Fréttablaðið - 01.12.2009, Side 33
ÞRIÐJUDAGUR 1. desember 2009 29
UMRÆÐAN
Dofri Hermannsson
skrifar um atvinnumál
Allir vita að fjölbreytt atvinnulíf er sveigj-
anlegra og samkeppnis-
hæfara en einhæft og að
fjölga þarf undirstöðum
atvinnulífsins. Þó þetta
hafi lengi verið vitað
er stutt síðan stjórn-
völd fóru markvisst að
bæta hag hátækni- og sprotafyr-
irtækja, ferðaþjónustu, skapandi
iðnaðar og annarra fyrirtækja
þar sem flest störf skapast og ein-
staklingar geta hafið rekstur án
mikils stofnkostnaðar.
Þvert á heildarhagsmuni
atvinnulífsins hafa stjórnvöld
lagt ofuráherslu á einn atvinnu-
veg umfram aðra, stóriðju. Sú
staðreynd að þessi iðnaður skap-
ar einungis lítinn hluta af verð-
mætaaukningu landsframleiðsl-
unnar og aðeins um 1-2% allra
starfa í landinu vekur óneitanlega
grun um að stjórnmálamenn hafi
frekar verið farþegar í þessari
þróun en gerendur þótt þeir hafi
oft haft hönd á stýri. Nánar um
það síðar.
Í leit að þeim sem í raun hafa
stýrt þróun mála í atvinnulífi
landsmanna undanfarinn áratug
berast böndin fyrst að Samtök-
um atvinnulífsins, öflugum sam-
tökum með um 300 milljónir í
iðgjaldatekjur á ári. Innan þeirra
samtaka eru Samtök iðnaðarins
afar sterk, Samtök verslunar og
þjónustu greiða mikið til SA og
það gerðu líka Samtök fjármála-
fyrirtækja hvað sem verður. LÍÚ
greiða mun minna til SA en eiga
þó fulltrúa í framkvæmdastjórn-
inni á meðan Samtök ferðaþjón-
ustunnar verða að láta sér nægja
áheyrnarfulltrúa þrátt fyrir að
greiða litlu minna en LÍÚ í sjóði
SA. Þetta vekur athygli.
Það er eðli samtaka að þrátt
fyrir fagra stefnu sem allir geta
skrifað undir vega hagsmunir
fárra öflugra aðila iðulega þyngra
en hagsmunir hinna smærri og
mörgu þegar á hólminn er komið.
Í þessu má e.t.v. finna skýr-
inguna á að Samtök ferðaþjón-
ustunnar hafa ekki völd í sam-
ræmi við gjöld og að þau, ásamt
SVÞ og yfirgnæfandi fjölda fyr-
irtækja innan SI, létu yfir sig
ganga hækkun tryggingargjalds
svo stóriðja og útgerð sleppi við
auðlindaskatt. Þar náðu fáir stór-
ir aðilar að velta byrðum sínum
yfir á fjöldann í krafti valda sem
hvorki verður réttlættur með
fjölda fyrirtækja eða framlagi í
krónum til Samtaka atvinnulífs-
ins.
Þessi lýðræðishalli er einnig
áberandi innan Samtaka iðnaðar-
ins. Ástæðan kann að vera að SI
eru tryggðar tekjur með lögum um
iðnaðarmálagjald sem er hlutfall
af veltu alls iðnaðar. Innan sam-
takanna eru yfir 1.200 fyrirtæki
sem skiptast í heilbrigðistækni-
iðnað, húsgagnaiðnað, líftækni-
iðnað, mannvirkjagerð, matvæla-
iðnað, málmiðnað, prentiðnað,
sprotafyrirtæki, stóriðju, upplýs-
ingatækniiðnað og þjónustuiðn-
að. Ekki þarf að efast um að þetta
fyrirkomulag, að tekjur
SI eru hlutfall af veltu
fyrirtækja, hefur áhrif
á ákvarðanir stjórnar SI
veltumiklum iðnaði í hag.
Einkum þegar fáir stórir
aðilar eru í aðstöðu til að
þvinga sérhagsmuni sína
í gegn.
Í stjórn SI á hinn
veltumikli þungaiðnað-
ur sterka fulltrúa, vara-
formann sem er forstjóri
stórs steypufyrirtækis
og tvo meðstjórnendur, forstjóra
stórs byggingarfyrirtækis og for-
stjóra risaálvers. Þessir aðilar eru
duglegir að minna stjórnendur
samtakanna á hverjir borga hæstu
iðgjöldin og þótt fjárfesting á bak
við hvert starf í stóriðju og mann-
virkjum þeim tengdum sé marg-
falt dýrari en í tækni- og þekk-
ingariðnaði er hagsmunum þeirra
síðarnefndu hiklaust varpað fyrir
róða til að létta hinum veltumikla
mannvirkjageira róður sinn.
Fyrir skömmu mættu ýmsir
valda- og veltumiklu aðilar á fund
iðnaðarnefndar. Þar var ekki blíð-
mælgi fyrir að fara heldur voru
kjörnir fulltrúar almennings beitt-
ir þrýstingi og háværum skömm-
um af þessum aðilum sem kría
vildu út sérkjör fyrir sig á kostnað
almenns atvinnulífs og launþega.
Einn kjörinn fulltrúi minnti á að
Alþingi bæri að taka tillit til heild-
arhagsmuna og þeirra fjölmörgu
sem ekki ættu fulltrúa eins og þá
til að beita fyrir sig gegn þing-
mönnum þjóðarinnar. Sú athuga-
semd vakti litla hrifningu hinna
kröfuhörðu gesta.
Það hafa ekki allir kjörnir full-
trúar þann styrk sem þarf til að
standa í lappirnar gagnvart öflug-
um og vel skipulögðum sérhags-
munahópum og sumum finnst
heppilegra að láta 300 milljón
króna mulningsvélar vinna með
sér en á móti. Það er því mikil-
vægt að kjósendur viti hvernig í
pottinn er búið þegar umræður
um atvinnumál fara fram. Þar er
ekki allt á yfirborðinu og hags-
munir fárra eru iðulega teknir
fram yfir hagsmuni fjöldans.
Í næstu grein um atvinnulíf-
ið mun ég ræða um möguleika
hátækni- og þekkingariðnaðar,
ferðaþjónustu og skapandi iðn-
aðar til vaxtar, um mikla mögu-
leika á fjölgun starfa innan þess-
ara greina og hvað þarf til að svo
verði.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar og verkefnis-
stjóri í Hátækni- og sprotavett-
vangi.
Atvinnulífið I: Vélin sem knýr stóriðjustefnuna
DOFRI
HERMANNSSON
Þvert á heildarhagsmuni
atvinnulífsins hafa stjórn-
völd lagt ofuráherslu á einn
atvinnuveg umfram aðra,
stóriðju.
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
Sími 565 5454 | www.fridaskart.is
íslensk hönnun
og handverk