Fréttablaðið - 03.12.2009, Page 34
34 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á
móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna
má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða
Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga
og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Jón Steinsson skrifar um
skattamál
Nú liggur fyrir Alþingi stjórnar frumvarp um breyt-
ingar á skattkerfinu. Um er að
ræða einhverjar mestu breyt-
ingar á skattkerfinu í áraraðir. Í
raun má segja að þetta frumvarp
feli í sér algjör straumhvörf hvað varðar þróun
skattkerfisins. Skattastefna stjórnvalda síðustu
tvo áratugi hefur í stórum dráttum gengið út á
það að auka hlut lág- og millitekjufólks í heildar-
skatttekjum þannig að unnt væri að lækka jaðar-
skatta, lækka skatta á fjármagn og draga úr tekju-
tilfærsluáhrifum skattkerfisins. Rauði þráðurinn
í tillögum stjórnvalda nú er hið gagnstæða, þ.e. að
auka hlut þeirra sem mest hafa milli handanna í
heildarskattbyrði þjóðarinnar. Sitt sýnist hverjum
um þessa stefnubreytingu eins og vænta mátti.
Flækjustig skattkerfisins í alþjóðlegu samhengi
Ein af stærstu breytingunum sem stjórnvöld leggja
til er að tekinn verði upp fjölþrepatekjuskattur á
launatekjur. Í stað þess að allir séu í sama skatt-
þrepi er lagt til að skattþrepin verði þrjú: 24,1% á
tekjur undir 200 þ.kr. á mánuði, 27% á tekjur frá
200 til 650 þ.kr. á mánuði og 33% á tekjur yfir 650
þ.kr. á mánuði.
Þessi tillaga hefur mætt mikilli andstöðu. Ein
helstu rökin sem sett hafa verið fram gegn þessari
breytingu er að fjölþrepaskattkerfi „auki flækju-
stig kerfisins“. Þessi rök hafa fengið svo mikla vigt
í umræðum um skattamál á Íslandi á undanförnum
árum að jafnvel vinstri flokkar hafa veigrað sér
við að leggja til fjölþrepaskattkerfi.
Að þessu leyti er umræða um skattamál á
Íslandi afskaplega frábrugðin umræðu um skatta-
mál í öðrum efnuðum ríkjum. Það vill nefnilega
svo til að öll önnur efnuð OECD-ríki búa við fjöl-
þrepaskattkerfi. Ísland er bókstaflega eina ríkið
í Vestur-Evrópu sem ekki starfrækir slíkt skatt-
kerfi. Í flestum OECD-ríkjum eru fleiri en þrjú
skattþrep. Í Bandaríkjunum eru til dæmis sex
skattþrep. Og pólitísk umræða þar í landi er þannig
að meira að segja George W. Bush vogaði sér aldrei
að leggja til veigamiklar breytingar á fjölda þrepa.
Þar í landi teljast rökin um aukið flækjustig fjöl-
þrepaskattkerfis léttvæg í samanburði við önnur
rök (bæði með og á móti).
Skattkerfi sem er til hægri við það bandaríska
Við smíði skattkerfis takast í stórum dráttum á tvö
sjónarmið. Annað sjónarmiðið er að gera eigi skatt-
kerfið eins flatt og hægt er með það að markmiði
að lágmarka jaðarskatta og vinnuletjandi áhrif
skatta. Þetta er iðulega sjónarmið „hægrimanna“ í
stjórnmálum. Hitt sjónarmiðið er að skattar eigi að
„leggjast frekar á þá sem betur eru í stakk búnir til
þess að bera þá“ svo vitnað sé í markmið núverandi
stjórnvalda í skattamálum. Þetta er iðulega sjónar-
mið „vinstrimanna“ í stjórnmálum.
Hægrisinnað skattkerfi leggur höfuðáherslu á að
„stækka kökuna“ en skeytir litlu um það hve ójafnt
kökunni er skipt. Vinstrisinnað skattkerfi leggur
meiri áherslu á jafna skiptingu kökunnar á kostnað
stærðar hennar. Þessi valkvöð milli hagkvæmni og
jafnaðar er ein helsta grundvallar valkvöð í stjórn-
málum þegar kemur að efnahagsmálum og miklir
hugsuðir hafa fært rök fyrir mismunandi sjónar-
miðum frá siðferðilegu sjónarmiði (t.d. Robert
Nozick til hægri og John Rawls til vinstri).
Skattkerfið sem við Íslendingar höfum búið við
undanfarin ár hefur verið það hægrisinnaðasta
af skattkerfum allra efnaðra ríkja innan OECD.
Skattkerfið okkar hefur t.d. verið langt til hægri
við skattkerfi Bandaríkjanna. Og eru Bandaríkja-
menn sjaldnast taldir sérlega vinstrisinnaðir. Á
Íslandi hefur verið eitt skattþrep með tiltölulega
lágum persónuafslætti, skattar á fyrirtæki og
fjármagnstekjur hafa verið með því lægsta sem
þekkist á meðal efnaðra ríkja, erfðaskattar og
eignaskattar hafa verið lagðir niður og stærstum
hluta tekna hins opinbera er aflað með virðisauka-
skatti. Þetta skattkerfi er afrakstur markvissrar
stefnu Sjálfstæðisflokksins yfir 18 ára tímabil.
Og undir það síðasta komu miklir frjálshyggju-
frömuðir í röðum til Íslands til þess að dásama
þetta kerfi.
Það er yfirlýst markmið stjórnvalda að færa
skattkerfið til vinstri. Ef mið er tekið af umræðu
um skattamál á Íslandi undanfarin ár má ef til vill
segja að fyrirliggjandi frumvarp stjórnvalda sé rót-
tækt skref í átt að þessu markmiði. En ef horft er
til annarra efnaðra landa ganga tillögur stjórnvalda
ekki sérlega langt. Jafnvel eftir þessar breytingar
verður skattkerfið á Íslandi talsvert til hægri við
skattkerfið í Bandaríkjunum (þegar kemur að tekju-
tilfærsluáhrifum þess – en ekki heildarskattstiginu
sem hefur verið og verður áfram hærra á Íslandi).
Af hverju er enginn hátekjuskattur í nýja kerfinu?
Það sem helst stingur í auga varðandi hið nýja
skattkerfi er hversu lágt tekjumarkið er á hæsta
skattþrepinu. Í nýja skattkerfinu er í rauninni ekki
gert ráð fyrir sérstöku skattþrepi á virkilega háar
tekjur. Þetta virðist á skjön við yfirlýst markmið
breytinganna. Ef markmið stjórnvalda er virki-
lega að færa skattbyrðina til þeirra sem mest hafa
milli handanna er erfitt að skilja af hverju tillögur
þeirra gera ekki ráð fyrir fjórða skattþrepi á tekjur
yfir 1 m.kr. á mánuði og ef til vill fimmta skatt-
þrepi á tekjur yfir svo sem 2,5 m.kr. á mánuði.
Tekjumarkið fyrir hæsta skattþrepið í tillögum
stjórnvalda er álíka hátt og tekjumarkið fyrir
þriðja hæsta skattþrepið í Bandaríkjunum. Banda-
ríkjamenn eru síðan með annað skattþrep á tekjur
yfir u.þ.b. 1,5 m.kr. á mánuði og enn eitt skattþrep
á tekjur yfir 3,5 m.kr. á mánuði. Skattþrepin í
Kanada eru svipuð tillögum stjórnvalda nema hvað
Kanadamenn eru með eitt skattþrep til viðbótar á
tekjur yfir rúmri 1 m.kr. á mánuði.
Annað atriði sem virkilega stingur í augu er að
tekjumörkin fyrir skattþrepin séu ekki vísitölu-
tengd. Með því að gera það ekki eru vinstrimenn
klárlega að skjóta sig í fótinn til lengri tíma. Nema
Alþingi breyti tekjumörkunum ár eftir ár með
sérstökum lagabreytingum þá mun verðbólga og
kaupmáttaraukning smátt og smátt færa fólk upp
í hærri skattþrep. Það mun til lengri tíma grafa
undan tekjutilfærsluáhrifum kerfisins og án efa
einnig grafa undan pólitískum stuðningi við það og
auðvelda hægrimönnum að gagnrýna það.
Þegar á heildina er litið fela fyrirliggjandi til-
lögur stjórnvalda í sér markvert skref í átt að þeim
markmiðum sem þau hafa sett sér og voru kosin
til þess að ná fram. Þar ber hæst að skattar á fjár-
magn eru hækkaðir umfram skatta á laun þannig
að mismunur á skattlagningu tekna eftir uppruna
minnkar verulega, að eignaskattur er lagður á með
háu fríeignamarki og að tekið er upp fjölþrepa-
skattkerfi á launatekjur einstaklinga. Tillögur
stjórnvalda eru hins vegar ekki gallalausar. Til
þess að laga tillögur sínar enn betur að mark miðum
sínum þurfa stjórnvöld að bæta við skattþrepum á
verulega háar tekjur og vísitölutengja tekjumörk
skattþrepanna.
Höfundur er lektor í hagfræði við Columbia-háskóla
í New York.
Er fjölþrepaskattkerfi okkur ofviða?
JÓN STEINSSON
Skattkerfið sem við Íslendingar höfum búið við
undanfarin ár hefur verið það hægrisinnaðasta
af skattkerfum allra efnaðra ríkja innan OECD.
Skattkerfið okkar hefur t.d. verið langt til hægri
við skattkerfi Bandaríkjanna.
UMRÆÐAN
Björk Vilhelmsdóttir
skrifar um almenn-
ingssamgöngur
Síðastliðið sumar var ákveðið einróma í
borgar ráði og umhverfis-
og samgönguráði Reykja-
víkurborgar að greiða
ekki viðbótarframlag til Strætó
bs. nema að lokinni stefnumótun
um þjónustu fyrirtækisins auk
heildar endurskoðunar á stofn-
samþykktum þess. Ástæða þessa
var að ekki hafði tekist að fylgja
eftir stefnu Reykjavíkurborgar
um öflugar almenningssamgöngur
í samstarfi við önnur sveitar-
félög innan stjórnar Strætó bs. og
stjórnar Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgar svæðinu (SSH). Þessi
einróma samþykkt var merki-
leg þar sem stjórn SSH (en þar
situr borgarstjóri) hafði ákveðið
að fara í endurfjármögnun sem
byggði á því að allar fjárveitingar
til Strætó yrði frystar að krónutölu
í 5 ár, að fargjaldatekjur hækkuðu
um þriðjung og fyrirsjáanlegum
umframkostnaði yrði mætt með
frekari þjónustuskerðingum. Full-
trúar Samfylkingar innar gátu á
engan hátt sætt sig við þessi skil-
yrði fyrir endurfjármögnun og
eftir nokkra fundi var ákveðið að
Reykjavíkur borg gerði best í að
halda á lofti sinni samgöngustefnu
og standa saman að því að byggja
upp fyrirtækið og þjónustuna og
hafna þessum skilyrðum. Allt því
í það að Reykjavík myndi standa
í lappirnar gagnvart samstarfs-
sveitarfélögunum og borgarstjóri
falla frá fyrri samþykkt sinni.
Borgarstjóri gefur eftir
Borgarráð ákvað ekki bara að
hafna endurfjármögnun með yfir-
töku lána, heldur hélt eftir 60 millj-
ón króna aukastofnframlagi sem
greiða átti á þessu ári, enda litið á
það sem hluta endurfjármögnun-
arinnar. Í borgarráði nú 19. nóv-
ember gafst meirihluti Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks upp
á að ná fram vilja Reykvíkinga um
almenningssamgöngur og sam-
þykkti 60 milljón króna greiðslu
án þess að komin væri nokkur
ásættanleg niður staða um fram-
tíð byggðasamlagsins og þjónust-
unnar innan stjórnar SSH. Borg-
arstjóri var ennfremur nýbúinn
að segja á aðalfundi SSH að ekki
yrði tekið á málum almennings-
samgangna og Strætó bs. fyrr
en að afloknum sveitarstjórnar-
kosningum. Borgarstjóri
sýnir ekki bara kjarkleysi
í aðdraganda kosninga
heldur verður ekki annað
séð en að borgarstjóri hafi
orðið undir í samskiptum
við önnur sveitarfélög og
gefist upp á því verkefni
sem borgarráð fól henni.
Með eftirgjöf á framlag-
inu og því að aflétta öllum
þrýstingi borgarinnar á
réttlátar breytingar í stjórn Strætó
bs. er verið að festa í sessi skamm-
sýnar þjónustuskerðingar síðustu
missera og opna fyrir frekari öfug-
þróun í þjónustunni.
Tillögur um útboð unnar áfram
Borgarstjóri og aðrir bæjarstjórar
í stjórn SSH létu nú á haustmánuð-
um gera úttekt og fengu tillögur frá
utanaðkomandi ráðgjafarfyrirtæki
um framtíð Strætó bs. Í skýrslu
úttektaraðila er lýst tillögum sem
ganga í þveröfuga átt við þær
áherslur sem Reykjavíkurborg
hefur hingað til haft. Yfir fyrirtæk-
inu vofir að bjóða eigi alla þjónustu
þess út en það þýðir uppsögn allra
vagnstjóra og sölu vagna. Eins á það
að vera í höndum nágrannasveitar-
félaga hvort og þá í hvaða mæli þau
bjóða upp á almenningssamgöngur.
Þeim er boðið upp á að þróa sig
alfarið út frá einkabílnum með til-
heyrandi kostnaði og mengun fyrir
borgarbúa, en flestir á þessu sam-
eiginlega atvinnu- og búsetusvæði
starfa í borginni. Tillögur ráðgjaf-
anna voru kynntar fyrr í mánuð-
inum á aðalfundi SSH og þar sótti
borgarstjóri, ásamt stjórn SSH,
sérstakt umboð til aðalfundarins
til að vinna áfram á grundvelli
þeirra. Var það samþykkt gegn mót-
atkvæði frá fulltrúa Samfylkingar-
innar í Reykjavík.
Skammtíma- eða langtímasýn
Þegar við fulltrúar Samfylkingar-
innar í borgarráði vorum ekki til-
búin að styðja þá skammtímalausn
að veita 60 milljón króna viðbótar-
framlag til strætó, vorum við sökuð
um að vilja skerða þjónustuna.
Maður skilur ekki slíkt steinkast
frá þeim sem hafa staðið fyrir
umfangsmiklum þjónustuskerðing-
um síðustu ár, nú síðast í febrúar
á þessu ári. Reykjavíkurborg hafði
einstakt tækifæri til að standa fast
á sínu þar sem baklandið heima
fyrir var tryggt. En þar sem
samnings aðilinn nýtti sér það ekki
má ætla að hann hafi ekki haft trú
á þeim hagsmunum sem honum var
ætlað að koma í höfn.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Algjör óvissa um
framtíð Strætó bs.
ST
O
FA
5
3
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS
BJÖRK VILHELMS-
DÓTTIR