Fréttablaðið - 03.12.2009, Síða 20
20 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Atvinnumál
Atvinnuleysi er alvarlegt
mál og takast þarf á við það
af sameiginlegum krafti
sveitarfélaga og ríkis, segir
Oddný Sturludóttir. Hefð-
bundnar framkvæmdir eru
ekki endilega besta lausnin
heldur geta forvarnaverk-
efni og frístundaátak skilað
samfélaginu meiru.
Níu prósent Reykvíkinga voru
atvinnulaus í lok október, eða
ríflega 6.300 manns. Rík þörf
er á að bregðast við þessu mikla
atvinnuleysi með aðgerðum og
verkefnum sem stuðla að virkni
atvinnulausra og vinna gegn nei-
kvæðum afleiðingum atvinnu-
leysis, segir Oddný Sturludóttir
formaður atvinnumálahópsins
og borgarfulltrúi Samfylkingar-
innar. „Þetta er risavaxið sam-
félagslegt verkefni sem aldrei
næst árangur í nema við snúum
bökum saman og hugum að fleiri
og fjölbreyttari lausnum.“
Viðhald betra en nýbyggingar
Í skýrslu atvinnumálahópsins,
Leiðbeinandi viðmið um forgangs-
röðun í atvinnumálum, sem kynnt
var í borgarstjórn í fyrradag, eru
nýstárlegar tillögur að forgangs-
röðun fjármagns til að bregðast
við atvinnuleysi í Reykjavík. Í
henni kemur fram að þó að margt
mæli með því að örva atvinnulífið
með verklegum framkvæmdum
sé viðhald mannvirkja í mörgum
tilvikum betri kostur en nýbygg-
ing. Verklegar framkvæmdir séu
nefnilega takmarkaðar að ýmsu
leyti sem tæki til atvinnusköpun-
ar. Þær kalli á kaup og notkun á
innfluttum tækjum og hráefni en
það fé leiði ekki til atvinnusköp-
unar. Þá skapi verklegar fram-
kvæmdir störf fyrir karla frekar
en konur.
Viðhald mannvirkja sé í mörg-
um tilvikum betri kostur en
nýbygging, en dregið hefur úr
fjármagni til viðhalds, bæði fast-
eigna og gatna, um nær helming
á tveimur árum. Það telur Oddný
vera áhyggjuefni.
„Borgarstjórn Reykjavíkur
hefur markað skýra stefnu un
að forgangsraða beri fjármagni
til mannaflsfrekra verkefna. Þó
hefur það ekki legið fyrir með
skýrum hætti hver skilgrein-
ingin er á mannaflsfreku verk-
efni. Nær væri að tala um fram-
kvæmdir eða verkefni sem skapa
flest störf fyrir hverja fjárfesta
krónu. Skoða verður alla virðis-
keðjuna með tilliti til atvinnuleys-
is og samsetningar hópsins sem
atvinnulaus er. Bygging nýrra
húsa leiðir til rekstrarkostnaðar
síðar meir,“ segir Oddný, sem þó
vill leggja áherslu á að þeir leik-
og grunnskólar sem sé á stefnu-
skrá að byggja rísi sem fyrst. „Á
tímum atvinnuleysis er nauðsyn-
legt að vega og meta hver virðis-
aukinn af framkvæmdum er áður
en ráðist er í þær.“
Samfélagsleg verðmæti forvarna
Með virðisauka er átt við samfé-
lagslegan hag eða gróða af fram-
kvæmdinni í framtíðinni. Oddný
bendir á að auðveldara sé að setja
upp reikningsdæmið þegar fjall-
að sé um húsbyggingar og vegi.
Erfiðara geti verið að meta ýmiss
konar óefnisleg verkefni sem
tengist til dæmis forvörnum,
menntun og virkni ungs fólks, frí-
stundum og velferðarmálum. Slík
verkefni geti skilað af sér mikl-
um samfélagslegum verðmæt-
um og komið í veg fyrir kostnað í
framtíðinni.
„Það borgar sig að hugsa vel um
ungu kynslóðina,“ segir Oddný,
sem vel getur séð fyrir sér að
umfangsmikið forvarnar- og frí-
stundaátak meðal ungs fólks eigi
að falla undir mannaflsfrek verk-
efni. Sama gildi um verkefni sem
snúi að því að ná til ungs atvinnu-
lauss fólks og auka virkni þess og
menntun. „Þannig verkefni fælu í
sér að ráða þyrfti fjölda fólks til
að halda utan um verkið og þau
væru gríðarlega góð fjárfesting í
unga fólkinu okkar.“
Í skýrslunni er bent á að hag-
nýtur vandi fylgi arðsemisreikn-
ingum af þess háttar verkefn-
um, því aðferðir skorti til þess að
mæla skýr orsakatengsl á milli
fjárfestinga á þessum sviðum
og framtíðartekjustreymis. Hins
vegar er bent á að til að mynda í
Finnlandi hafi samdráttur í opin-
berum rekstri samfélagið á endan-
um kostað meira en það hefði kost-
að að skapa atvinnu fyrir fleira
fólk. Þar duttu nefnilega ein-
staklingar út af atvinnumarkaði
og komust ekki inn á hann aftur,
með tilheyrandi fjárhagslegum
kostnaði.
Ný störf henti konum sem körlum
Oddný bendir einnig á að huga
þurfi að því að störfin sem skapist
við verk á vegum borgarinnar
þurfi að henta jafnt körlum sem
konum. Karlar vinni flest störf
í byggingariðnaði og þó að þar
sé mikið atvinnuleysi núna sem
þurfi að bregðast við verði líka
að skapa störf sem nýtist konum.
„Þróun atvinnuleysis er líka
þannig að það bitnar fyrr á körl-
um en verður meira langvarandi
hjá konum,“ segir Oddný.
Hún bindur vonir við að viðmið-
in verði höfð til hliðsjónar í fjár-
lagagerð borgarinnar næsta ár.
Enn fremur bindur hún miklar
vonir við að borgin og ríkið taki
saman höndum í baráttunni við
atvinnuleysi. Sú samvinna gæti
skilað miklum árangri. „Ég vil sjá
borg og ríki móta sér samvinnu-
áætlun hið fyrsta, við berum öll
í sameiningu ábyrgð á fólkinu
okkar.“ Hún nefnir sem dæmi
að borgin komi í auknum mæli
að verkefni þar sem starfsmenn
væru á atvinnuleysisbótum en
borgin greiddi á milli samkvæmt
launataxta. Einnig sé vænlegt
að koma á fót starfsþjálfunar-
störfum, sem nýttust til dæmis
þeim sem væru nýbúnir í námi
en kæmu að lokuðum dyrum í
atvinnuástandinu núna. „Það þarf
að halda ungu fólki virku og huga
að menntun þess. Dæmin sanna að
ef það er ekki gert ber samfélagið
á endanum mikinn kostnað af.“
Forvarnir samfélagslega verðmætar
■ Níu prósent Reykvíkinga voru á
atvinnuleysisskrá í októberlok,
eða 6.374. Næst fjármálastarf-
semi var byggingarstarfsemi sú
atvinnugrein sem efnahags-
hrunið hafði mest áhrif á. Í
ágústlok höfðu fimmtán prósent
atvinnulausra í Reykjavík starfað
síðast í byggingariðnaði.
■ Atvinnuleysi hefur jafnan verið
meira meðal kvenna en karla
en nú eru fleiri karlar en konur
án atvinnu. Reynslan hefur sýnt
að hraðar dregur úr atvinnuleysi
karla en kvenna. Reikna má
með að sama mynstur verði nú
uppi, að atvinnuleysi réni hægar
meðal kvenna en meðal karla.
■ Þótt höfuðborgarsvæðið sé einn
vinnumarkaður er atvinnuleysi
mjög misjafnt innan þess, bæði
er varðar mismun milli sveitar-
félaga og hverfa innan Reykja-
víkur. Atvinnuleysi í október er
hvað hæst í Reykjavík, um níu
prósent, litlu minna í Hafnarfirði
þar sem það er tæp níu prósent
og Kópavogi, þar sem það er
átta prósent. Atvinnuleysi er
lægra í Mosfellsbæ, eða 7,5
prósent, 6,5 prósent í Garðabæ
og allra lægst á Seltjarnarnesi,
tæplega fimm prósent.
■ Innan Reykjavíkur er einnig
töluverður munur eftir hverfum,
hér miðað við póstnúmer.
Atvinnuleysi er mest í póstnúm-
erum 111
og 116,
tæplega
11,5
prósent,
en minnst
í póst-
númeri
103, 6,3
prósent,
og 107 og 108 þar sem það er
um átta prósent.
■ Töluvert skortir á upplýsingar
um félagsleg einkenni hverf-
anna og því er erfitt að greina til
hlítar hvað veldur þessum mun
sem í ljós kemur á atvinnuleysi
eftir sveitarfélögum og hverfum.
Líklegasta skýringin er einfald-
lega sú að menntun og færni sé
ekki jafn dreift milli hverfa.
■ Fyrir liggja upplýsingar um fjölda
atvinnulausra eftir hverfum og
ríkisfangi. Þær tölur sýna að
22,5 prósent atvinnulausra í 101
og 105 eru með erlent ríkisfang
og tæplega tuttugu prósent í
111, en til dæmis aðeins um
ellefu prósent í 109 þar sem
atvinnuleysi er svipað og í póst-
númeri 105.
