Fréttablaðið - 03.12.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
3. desember 2009 — 286. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
NÆRFATATÍSKA SONIU RYKIEL sem hún hefur
hannað fyrir verslunarkeðjuna H&M var frumsýnd á tískupöllum
í París í vikunni. Á sviðinu var mikið um dýrðir, heill Eiffel-turn,
parísarhjól, róla og óteljandi ljós. Fremst í flokki fyrirsætna fór
Lily Cole, sem hélt í beislið á risastóru hestshöfði.
„Í raun eru eftirlætisflíkurnar mínar hlýja, gleði og góð lykt,“
segir Tinna Kristjánsdóttir glað-lega þegar hún er innt eftir fata-stíl sínum. „Á myndinni er éghins vegar í ull f
í gamla Fálkahúsinu á Suðurlands-braut.“
Ullarpeysuna og -sjalið keyptiTinna á útsölumark ðiN
Tinna mun föndra skraut-ið sitt fram að jólum en f iáramót b
Í ull frá toppi til táarTinna Kristjánsdóttir velur fötin sín út frá því hvort þau haldi á henni hita. Einkum og sér í lagi heldur
hún upp á handstúkur sem ylja henni við jólaskrautsgerðina sem hún stundar grimmt.
Tinna Kristjánsdóttir í ullarpeysu, með ullarsjal og ullarhandstúkur sem hún heldur mikið upp á. „Ullin heldur í mér lífinu þessa
dagana,“ segir leikkonan upprennandi en Tinna stefnir á leiklistarnám í New York á nýju ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjölþrepa
bakbrettið• Eykur sveigjanleika• Linar bakverki• Bætir líkamsstöðu• Auðvelt í notkun• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Augnháralitur og augnbrúnaliturTana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!Plokkari með ljósi
VEÐRIÐ Í DAG
TINNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Klæðist hlýrri ull
frá toppi til táar
• tíska • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
JAKKAFÖT
Vönduð, flott og
henta við ólík tilefni
Sérblað um jakkaföt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
Skynsemin
að leiðarljósi
Verslunin Pfaff var
stofnuð fyrir 80
árum.
TÍMAMÓT 38
SÉRBLAÐ • FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
JAKKAFÖT
Mannréttindaráðuneytið
„Í þessu ljósi þarf að skoða
andstöðu ríkisstjórnarinnar við að
fela óháðum erlendum mönnum
rannsókn hrunsins,“ skrifar
Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 26
Seljabraut
Hólsfjallahangikjöt
á www.jolamjolk.is
Frábærir vinningar!
Taktu þátt í
skemmtilegum
jólaleik
Belja &
hlið
GÓÐ NÆRING,
FYRIR HRESSA KRAKKA!
Ó
· 1
29
64
FJÁRMÁL Norræni fjárfestingarbankinn (NIB)
sendi nokkrum sveitarfélögum og Lánasjóði
sveitarfélaga erindi um að vextir á þeim lánum
sem komin væru til endurskoðunar yrðu
hækkaðir umtalsvert. Ástæðan væri verra
lánshæfismat.
Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, segir að í nokkrum tilvikum
hafi tilskilins tilkynningarfrests ekki verið
gætt og vaxtahækkun á þeim lánum frestist
því. Tilkynna þarf um vaxtabreytingar með 45
daga fyrirvara.
Fjármálaráðherra fundaði með fulltrúum
bankans í gær og embættismenn í kjölfarið.
„Við töldum ástæðu til að funda með
fjárfestingarbankanum bæði vegna þessa og
annarra mála sem varða samskipti Íslands
og bankans,“ segir Guðmundur. Þar er vísað
til mála sem snúa að óskum bankans um lán
hans til gömlu bankanna. Fjármálaráðherrar
Norðurlandanna funda á morgun og segir
Guðmundur líklegt að málið verði rætt þar.
Orkuveita Reykjavíkur er greiðandi tveggja
lána sem Reykjavíkurborg tók á sínum tíma,
en þau fluttust til fyrirtækisins með veituverk-
efnum. Anna Skúladóttir fjármálastjóri stað-
festir að bankinn hafi tilkynnt hækkun, en vill
ekki tilgreina hve mikla. „Þeir vildu hækka
um töluvert marga punkta.“ Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins var um margfalda
hækkun vaxtaprósentunnar að ræða.
Bankinn er sameign Norðurlandanna
og Eystrasaltsríkjanna og situr Þorsteinn
Þorsteinsson í stjórn hans fyrir Íslands hönd.
Hann var staddur erlendis í gær og náðist ekki
í hann. Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Lánasjóðs sveitarfélaga, vildi ekki tjá sig um
málið. Lánasjóðurinn hefði staðið við allar
sínar skuldbindingar.
Ríkisútvarpið greindi frá því í júlí að bank-
inn væri hættur að lána íslenskum fyrirtækj-
um. Helmingur af tapi bankans á síðasta ári
hafi verið vegna íslenskra lána. Heildartapið
nam 145 milljónum evra, um 26,5 milljörðum
króna að núvirði. - kóp
NIB hækkar vexti umtals-
vert til íslenskra lánshafa
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hefur tilkynnt íslenskum lánshöfum um hækkun vaxta á lánum.
Ber við verra lánshæfismati. Fjármálaráðherra tekur málið upp á fundi norrænna fjármálaráðherra.
Hvasst norðvestan til Í dag
má búast við strekkingi eða
allhvössum vindi norðvestanlands
en hægari vindi annars staðar.
Norðan til eru horfur á snjókomu,
slyddu norðaustanlands og
skúrum SA-til.
VEÐUR 4
2
-2 0
2
3
Vill fleiri skattþrep
Skattkerfið á Íslandi
er það hægri-
sinnaðasta af
skattkerfum allra
efnaðra ríkja innan
OECD, skrifar Jón
Steinsson, lektor í
hagfræði
UMRÆÐAN 34
Á leið til Öster
FH-ingurinn Davíð
Þór Viðarsson mun
væntanlega semja við
sænska félagið
Öster í dag.
ÍÞRÓTTIR 62
UNNIÐ AF KRAFTI Guðjón Árnason var niðursokkinn í vinnu sína þegar Fréttablaðið bar að garði í gær. Hann pússaði þetta
fagra tré af miklum móð en gaf sér þó tíma til að sitja fyrir á mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓLK Starfsmenn handverkstæð-
isins Ásgarðs í Álafosskvosinni
vinna nú hörðum höndum að
undirbúningi síns árlega jóla-
markaðar, sem haldinn verður á
laugardag. Þar verður handverk
starfsmanna selt og sýnt, auk
þess sem KK treður upp í kaffi-
salnum.
„Við erum alltaf í jólaskapi allt
árið,“ segir Óskar Albertsson,
talsmaður Ásgarðs. Hann á von
á því að mikill fjöldi leggi leið
sína í kvosina á laugardag venju
samkvæmt. Þar verður hægt að
kaupa smíðisgripi í jólapakkana,
bæði listmuni og leikföng.
- sh / sjá síðu 18
Mikið annríki einkennir starfsemi Ásgarðs í Mosfellsbæ fyrir jólin:
Selja listmuni í bílförmum
SAMFÉLAGSMÁL Aðstæður kvenna
frá löndum utan Evrópska efna-
hagssvæðisins sem leita ásjár
Kvennaathvarfsins eru verri
en kynsystra
þeirra frá lönd-
um innan svæð-
isins. Þetta
kemur fram í
niðurstöðum
rannsóknar
Hildar Guð-
mundsdóttur á
aðstæðum og
upplifun kvenna
af erlend-
um uppruna sem leita til
Kvennaathvarfsins.
Hildur segir erlendar konur
utan EES á valdi maka sinna
fyrstu árin sem þær hafi dvalar-
leyfi hér. Nauðsynlegt sé að finna
úrræði fyrir þær, sem fastar eru í
viðjum ofbeldisfullra sambanda.
Dæmi er um að tvær konur af
erlendum uppruna hafa leitað til
Kvennaathvarfsins vegna sama
mannsins. - jab / sjá síðu 10
Misgóðar aðstæður kvenna:
Konur fastar í
viðjum ofbeldis
HILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR