Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 6
6 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Ásta Magnúsdóttir
var í gær skipuð í embætti ráðu-
neytisstjóra mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytis frá og með
síðustu mánaðamótum.
Ásta Magnúsdóttir lauk LLM-
prófi í Evrópurétti frá Háskól-
anum í Leicester á þessu ári en
embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands árið 1989.
Undanfarin ár hefur Ásta
starfað sem skrifstofustjóri hjá
EFTA í Brussel og stýrt þar
þætti sem snertir rekstur EES-
samningsins. 25 umsóknir bár-
ust um embættið. Ásta tekur
við af Þórhalli Vilhjálmssyni
sem gegndi því tímabundið eftir
afsögn Baldurs Guðlaugssonar.
- pg
Nýr ráðuneytisstjóri:
Frá EFTA til
menntamála-
ráðuneytisins
300 milljónir til forvarna
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag
Íslands hefur greitt út 300 milljónir
króna til þeirra sveitarfélaga sem
aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ.
Mælst er til þess að fénu verði varið
til forvarna og brunavarna.
Jóladagatöl Umferðarstofu
Í ár er Umferðarstofa með tvö rafræn
jóladagatöl. Annað dagatalið er sér-
staklega ætlað grunnskólanemendum
en það má finna á vefnum www.
umferd.is. Jóladagatal ætlað eldri
krökkum og fullorðnum verður á vef
Umferðarstofu www.us.is. Á hverjum
degi verða heppnir vinningshafar
dregnir út.
ÖRYGGISMÁL
Nýr fulltrúi í landsdóm
Nýr varamaður í landsdóm verður kos-
inn á Alþingi í dag. Unnur Brá Konráðs-
dóttir hefur verið varamaður síðustu
fjögur árin en hún situr nú á þingi.
ALÞINGI
HEILBRIGÐISMÁL „Ég óttast að hluti
af fórnarkostnaði kreppunnar hjá
okkur verði lenging biðlista að
nýju,“ segir Björn Zoëga, forstjóri
Landspítalans.
Biðlistar á sjúkrahúsum fyrir
nær allar valdar skurðaðgerðir
hafa verið að styttast og staðan er
almennt góð, samkvæmt október-
tölum frá Landlæknisembættinu.
Má sem dæmi nefna að langur
biðlisti var fyrir hjartaþræðingar
á Landspítala á árunum 2007 og
2008 en sá biðlisti er nú nær horf-
inn. „Við verðum að minnka fram-
boð á þjónustu eins og á svokölluð-
um valaðgerðum,“ segir Björn.
Laun eru langstærsti útgjalda-
liður Landspítalans. Björn segir
að á næsta ári sé fyrirsjáanlegt að
starfsfólki fækki um 200 manns.
„Við höfum sagt að helmingi þeirr-
ar tölu verði náð með starfsmanna-
veltu. Í jafn sérhæfðri starfsemi
og okkar er það erfitt en reynt
verður að fara þessa leið í stað
uppsagna.“
Öll laun á Landspítalanum hafa
lækkað á þessu ári nema þeirra
launalægstu. Það felst í ger-
breyttri starfsemi. Öll þjónusta
hefur verið minnkuð um kvöld og
helgar. Launalækkanir eru mis-
jafnlega miklar eftir stéttum.
Meðaltalið er sjö til tíu prósent,
segir Björn.
Önnur afleiðing niðurskurðar-
ins, og breytinga af hans völdum
innan Landspítalans, sem orðið
hefur vart við að undanförnu er
landflótti fagfólks: lækna, hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraliða. „Þetta
er vissulega byrjað. Ég finn það
innan spítalans og mér er sagt að
rót sé komið á fólk. Það er verið
að bjóða í unga fólkið okkar og
sú eftirspurn kemur aðallega frá
Norðurlöndunum. Það er gert með
því fororði að menn vilji bjarga
fólki frá því ástandi sem hér er,“
segir Björn.
Björn nefnir dæmi um að ekki
þurfi mikið til að auka þrýsting-
inn á menntað starfsfólk spítal-
ans. „Síðasta holskeflan sem reið
hér yfir var í kjölfar frétta um að
McDonald‘s væri að fara úr landi.
Þá sáu menn ástæðu til að reyna
að „bjarga“ fólki frá aðstæðum
sínum. Þetta hangir allt saman.“
Eins og kom fram í Fréttablað-
inu í gær borgar spítalinn nokkur
hundruð milljónir í dráttarvexti á
næsta ári vegna skulda við birgja.
Björn hefur bent á að á sama
tíma og LSH skuldi fyrirtækjum
fé standi þau frammi fyrir lokun
af hálfu opinberra aðila vegna
vanskila á virðisaukaskatti.
svavar@frettabladid.is
Hætt við að kreppan
lengi biðlista að nýju
Forstjóri Landspítalans óttast að biðlistar eftir aðgerðum lengist að nýju vegna
niðurskurðar á fjárveitingum. Síaukinn þrýstingur er á starfsfólk spítalans að
þiggja störf erlendis. Starfsfólki fækkar að líkum um 200 manns árið 2010.
FRÁ LANDSPÍTALA Mikill missir er af hverjum vel menntuðum heilbrigðisstarfsmanni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐBURÐIR Embla Ágústsdóttir er handhafi Kærleiks-
kúlunnar 2009. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
afhenti Kærleikskúluna, sem nefnist Snerting og er
eftir Hrein Friðfinnsson, í Listasafni Reykavíkur í
gærmorgun.
„Kærleikskúlan er veitt framúrskarandi fyrirmynd
á ári hverju. Okkur hjá Styrktarfélaginu þykir Embla
hafa skarað fram úr á árinu með því að vekja athygli
á málefnum fatlaðra en einnig með því að hvetja fólk
til þess að hafa trú á eigin getu,“ segir í tilkynningu
Styrktarfélagsins.
„Embla hefur á engan hátt látið hreyfihömlun
sína hindra sig í að lifa lífinu til fulls og ná háleit-
um markmiðum sínum í námi og starfi. Með því að
miðla af reynslu sinni og lífssýn hefur hún unnið að
því að breyta viðhorfum til fatlaðra og fengið fólk til
að skilja að þó að hreyfihömlun sé sannarlega áskor-
un sé hún ekki endilega hindrun eða afsökun,“ sagði
María Ellingsen leikkona þegar hún afhenti Emblu
Kærleikskúluna í gær.
Í ræðu sinni fjallaði María meðal annars um mikil-
vægi kærleikans og rifjaði upp að hann hefði verið
valinn á þjóðfundinum 14. nóvember síðastliðinn sem
eitt þeirra gilda sem þjóðin vildi hafa að leiðarljósi í
samfélaginu. - óká
FRÁ AFHENDINGU María Ellingsen leikkona afhendir Emblu
Ágústsdóttur Kærleikskúluna 2009 í Listasafni Reykjavíkur.
Hr. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, blessaði kúluna fyrir
afhendingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Snerting, Kærleikskúlan 2009, var afhent með viðhöfn í gær:
Hefur breytt viðhorfum til fatlaðra
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur um að Sigríður Ingvars-
dóttir, dómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur, viki sæti í máli Guð-
mundar Kristjánssonar gegn Árna
Mathiesen, fyrrum ráðherra og
íslenska ríkinu.
Krafan um að Sigríður viki sæti
kom frá Árna og ríkinu í kjöl-
far ummæla Sigríðar á Morgun-
vakt Útvarpsins 15. janúar 2008.
Ummælin eru sögð til þess fallin
að unnt væri að draga óhlutdrægni
Sigríðar í efa sem dómara í málinu,
en þau hafi verið viðhöfð í beinum
tengslum við þá ákvörðun Árna,
sem setts dómsmálaráðherra, að
skipa Þorstein Davíðsson í emb-
ætti héraðsdómara við Héraðsdóm
Norðurlands eystra og Héraðsdóm
Austurlands.
Guðmundur var meðal umsækj-
enda um dómaraembættið og að
áliti sérstakrar matsnefndar hæf-
ari en Þorsteinn til starfans. Þegar
Þorsteinn var engu að síður skip-
aður í embættið ákvað Guðmundur
að stefna ríkinu og Árna Mathie-
sen. Tölvuvert var fjallað um skip-
an Þorsteins í embættið á sínum
tíma, en hann er sonur Davíðs
Oddssonar fyrrverandi forsætis-
ráðherra og seðlabankastjóra.
Í dómi Hæstaréttar er Guð-
mundi gert að greiða kærumáls-
kostnað ríkisins og Árna, alls 150
þúsund krónur. - óká
ÁRNI MATHIESEN Í árslok 2007 tók Árni
Mathiesen, settur dómsmálaráðherra,
Þorstein Davíðsson fram yfir þrjá umsækj-
endur sem matsnefnd taldi hæfari til að
gegna embætti dómara. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Átti að víkja sæti í máli vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar í dómaraembætti:
Vanhæfisúrskurður staðfestur
EFNAHAGSMÁL Vísitala byggingar-
kostnaðar hækkaði um 4,6 pró-
sent frá desember í fyrra til
dagsins í dag. Vinnuliðirnir
hækkuðu um 1,2 prósent en efnis-
liðir um 7,5 prósent. Þetta kemur
fram á vef Hagstofu Íslands.
Hreinir vinnuliðir lækkuðu á
árinu um 2,1 prósent, og munar
þar mestu um áhrif tímabund-
innar endurgreiðslu virðisauka-
skatts á byggingarstað, en hún
hækkaði úr 60 í 100 prósent. Þá
er núna endurgreiddur virðis-
aukaskattur á þjónustu hönnuða
og eftirlitsaðila. Blandaðir liðir
hækkuðu hins vegar um 15,5
prósent. - kóp
Vísitala byggingarkostnaðar:
Kostnaður við
byggingar eykst
FRÁBÆRLEGA
UNNIN ÆVISAGA
saga Runólfs Sveinssonar
sandgræðslustjóra og
algerðar Halldórsdóttur
tir Friðrik G. Olgeirsson.f
læsileg bók um merkaG
frumkvöðla.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
N1 Deildin
KARLAR
Fimmtudagur
Höllin
Seltjarnarnes
Kaplakriki
Ásvellir
Akureyri - Valur
Grótta - Fram
FH - HK
Haukar - Stjarnan
2009 - 2010
19:00
19:30
19:30
19:30
A
u
g
lý
si
n
g
as
ím
i
– Mest lesið
Það er verið að bjóða í
unga fólkið okkar og sú
eftirspurn kemur aðallega
frá Norðurlöndunum.“
BJÖRN ZOËGA
FORSTJÓRI LANDSPÍTALANS
Myndir þú draga úr Icesave-
kröfunum ef þú værir í sporum
Breta og Hollendinga?
Já 63,1
Nei 36,9
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætti að kæra þá frambjóðend-
ur til Alþingis sem ekki skila
fjárhagsuppgjöri samkvæmt
lögum?
Segðu skoðun þína á Visir.is
KJÖRKASSINN