Fréttablaðið - 01.12.2009, Page 24
24 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
UMRÆÐAN
Gunnar Axel Axelsson skrifar
um verslun
Því var slegið upp á forsíðu Fréttablaðsins á laugardaginn
að Hafnfirðingar hafi sótt um einka-
leyfi fyrir notkun orðsins jólaþorp.
Reyndar sagði fyrirsögn blaðsins að
Hafnfirðingar „heimti“ slíkt leyfi en
það er auðvitað orðum aukið, enda
Hafnfirðingar almennt kurteist og
gott fólk sem kann að færa óskir
sínar fram á tilhlýðilegan hátt.
Af frásögn Fréttablaðsins má auð-
veldlega sjá málið í nokkuð skondnu
samhengi, enda er framsetningu
þess hagað þannig að auðvelt er
að skilja vísun til orða undirritaðs
á þann hátt að Hafnfirðingar ætli
sér ekki aðeins að slá eign sinni á
þá hugmynd að reka jólamarkað,
heldur líka á tilvist þeirra hjóna
Grýlu og Leppalúða. Tilurð máls-
ins er þó sú að nýlega ákvað stofn-
un sem tengist Reykjavíkurborg
að setja á laggirnar jólamarkað og
völdu forsvarsmenn hennar að nota
sama heiti á markaðinn og notað
hefur verið undanfarin sjö ár yfir
sambærilegt verkefni í Hafnarfirði,
þ.e. Jólaþorpið.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
þá eru jólamarkaðir útbreitt fyrir-
bæri og þekkjast víða um heim. Sá
markaður sem Hafnfirðingar hafa
komið sér upp
og hefur risið
á aðventunni
á hverju ári
frá 2003 hefur
þó hingað til
verið sá eini
sinnar tegund-
ar hérlendis.
Þeir sem hafa
komið þangað
og upplifað þá
skemmtilegu
stemningu sem þar hefur tekist að
skapa, vita að notkun orðsins „jóla-
þorp“ er ekki gripið úr lausu lofti,
enda er markaðurinn hannaður frá
grunni á þeirri hugmynd að um sé
að ræða lítið þorp, þar sem gest-
ir geta gengið um þröng stræti og
keypt jólagjafir í fagurlega skreytt-
um húsum.
Nú kann einhver að spyrja hvers
vegna Hafnarfjarðarbær hafi ekki
sótt um einkaleyfi fyrr fyrir notk-
un orðsins en staðreyndin er sú að
hingað til hafa umrædd sveitarfé-
lög átt í mjög góðu samstarfi á sviði
menningar- og ferðamála og virt
þau mörk sem liggja í mótun sér-
stöðu á hvorum stað.
Þó svo að hinir reykvísku hug-
myndasmiðir hafi valið að leita í
smiðju vina sinna í Hafnarfirði að
þessu sinni, þá verða þeir að sætta
sig við þær reglur sem gilda og eiga
að koma í veg fyrir að menn nýti
vörumerki sem aðrir hafa skap-
að og hafa fest sig í sessi í hugum
neytenda. Vörumerki geta verið af
mjög fjölbreyttum toga, t.d. notkun
orðs sem vísað getur til tiltekinnar
vöru eða þjónustu, t.d. eins tiltek-
ins jólamarkaðar af mörgum slík-
um. Þá ber einnig að hafa í huga að
þrátt fyrir að ekki hafi verið sótt
um einkaleyfi fyrir notkun orðsins
Jólaþorp sem vísun til jólamarkað-
ar áður, þá er hins vegar flest sem
bendir til þess að skapast hafi laga-
legur vörumerkjaréttur á notkun
orðsins í þessu tilfelli, en slíkur
réttur getur skapast þó vörumerki
séu ekki skráð.
Af því leiðir að Reykvíkurborg er
fullkomlega heimilt að efna til jóla-
markaðar og starfsmönnum hennar
er einnig velkomið að leita í smiðju
nágranna sinna í Hafnarfirði með
hugmyndir að framsetningu. Ef ætl-
unin er hins vegar að búa til eftir-
mynd hins hafnfirska markaðar,
líkt og virðist vera raunin í þessu
tilfelli, þá hlýtur það að teljast nokk-
uð sanngjörn krafa að hinir reyk-
vísku hugmyndasmiðir byggi a.m.k.
upp sitt eigið vörumerki í kringum
framkvæmdina. Það er allavega
þar sem við Hafnfirðingar drögum
mörkin.
Höfundur er formaður menning-
ar- og ferðamálanefndar Hafnar-
fjarðarbæjar.
Jólaþorp-ið
GUNNAR AXEL
AXELSSON
UMRÆÐAN
Janos Herman skrifar um Evr-
ópusambandið
Lissabon-sáttmáli Evrópusam-bandsins, sem aðildarríkin
samþykktu nýlega, gengur í gildi 1.
desember. Áhrif sáttmálans verða
víðtæk og hann mun setja mark sitt
á samskipti ESB við nágrannaríki,
þ.á.m. Ísland.
