat-
hygli og jafnvel breytt gangi sög-
unnar. „Það er óhemjugefandi að fá
að vera hluti af slíku,“ segir Juli-
an og nefnir sérstaklega sem dæmi
upplýsingar sem komið hafi fram
í Keníu og hafi haft úrslitaáhrif í
kosningum þar í landi.
WikiLeaks berst óhemjumagn af
gögnum en ekkert er þó birt fyrr en
farið hefur verið yfir málin og þau
staðreynd. „Stundum vinnum við
líka meira í málunum, ef þau vekja
áhuga okkar. Við höfum rekið okkur
á að sumum málum sinna aðrir fjöl-
miðar ekki vegna þess að innan
þeirra skortir ef til vill sérhæfingu
og/eða tíma. Við leggjum því ekki
jafnmikla vinnu í þau mál sem við
vitum að aðrir miðlar koma til með
að henda á lofti og leggjum frekar
vinnu í að koma öðrum málum í það
horf að frá þeim verði greint.“
Þá er heldur ekki svo að hægt
sé að „leka“ hverju sem er á Wik-
iLeaks. „Efnið þarf að hafa gildi
frá sögulegu, siðfræði-, eða stjórn-
málalegu sjónarhorni. Við höfum
engan áhuga á að segja frá ástar-
bréfum eiginkonunnar, nema þá að
hún sé gift forsetanum. Þá breytist
sjónarhornið.“
Fátt fólk, mikil áhrif
Julian segir mikilvægt að til stað-
ar sé einfaldur rammi að fara eftir
þegar gögn eru metin. „Við lítum
ekki á það sem okkar hlutverk að
róta upp hneykslismálum, eða safna
flettingum. Við bjóðum almanna-
þjónustu á alþjóðavettvangi og erum
málsvarar flautuþyrla og annarra
sem þurfa að koma upplýsingum á
framfæri, sem öðrum kosti hefði
verið haldið leyndum. Og við sköp-
um okkur um leið trúnaðarskyldu
gagnvart heimildarmönnum.“
Starfsemi WikiLeaks er furðu-
hófleg miðað við umfang og áhrif. Í
raun starfa ekki nema þrír til fjór-
ir í fullu starfi við að sinna vefn-
um. „Okkur innan handar eru svo
1.200 sjálfboðaliðar. Og í tengiliða-
skrá fjölmiðla eru um átta þúsund
manns,“ segir Julian og bætir við
að á félagsvefnum Twitter séu svo
um 18 þúsund sem tilbúnir séu að
áframsenda til þeirra gögn. „Allt
er þetta fólk sem er til í að hlaupa
undir bagga. En það er kannski ekki
nema einu sinni á ári hjá flestum.
Síðan eru aðrir sem aðstoða oftar
og svo þessi fámenni hópur sem er
í þessu 18 tíma á dag.“
Fjármögnunin kemur svo frá
þeim sem vilji vinna málstaðnum
gagn, segir Julian. „Þetta er mikið
hugsjónastarf. Ég legg sjálfur til
fjármagn, aðrir koma með framlög
og enn aðrir gefa af tíma sínum.
Við erum fámennur hópur fólks
með mjög skýra sýn, nánast trúar-
lega.“ Þá segir Julian að WikiLeaks
hafi fengið nokkur vilyrði um fjár-
mögnun frá nokkrum félagsamtök-
um, en þau mál séu enn vafin nokk-
urri skriffinnsku. „Starfsfólk okkar
vinnur hins vegar allt á jafningja-
grunni, engir stjórnendur.“
WikiLeaks er með starfsstöðvar
víða um heim. „Við erum í Banda-
ríkjunum og með með gott fólk í þó
nokkrum Evrópulöndum, í Keníu,
Ástralíu og víðar. En þetta snýr að
stórum hluta að lögfræðiþáttum,
því þau mál geta komið upp hvar
sem er. Við erum svo með netmiðl-
ara í Svíþjóð og Belgíu, en í þess-
um tveim löndum er afbragðslög-
gjöf sem verndar heimildarmenn.“
Julian bendir á að sænsk lög geri
ekki bara stjórnvöldum óheimilt að
grafast fyrir um heimildarmenn
fjölmiðla, heldur sé aukinheldur
refsivert fyrir fjölmiðlafólkið sjálft
að greina frá heimildarmönnum.
„Rétturinn til nafnleysis er stjórn-
arskrárvarinn. Netþjónustan okkar
starfar innan þess ramma.“
JULIAN ASSANGE Stofnandi WikiLeaks segir að í byrjun hafið aðstandendur vefsins
haft töluverðar áhyggjur af því að reynt yrði að koma á vefinn röngum og villandi
upplýsingum. Síðustu tvö ár hafi hins vegar bara tíu sínnum, í milljónum sendinga,
orðið uppvíst um að þeim hafi verið send fölsuð skjöl. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTASKÝRING
ÓLI KR. ÁRMANNSSON
olikr@frettabladid.is
Í dag stendur Félag um stafrænt frelsi á Íslandi (FSFÍ) fyrir ráðstefnu um
stafrænt frelsi. Að sögn félagsins er um árvissan viðburð að ræða, en þetta
er í annað sinn sem haldin er ráðstefna af þessu tagi, nú í Háskólanum í
Reykjavík við Ofanleiti 2.
„Hér munu mætast hugmyndir um framtíð hugverkaréttar, leynd og gegn-
sæi, frelsi og framfarir,“ segir á vef samtakanna um ráðstefnuna, en aðalfyr-
irlesarar eru Eric Saltzman, einn stofnenda Creative Commons
verkefnisins, auk Daniels Schmitt og Julians Assange,
talsmanna Wikileaks-verkefnisins.
Ókeypis er inn á ráðstefnuna sem hefjast
á klukkan níu árdegis með kaffi og
skráningu. Klukkan tíu setur Tryggvi
Björgvinsson, formaður FSFÍ, svo
ráðstefnuna. Dagskrárlok eru svo
klukkan fimm síðdegis, en þá verða
líka veitt svonefnd frelsisverðlaun
FSFÍ 2009.
RÁÐSTEFNA FSFI UM STAFRÆNT FRELSI
HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR?
• Allar áhafnir um borð hjá Icelandair eru íslenskar.
• Allar flugvélar í flota Icelandair eru skráðar á Íslandi.
• Allt viðhald á flugvélum Icelandair er á Íslandi.
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU
NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR