Fréttablaðið - 03.12.2009, Side 19
FIMMTUDAGUR 3. desember 2009 19
Málvísindastofnun Háskóla Íslands fékk hæsta
styrkinn úr Þjóðhátíðarsjóði, en tilkynnt var
um úthlutanir í Þjóðmenningarhúsinu í fyrra-
dag.
Alls bárust Þjóðhátíðarsjóði 259 umsóknir
um styrki að fjárhæð samtals 350 milljónir
króna. Sjóðurinn veitti 65 styrki og nema þeir
samtals 33,9 milljónum króna. Málvísinda-
stofnun fær 1,5 milljónir króna til að safna
málheimildum hjá fólki sem tók þátt í
mállýskurannsókn Björns Guðfinnssonar á
fimmta áratug síðustu aldar og til rannsóknar á
íslensku nútímamáli á níunda áratug 20. aldar.
Sex verkefni fengu einnar milljónar króna
styrk hvert. Víkin – Sjóminjasafnið í Reykja-
vík fékk styrk til að loka dráttar- og lóðs-
bátnum Magna til að koma í veg fyrir frekari
skemmdir.
Ólafsdalsfélagið fékk styrk til að endurreisa
Ólafsdal í Dölum, fyrsta búnaðarskóla landsins,
sem starfaði frá 1880 til 1907.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum fékk tvo einnar milljónar króna styrki.
Annars vegar til að þróa áfram bragarháttaein-
ingu og lagaeiningu í Braga – óðfræðivef. Hins
vegar til að skrá stafrænt um 250 af 1100 hand-
ritum í vörslu Árnastofnunar í Reykjavík.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur fékk milljón
króna styrk til að skanna inn úrval af
ljósmyndum atvinnuljósmyndarans Péturs
Thomsen. Loks fékk Félag áhugamanna um
Bátasafn Breiðafjarðar styrk til að lagfæra
hús í eigu Reykhólahrepps og setja upp safn
báta, verkfæra og annarra muna sem tilheyra
bátasmíði sem og endursmíða gamlan bát sem
verður til sýnis á safninu. - th
Þjóðhátíðarsjóður veitti 65 styrki fyrir samtals um 34 milljónir króna:
Málvísindastofnun fær hæsta styrkinn
Tónleikar til styrktar Borghildi
Guðmundsdóttur, sem berst fyrir
forræði tveggja drengja sinna, sem
nú eru hjá föður sínum í Banda-
ríkjunum, verða haldnir á Class-
ic Rock-veitingastaðnum í Ármúla
klukkan níu annað kvöld.
Mál Borghildar vakti þó nokkra
athygli fjölmiðla síðastliðið sumar
en þá kvað bandarískur dómstóll
upp úrskurð sem skikkaði hana
til að snúa til Bandaríkjanna með
syni sína. Þar stendur hún nú í for-
ræðismáli og er lögfræðikostnað-
ur vegna þess kominn í 400 þúsund
krónur.
Á meðal þeirra sem koma fram
á tónleikunum eru: Dark Har-
vest, Chernobil, Fjandakornið
og Storyteller, Morgan Kane og
Gunni Bjarni og félagar. Þeim sem
vilja veita Borghildi fjárhagslegan
stuðning er einnig bent á banka-
reikninginn: 0323-26-004436 (kt.
290976-4219). - th
Styrktartónleikar í Ármúla:
Berst fyrir for-
ræði barnanna
Styrkur til blindra og sjónskertra
nemenda til náms við Háskóla
Íslands verður veittur í þriðja
skiptið í dag, á alþjóðadegi
fatlaðra.
Styrkurinn er veittur úr Þórs-
teinssjóði og afhendir Jón Torfi
Jónasson, forseti menntavísinda-
sviðs, styrkinn við hátíðlega athöfn
á Háskólatorgi. Að þessu sinni er
hálf milljón króna til úthlutun-
ar sem Blindravinafélag Íslands
lagði fram.
Þórsteinssjóður var stofnaður
af Blindravinafélaginu í desember
árið 2006. Sjóðurinn er hinn fyrsti
sinnar tegundar hérlendis en til-
koma hans hefur aukið möguleika
blindra og sjónskertra til háskóla-
náms. Sjóðurinn er til minningar
um Þórstein Bjarnason, stofnanda
Blindravinafélags Íslands. Auk
þess að veita styrki til náms er
sjóðnum ætlað að efla rannsóknir
sem aukið geta þekkingu á blindu
og skertri sýn. Sérstök áhersla
er lögð á styrki til rannsókna í
félags- og hugvísindum, sem falla
að tilgangi sjóðsins. - th
Alþjóðadagur fatlaðra:
Blindum og
sjónskertum
veittur styrkur
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs og
styrkþegar.
Opið í útibúinu
í Kringlunni
til klukkan 21 í kvöld
Komdu og kynntu þér úrræði
vegna húsnæðis- og bílalána
Að undanförnu höfum við kynnt úrræði með það að markmiði að auðvelda
viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins.
Má þar nefna höfuðstólslækkun og greiðslujöfnun fyrir einstaklinga á:
• verðtryggðum húsnæðislánum
• erlendum húsnæðislánum
• bílalánum og bílasamningum
Úrræðin henta viðskiptavinum misvel og við viljum hjálpa þér að vega
og meta kosti þeirra og galla. Þess vegna bjóðum við viðskiptavinum að
setjast niður með starfsfólki okkar í kvöld og fara ítarlega yfir þau úrræði
sem eru í boði. Ekki verður opið hjá gjaldkerum.
Allir viðskiptavinir Íslandsbanka velkomnir.HV
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-2
0
8
3
Starfsfólk okkar í Þjónustuverinu
verður einnig við símann til kl. 21
í kvöld. Síminn er 440 4000.
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri
Náttúrufræðistofnunar Íslands,
var einróma endurkjörinn sem
formaður Bernarsamningsins á
árlegum fundi aðildarríkja sam-
bandsins í Bern nýlega.
Bernarsamningurinn, samn-
ingur um vernd villtra dýra og
plantna og búsvæða þeirra í
Evrópu, er þrjátíu ára. Fundur-
inn samþykkti sérstaka yfirlýs-
ingu, The Bern Declaration, um
framtíðaráherslur á sviði nátt-
úruverndar í tengslum við ár
Sameinuðu þjóðanna, 2010, um
líffræðilega fjölbreytni.
Fundurinn í ár markaði tíma-
mót þar sem aðildarríkin urðu
fimmtíu með aðild Bosníu-Herse-
góvínu, Svartfjallalandi og
Georgíu. - shá
Bernarsamningurinn 30 ára:
Jón Gunnar
endurkjörinn
JÓN GUNNAR OTTÓSSON Forstjóri Nátt-
úrufræðistofnunar hefur verið endur-
kjörinn formaður Bernarsamningsins.