■ Aldurshópar standa misvel
á vinnumarkaði og kemur
það alla jafna vel fram þegar
atvinnuleysi er mikið. Atvinnu-
leysi er yfirleitt mest meðal
þeirra hópa sem hafa minnsta
menntun og minnsta starfs-
reynslu. Atvinnuleysi er af
þessum sökum jafnan mikið
meðal ungs fólks. Atvinnuleysi
er miklu meira meðal yngra
fólks en eldra. Á öðrum ársfjórð-
ungi 2009 var atvinnuleysi ungs
fólks í hámarki og var þá 22,5
prósent á höfuðborgarsvæðinu,
en lækkaði á þriðja ársfjórðungi
niður í 12,9 prósent. Meðal
ungra karla er atvinnuleysið
meira en meðal kvenna, var
27,4 prósent á öðrum fjórðungi
samanborið við 17,1 prósent
meðal kvenna.
*Upplýsingar: Leiðbeinandi viðmið
um forgangsröðun í atvinnumálum.
MEST
ATVINNULEYSI
Í BREIÐHOLTI*
Tilfært er dæmi um kostnað við fjárhagsaðstoð vegna einstaklings sem
missir fótanna og fer fram á fjárhagsaðstoð, 115 þúsund á mánuði, og
fær framfærslu þangað til hann verður 67 ára. Núvirði kostnaðar borgar-
innar við hann yrði tæpar 33 milljónir króna. Fórnarkostnaður borgarinn-
ar af útsvari miðað við að maðurinn hefði að öðrum kosti verið með 250
þúsund krónur í mánaðarlaun er 4,7 milljónir. Mismunurinn hér er um
28 milljónir og þeirri fjárhæð verður borgin af. Eru þá ekki meðtalin þau
neikvæðu áhrif sem líf án þátttöku í samfélaginu hafa á einstaklinginn.
VARANLEGT ATVINNULEYSI DÝRT
Atvinnumálahópur Reykjavíkurborgar fylgist með þróun og metur áhrif
atvinnuleysis í Reykjavík og var skipaður í nóvember á síðasta ári í kjölfar
alvarlegs efnahagsástands. Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylking-
ar, er formaður hópsins. Auk hennar skipa hópinn borgar- og varaborgar-
fulltrúarnir Sóley Tómasdóttir frá VG, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen
Sjálfstæðisflokki, Rafn Einarsson fulltrúi Framsóknarflokks og Sigurlaug
Sveinbjörnsdóttir F-lista. Ellý A. Þorsteinsdóttir situr í hópnum fyrir hönd
velferðarsviðs, Markús H. Guðmundsson fyrir hönd Hins Hússins (ÍTR) og
Helga Björg Ragnarsdóttir sem stýrir sértækum atvinnuátaksverkefnum.
METUR ÁHRIF ATVINNULEYSIS
FRÉTTASKÝRING
SIGRÍÐUR BJÖRG TÓMASDÓTTIR
sigridur@frettabladid.is
Söng- og dansfl okkur kósakka
“Derzhava”
Sendiráð Rússlands á Íslandi og rússneskur menningarsjóður
„Oka“ kynna kósakka söng- og dansfl okkinn “Derzhava “
(“Stórveldi”) frá borginni Voronezh í Rússlandi sem mun
halda tónleika laugardaginn, 5. desember n.k., kl. 17 í Salnum
í Kópavogi.
Á dagskrá eru þekkt rússnesk þjóðlög ásamt hefðbundnum
kvæðum Dónárkósakka sem einkennast af sérstökum
ljóðrænum stíl. Í fl utningi kvæðanna er lögð mikil áhersla á að
undirstrika skapgerð og vaskleika þessarar þekktu hermanna-
stéttar Rússlands. Áhorfendur fá þar að auki að sjá sérstæða
danslist kósakka þar sem sverðum og svipum verður brugðið
á loft.
Hópurinn hefur haldið fjöldamarga tónleika jafnt í
heimalandinu sem um heim allan, þar á meðal í Evrópu,
Bandaríkjunum og Suður Ameríku, og notið mikilla vinsælda
meðal áhorfenda. Í hópnum eru fjórir karlmenn og þrjár konur.
Stjórnandi fl okksins er Sergey Zolotarev.
Gestum gefst einnig kostur á að skoða sýningu með
ljósmyndum úr náttúru Norður-Rússlands sem verður sett
upp í andyrri Salsins.
Aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfi r.
ODDNÝ STURLUDÓTTIR
Huga þarf að því að
atvinnuskapandi verk
nýtist bæði konum og
körlum.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM