Fréttablaðið - 01.12.2009, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 1. desember 2009 3
Hreyfing getur haft góð áhrif
á timburmenn en hún bætir
ekki upp þann skaða sem mikil
áfengisneysla veldur.
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar
breskrar könnunar stundar einn af
hverjum fimm Bretum líkamsrækt
til að bæta upp fyrir áfengisneyslu
en jafnmargir Bretar drekka
meira en helmingi meira áfengi á
degi hverjum en ráðlagt er. Sam-
kvæmt National Health Service
(NHS) er konum ráðið frá því að
drekka meira en tvö lítil vínglös á
dag og karlar mega fá þrjú.
Sumir halda því fram að með því
að hreyfa sig og svitna dragi þeir
úr skaðlegum áhrifum áfengisins
á líkamann en einu áhrifin eru í
raun skárri líðan. „Áhrifin á lifr-
ina og fleiri líffæri eru eftir sem
áður hin sömu,“ segja forsvars-
menn átaks á vegum bresku ríkis-
stjórnarinnar sem ber yfirskrift-
ina Þekktu takmörk þín eða Know
Your Limits. -ve
Hreyfing lagar ekki allt
Skaðleg áhrif áfengis á lifur og önnur líffæri eru þau sömu hvort sem hreyfing fylgir í
kjölfar áfengisneyslu eða ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Hér þarf engan heilsumatseðil
því allur matur frá okkur er holl-
ur og góður,“ segir Sólveig Guð-
mundsdóttir eigandi og stofnandi
skyndibitastaðarins Culiacan að
Faxafeni 9 og í Smáralind (inni í
Hagkaup). Sólveig stofnaði staðinn
í maí árið 2003 að bandarískri fyr-
irmynd en hún var í námi í Banda-
ríkjunum um skeið og er iðnhönn-
uður að mennt.
„Ég féll gersamlega fyrir þess-
um mat,“ segir hún en Sólveig
hefur lengi haft áhuga á líkams-
rækt og forðast að borða brasaðan
og djúpsteiktan mat og kýs heldur
hollustuna. „Þetta er því hinn full-
komni matur fyrir mér,“ segir hún
en á Culiacan er maturinn, hvort
sem er kjúklingur, grænmeti eða
annað, grillaður en ekki steiktur.
Þá er ávallt notað ferskt hráefni
í sósurnar og á hverjum morgni
er búið til ferskt salsa og guac am-
ole.
„Hingað kemur mikið af íþrótta-
fólki til að borða, bæði fitnessfólk
og annað íþróttafólk. Til dæmis
koma hingað lið fyrir leiki því
maturinn er toppbensín og er auk
þess léttur í maga,“ útskýrir Sól-
veig og bætir við að maturinn sé
fitulítill og fullur af vítamínum
enda aðeins notað ferskt hráefni
og ferskar kryddjurtir.
Á matseðli Culiacan eru ávallt
fastir liðir á borð við burrito,
tacos, quesadillas, salat og nachos.
„Við reynum einnig að koma
reglulega með nýjar útfærslur út
frá sama holla hugtakinnu,“ segir
Sólveig en nýjasti rétturinn heit-
ir Tostada. „Þetta er pítsa á mex-
íkóskan máta,“ lýsir hún og tekur
fram að réttinn sé aðeins hægt að
fá á Culiacan. „Í botninn er tort-
illa, heilhveiti eða venjuleg. Svo
er á þessu sterk salsasósa sem við
búum til á hverjum morgni frá
grunni. Síðan er kornsalsa sem
í eru maísbaunir, chili, límóna,
kóríander, salt og pipar, mulið
nachos, ostur og loks grillaður
kjúklingur að hætti Culiacan,“
segir Sólveig en rétturinn er bor-
inn fram með guacamole og sýrð-
um rjóma. Marineringin á kjúkl-
ingnum hefur verið í þróun í mörg
ár. „Við erum nú loksins komin
með það frábæra grillbragð sem
við vildum,” segir hún og bætir
glettin við að margir viðskipta-
vinir haldi að maturinn hljóti að
vera fitandi þar sem hann sé svo
góður. Hins vegar verði þeir glað-
ir þegar þeir heyra að hollustan
sé í fyrirrúmi.
Til nánari glöggvunar á mat-
seðli og verði má benda á vefsíð-
una www.culiacan.is.
Grillað og gómsætt á hverjum degi
Á veitingastaðnum Culiacan fæst bragðgóður skyndibiti á mexíkóska vísu. Þar er áhersla lögð á ferskt hráefni, hollustu og ekta grillbragð.
Nýjasti rétturinn kallast Tostada og er pitsa á mexíkóskan máta, en hún er aðeins fáanleg á Culiacan.
Með því að lyfta lóðum
byggir maður upp vöðva-
massa líkamans. Þar sem
vöðvarnir brenna hita-
einingum verður meiri
brennsla eftir því sem vöðvamassinn er þéttari. Og
með reglubundinni vöðvastyrkingu ýtir maður undir
fitubrennslu allan sólarhringinn.
500 hollráð
Kynning
Sólveig Guðmundsdóttir leggur mikla áherslu á hollan og góðan mat, sem gerður er úr fersku hráefni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M