Sáttmálinn er niðurstaða átta ára
flókinna samninga og umræðna.
Leiðin að settu marki var á köfl-
um þyrnum stráð en mikilvægast
er að áfangastaðnum er nú náð. Það
er ástæða til að ætla að Lissabon-
sáttmálinn komi til með að styrkja
ESB á að minnsta kosti þremur
mikilvægum sviðum.
Fyrir það fyrsta mun sáttmálinn
bæta lýðræði og gagnsæi í ESB.
Möguleikar almennings til áhrifa
á vettvangi sambandsins aukast,
til dæmis með svokölluðu „borg-
aralegu frumkvæði“, en með því
getur tiltekinn fjöldi einstaklinga
haft bein áhrif á stefnu sambands-
ins. Völd Evrópuþingsins, sem og
þjóðþinga aðildarríkjanna, aukast.
Með sáttmálanum verður stofnskrá
um grundvallarréttindi borgaranna
(Charter of Fundamental Rights)
lagalega bindandi. Einnig kveður
sáttmálinn á um rétt aðildarríkja
til að segja sig úr sambandinu.
Í öðru lagi styrkjast innviðir sam-
bandsins. Regl-
ur um ákvarð-
anatöku verða
samræmdar
og meirihluta-
ákvarðan-
ir innleiddar
í fleiri mála-
flokkum. Frá
og með 2014
mun ákvarð-
anataka í ráð-
herraráðinu lúta reglunni um „tvö-
faldan meirihluta“. Hún gerir ráð
fyrir að á bak við hverja ákvörð-
un sé 55% atkvæða aðildarríkja
og 65% af fólksfjölda sambands-
ins. Hinn nýkjörni forseti leiðtoga-
ráðs ESB, Herman Van Rompuy,
tekur að hluta til yfir formennsku í
ESB. Aðildarríkin halda þó áfram
að skiptast á um að gegna for-
mennskuhlutverki.
Í þriðja lagi verður ESB í betri
stöðu til að láta að sér kveða á
alþjóðavettvangi. Samningsstaða
ESB styrkist samfara því að sam-
bandið fær stöðu sjálfstæðs lög-
aðila. Hlutverk nýs talsmanns á
sviði utanríkis- og öryggismála,
Catherine Ashton, verður að sam-
ræma utanríkismálastefnu sam-
bandsins og gera hana sýnilegri.
Að auki hefur Lissabon-sáttmál-
inn þýðingu fyrir frekari stækkun
ESB, en sterkari innviðir gera sam-
bandinu betur kleift að taka á móti
fleiri aðildarríkjum. Það er von til
þess að nýtt og sterkara ESB geti
um sinn hætt innri naflaskoðun og
einbeitt sér að því að takast á við
brýn alþjóðleg úrlausnarefni.
Stundum er sagt í gamansömum
tón að ESB vanti eitt símanúmer
sem leiðtogar heims geti hringt í.
Að hluta til er Lissabon-sáttmálan-
um ætlað að bæta úr þessu. En þó
ég hafi mínar efasemdir um að eitt
númer dugi er ég viss um að sá eða
sú sem hringir mun fá skýrari svör
en áður.
Ég er sannfærður um að breyt-
ingarnar sem Lissabon-sáttmálinn
hefur í för með sér verði jákvæð-
ar fyrir Ísland. Almenningur, við-
skiptalíf og stjórnvöld í ESB og á
Íslandi hafa tengst nánum böndum
ekki síst fyrir tilstilli samningsins
um evrópska efnahagssvæðið og
Schengen-samkomulagsins. Lissa-
bon-sáttmálinn styrkir þau sameig-
inlegu gildi sem mynda grunninn
að nánu samstarfi okkar.
Árið sem senn er á enda hefur
um margt verið erfitt og áhrifa
alþjóðlegu fjármála- og efnahags-
kreppunnar gætir enn. Víða má þó
sjá fyrstu batamerkin í efnahags-
lífi álfunnar. Það ásamt löggildingu
Lissabon-sáttmálans gefur von um
að betri tíð sé fram undan.
Janos Herman er sendiherra
framkvæmdastjórnar ESB gagn-
vart Íslandi og Noregi, með aðset-
ur í Osló.
Betra ESB með Lissabonsáttmálanum
UMRÆÐAN
Elín Björg Jónsdóttir
skrifar um kjaramál
Innan verkalýðshreyf-ingarinnar gerum við
okkur vissulega grein
fyrir því að nú, þegar
unnið er að lokafrá-
gangi fjárlaga á Alþingi
fyrir komandi ár,
standa spjótin á stjórnvöldum úr
öllum áttum. Margir vilja koma
sínum sjónarmiðum á framfæri.
Samtök atvinnulífsins leggjast
gegn álögum á stóriðju en hafa
hins vegar illu heilli tekið undir
með þeim sem tala fyrir því að í
staðinn verði ýmsar aðrar álög-
ur hækkaðar, svo sem trygg-
ingagjald og aðrir launaskattar á
lágtekju- og millitekjuhópa. Ekki
fáum við heldur stuðning úr þeim
herbúðum til að verja almanna-
þjónustuna.
Ljóst er að auknar skattaálög-
ur munu ekki nægja til að rétta
af fjárlagahalla komandi árs og
því er nauðsynlegt að gera hvort
tvennt í senn, skera niður og taka
lán.
BSRB hefur ekki lagst gegn
niðurskurði en bandalagið telur
þó að samkvæmt fyrirliggjandi
fjárlagafrumvarpi sé niðurskurð-
urinn í velferðarþjónustunni of
mikill. Við höfum bent á að nið-
urskurður þar geti reynst dýr-
keyptur. Hann bitni ekki einungis
á þeim sem eiga undir högg að
sækja heldur samfélaginu öllu.
Þetta var kjarninn í boðskap
nýafstaðins aðalfundar BSRB –
boðskap sem ætlast er til að ríkis-
stjórnin hugleiði og taki tillit til.
Og nú fyrirhuga stjórnvöld að
skerða fæðingarorlof. Ef skerð-
ingin nær fram að ganga verður
vegið að félagslega kerf-
inu og þó sérstaklega
að hagsmunum kvenna.
Aðför að fæðingaror-
lofinu veldur miklum
vonbrigðum og spyrja
má: Hvernig stendur á
að ríkisstjórn sem seg-
ist hafa „sett jafnrétti
kynja, mannréttindi og
kvenfrelsi í öndvegi“
ætli sér að ganga á bak
orða sinna með þessum hætti?
Við eigum að taka alvarlega
varnaðarorð þeirra þjóða sem
gengið hafa í gegnum kreppu eins
og nú blasir við okkur og ljóst er
að við þurfum að glíma við næstu
misserin. Þannig hafa Finnar
bent á að enn sé finnska þjóðin
að súpa seyðið af misráðnum og
illa grunduðum niðurskurði fyrir
tæpum tveimur áratugum. Lærið
af mistökum okkar, sagði finnsk-
ur ráðherra sem hér var nýlega
á ferð. Þessi varnaðarorð ganga
vissulega þvert á ráðleggingar og
kröfur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
En á hverja ætlar ríkisstjórnin að
hlusta: AGS og Samtök atvinnu-
lífsins eða Finna og BSRB? Hvort
skyldi nú vera meira í takt við þá
norrænu velferðarstjórn sem rík-
isstjórnin segist vera?
Höfundur er formaður BSRB.
Á hverja hlustar
ríkisstjórnin?
ELÍN BJÖRG
JÓNSDÓTTIR
JANOS HERMAN
Aðför að fæðingarorlofinu
veldur miklum vonbrigðum og
spyrja má: Hvernig stendur á
að ríkisstjórn sem segist hafa
„sett jafnrétti kynja, mann-
réttindi og kvenfrelsi í önd-
vegi“ ætli sér að ganga á bak
orða sinna með þessum hætti?
Dagskrá:
13:30 Setning
Antra Carlsen, framkvæmdastjóri NVL
13:35 NVL; að koma á sambandi
Sigrún Kristín Magnúsdóttir fulltrúi Íslands í tengslaneti NVL
13:50 . . en þið á Íslandi? Starfað í norrænum starfshópi
Bernharður Guðmundsson, í samstarfshópi um eldri starfsmenn
í atvinnulífi nu
14:05 Nordplus voksen – nokkrar matarholur
Ragnhildur Zoëga, verkefnastjóri Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins
14:20 Hvað græði ég á norrænu samstarfi ?
Hróbjartur Árnason, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands
14:35 Hlé – Kaffi
14:55 Hvaða verkefni er þörf fyrir á Íslandi
Hróbjartur Árnason, stýrir þankahríð og hópastarfi
16:30 Slit
Fundarstjóri: Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis
Þátttakendur þurfa að skrá sig á
www.frae.is/taekifaeri-i-norraenu-samstarfi
Fimmtudaginn 3. desember 2009
Hótel Sögu, Yale
NVL og Nordplus á Íslandi bjóða til
RÁÐSTEFNU UM
TÆKIFÆRI Í
NORRÆNU SAMSTARFI?
Á ráðstefnunni verður styrkjaáætlun Norrænu ráðherra-
nefndarinnar um fullorðinsfræðslu kynnt sem og tækifæri
í gegnum Norræna tengslanetið um nám fullorðinna