Fréttablaðið - 01.12.2009, Side 40
36 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ALGJÖR VINNUALKI
Lady Gaga segist aldrei fara út að
skemmta sér því hún sé of einbeitt
að vinnu sinni. Í viðtali við sjón-
varpsstöðina MTV segist söngkon-
an óttast að eiga aldrei eftir að geta
skemmt sér. „Ég fer aldrei á nætur-
klúbba. Ég elska vinnuna mína of
mikið og vil ekki að timburmenn
hafi áhrif á það sem ég er að gera.
Mér finnst mjög erfitt að fara út að
skemmta mér almennilega.“
Ellen Kristjánsdóttir gaf nýlega
út sína fyrstu plötu í tvö ár. Hún
nefnist Draumey og hefur að
geyma hugljúf lög sem flest eru
eftir Ellen og Pétur Ben, sem einn-
ig tók upp plötuna. „Ég var búin
að liggja á hálfkláruðu efni mjög
lengi. Svo kom þetta tilboð um að
hita upp fyrir Eric Clapton í fyrra.
Þá fórum við saman og æfðum
nokkur lög og svo fór ég upp í sveit
í janúar á þessu ári,“ segir Ellen.
„Ég var ein með hundinn í viku
með upptökutæki, hörpu og gítar
og tók upp alveg rosalega mikið af
lögum.“ Hún segir að Clapton hafi
hvatt sig til dáða við plötugerð-
ina á tónleikunum í Egilshöllinni
„Hann hlustaði allan tímann og
sagði: „Þið verðið að klára þetta og
senda okkur plötu þegar þið eruð
búin með hana“.“ Draumey hefur
þó enn ekki ratað til gítarsnill-
ingsins. „Ég er ekki búin að senda
hana. Ég verð að fara að gera það.
Hann fékk Sálmana. Það var eina
platan sem ég var með í bílnum,“
segir hún og hlær. Hún bætir við
að Draumey sé nokkurs konar upp-
gjörsplata þar sem hún syngur um
æsku sína í San Francisco, föður
sinn heitinn og unglingsár einnar
af dætrum sínum.
Ellen hefur í nógu að snúast þessa
dagana því fjölmargir tónleikar
eru fram undan. Á miðvikudaginn
heldur hún tvenna aðventutónleika
með bróður sínum KK í Borgar-
leikhúsinu og 5. desember syngur
hún með Borgardætrum á stórtón-
leikum Björgvins Halldórssonar.
10. desember verða síðan útgáfu-
tónleikar vegna nýju plötunnar í
Fríkirkjunni. Jafnframt eru fernir
tónleikar á Rósenberg með Borgar-
dætrum fyrirhugaðir. - fb
Clapton bíður eftir Draumey
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR Ellen hefur
gefið út sína fyrstu plötu í tvö ár sem
nefnist Draumey. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Undirbúningur fyrir Spice Girls-
söngleik er nú í fullum gangi. Sam-
kvæmt heimildum breska dag-
blaðsins The Sun er búið að ákveða
frumsýningardag og er nú verið að
skrifa handritið, en söngleikurinn
mun heita Viva Forever eftir lagi
sveitarinnar sem kom út árið 1998.
Handritshöfundurinn er Kim
Fuller, en hann skrifaði einnig
handrit fyrir bíómynd sem gerð
var um stelpurnar árið 1997, Spice
World. Það er ef til vill engin tilvilj-
un að Kim var falið að skrifa hand-
ritið, en hann er bróðir stofnanda
sveitarinnar, Simon Fuller. Fram-
kvæmdastjóri söngleiksins er hins
vegar kryddpían Geri Halliwell, en
hún mun hafa átt hugmyndina að
verkefninu. Í söngleiknum verður
saga kryddpíanna rakin og fjórtán
af þeirra vinsælustu lögum sungin.
Áætlaður frumsýningartími á West
End er í byrjun nóvember á næsta
ári og telja margir að söngleikurinn
muni slá öll aðsóknarmet.
Spice Girls-söng-
leikur í vinnslu
SPICE GIRLS Á WEST END Söngleikur um Spice Girls er nú í vinnslu, en kryddpían
Geri Halliwell mun hafa átt hugmyndina.
Vinkonurnar Sesselja G. Vilhjálms-
dóttir og Valgerður Halldórsdótt-
ir senda í vikunni frá sér borðspil-
ið Heilaspuni. Spilið er byggt á
íslenskri, tungu, þjóðlífi, menningu
og sögu. „Þetta er keppni í hver er
bestur í að bulla og vera skapandi,“
segja þær. „Ef þú ert í skemmti-
legum hópi getur þetta verið mjög
fyndið spil.“
Alls eru 2.500 spurningar í spil-
inu í fimm flokkum: Orð, slangur,
atburðir, bækur og heilahristing-
ur. Leikmenn semja líkleg svör við
ýmsum spurningum í þeim tilgangi
að plata meðspilara sína og fá þá til
að giska á að svör þeirra séu þau
réttu. Spilið er í anda eldra spils,
Fimbulfambs, en að sögn þeirra
stallsystra, töluvert fjölbreyttara.
Sesselja og Valgerður ákváðu að
búa spilið til í sumar þegar þær voru
báðar án atvinnu. „Við höfum allt-
af haft gaman af alls konar spil-
um og okkur fannst vanta svona spil
á Íslandi. Maður þarf ekki að vera
klárasti maðurinn á landinu til að
spila það heldur bara að vera frjór.“
Þær fóru á Þjóðarbókhlöðuna til að
semja spurningarnar og tók verkið
aðeins tvær til þrjár vikur. „Við erum
örugglega búnar að lesa allar orða-
bækur Íslandssögunnar,“ segja þær
og hlæja.
Anna Rakel Róbertsdóttir var graf-
ískur hönnuður spilsins og Bobby
Breiðholt teiknaði myndina framan á
spilinu þar sem margar af þekktustu
persónum Íslandssögunnar koma við
sögu. -fb
Vinkonur búa til Heilaspuna
MEÐ NÝTT SPIL Vinkonurnar Sesselja G. Vil-
hjálmsdóttir og Valgerður Halldórsdóttir hafa
samið borðspilið Heilaspuni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
þriðjudaginn 01.12. kl 20:00
í Bókabúð Máls & menningar
Súfistakvöld
Gunnar Hilmarsson, for-
maður Fatahönnunarfélags
Íslands, segir það gríðar-
lega jákvæða kynningu
fyrir íslenska hönnun að
stjórstjörnur á borð við
Beyoncé og Kylie Minogue
skuli sýna henni áhuga.
Íslensk fatahönnun hefur verið í
mikilli sókn undanfarið og greindi
Fréttablaðið nýlega frá því að
söngkonurnar Beyoncé og Kylie
Minogue hafi báðar fest kaup á
íslenskri hönnun, auk þess sem
norska prinsessan, Metter-Marit,
er mikill aðdáandi útivistarfatn-
aðar frá Cintamani. Að auki hefur
sést til leikstjórans Quentins Tar-
antino í yfirhöfn frá 66° Norð-
ur og söngkonunnar Gwen Stef-
ani í flík úr línu sem Andersen &
Lauth hannaði fyrir tískuverslun-
ina Urban Outfitters. Einnig hafa
stórstjörnurnar Johnny Depp og
Nicole Kidman klæðst flíkum
frá Andersen & Lauth á forsíðum
tímarita.
„Það að stórstjörnur sem þess-
ar skuli sjást í íslenskri hönnun
er auðvitað gríðarlega jákvæð
kynning fyrir íslenska fatahönn-
un. Þetta er bæði afskaplega góð
auglýsing fyrir hönnuði og auð-
vitað ákveðin viðurkenning fyrir
þá þegar svona gerist. Þetta þýðir
líka það að hönnunin er komin á
markað og fólk er að taka eftir
henni,“ segir Gunnar Hilmarsson.
Hann segir auglýsingu sem þessa
hjálpa til við að koma íslenskri
hönnun inn á kortið auk þess sem
það hjálpar til við markaðssetn-
ingu og gefur fólki þannig aukinn
byr í seglin.
Þegar Gunnar er spurður nánar
út í hönnun Andersen & Lauth fyrir
Urban Outfitters segir hann fyrir-
tækið hafa hannað þrjár línur fyrir
verslunina. „Við gerðum með þeim
þrjár línur fyrir Bandaríkjamark-
að og síðasta línan fór í sölu nú í
vor. Samstarfið gekk mjög vel og
þeir vildu halda því áfram en við
höfðum því miður ekki tíma fyrir
fleiri hliðarverkefni þar sem við
vorum að byggja upp okkar eigið
nafn.“
Gunnar telur ekki ólíklegt að
Ísland verði innan skamms komið
í hóp hinna Norðurlandanna sem
eru orðin heimsþekkt fyrir vand-
aða og fallega hönnun. „Mér finnst
það alls ekki ólíklegt, við eigum til
nóg af hæfileikaríku fólki,“ segir
hann að lokum. - sm
Beyoncé góð auglýsing
fyrir íslenska hönnun
ÍSLENSK HÖNNUN Á KORTIÐ Gunnar Hilmarsson, fatahönnuður og formaður Fata-
hönnunarfélags Íslands, segir það góða auglýsingu fyrir hönnuð ef frægur einstakl-
ingur klæðist flíkum hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Við höfum spilað saman í sirka tíu
ár undir mismunandi nöfnum, en
þessi hljómsveit hefur verið starf-
andi í tvö ár,“ segir Óskar Guðjóns-
son, saxófónleikari hljómsveitarinn-
ar Adhd, sem hefur gefið út plötu
með sama heiti. Þetta er fyrsta plata
hljómsveitarinnar og var hún tekin
upp í sumar í stofunni heima hjá
Óskari, en með honum í sveitinni eru
Davíð Örn Þórsson hljómborðs leik-
ari, Ómar Guðjónsson á gítar og
Magnús Tryggvason Elíassen sem
leikur á trommur. „Við höfðum góða
aðstöðu heima í stofunni hjá Óskari
og okkur fannst þessi heimilislega
stemning koma vel fram í upptök-
unum. Við höfðum afnot af mjög
góðum upptökutækjum og eyddum
miklum tíma í það að fá gott hljóð og
drukkum kaffi og borðuðum steikt-
an silung,“ útskýrir Ómar.
Hljómsveitarmeðlimirnir hafa
allir numið við djassdeild FÍH og
hafa komið víða við á fimmtán ára
löngum tónlistarferli. Tónlist sveit-
arinnar mætti lýsa sem afslappaðri
djasstónlist með heimilislegum blæ
sem mun róa landann í jólaösinni.
Sérstakir útgáfutónleikar verða
haldnir hinn 13. desember í Þjóð-
menningarhúsinu. Nánari tímasetn-
ing verður auglýst seinna. -sm
Tónlist sem róar
íslensku þjóðina
HEIMILISLEGIR Meðlimir Adhd segjast
vera fullir af orku sem þeir nýti í tónlist-
arsköpun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA