Fréttablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 37
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
NÆRFATATÍSKA SONIU RYKIEL sem hún hefur
hannað fyrir verslunarkeðjuna H&M var frumsýnd á tískupöllum
í París í vikunni. Á sviðinu var mikið um dýrðir, heill Eiffel-turn,
parísarhjól, róla og óteljandi ljós. Fremst í flokki fyrirsætna fór
Lily Cole, sem hélt í beislið á risastóru hestshöfði.
„Í raun eru eftirlætisflíkurnar
mínar hlýja, gleði og góð lykt,“
segir Tinna Kristjánsdóttir glað-
lega þegar hún er innt eftir fata-
stíl sínum. „Á myndinni er ég
hins vegar í ullarfatnaði frá toppi
til táar og það er það sem heldur
í mér lífinu þessa dagana,“ segir
hún og heldur mest upp á hand-
stúkurnar. „Þær gaf vinkona mín,
Anna Hallin myndlistarkona, mér
í þrítugsafmælisgjöf. Þær halda
hita á höndunum mínum sem er
gott því ég er að búa til jólaskraut
sem ég sel í Heimili og hugmyndir
í gamla Fálkahúsinu á Suðurlands-
braut.“
Ullarpeysuna og -sjalið keypti
Tinna á útsölumarkaði hjá Noa
Noa fyrir nokkrum árum og telur
það ein bestu kaup sín í gegnum
tíðina. En hvernig fötum klæð-
ist hún þegar ekki er kalt í veðri?
„Ég er nú yfirleitt alltaf í sokka-
buxum og iðulega í kjólum því
mér finnst óþægilegt að ganga
í buxum,“ segir Tinna. Hún vill
einnig „ekta“ efni í sín föt, bóm-
ull, ull og silki en helst ekki gervi-
efni.
Tinna mun föndra skraut-
ið sitt fram að jólum en eftir
áramót breytir hún um stefnu,
flytur til New York þar sem hún
hefur fengið inni í leiklistarskóla.
„Þetta er búið að vera í maganum
á mér frá því ég man eftir mér,“
segir hún og hlakkar til að búa í
stóra eplinu enda hefur hún komið
þangað nokkrum sinnum og líkað
vel. Og ætlar hún að vera lengi?
„Námið er stíft og því má reka mig
heim hvenær sem er en ég vona nú
að ég fái að vera þarna í tvö ár,“
segir hún. solveig@frettabladid.is
Í ull frá toppi til táar
Tinna Kristjánsdóttir velur fötin sín út frá því hvort þau haldi á henni hita. Einkum og sér í lagi heldur
hún upp á handstúkur sem ylja henni við jólaskrautsgerðina sem hún stundar grimmt.
Tinna Kristjánsdóttir í ullarpeysu, með ullarsjal og ullarhandstúkur sem hún heldur mikið upp á. „Ullin heldur í mér lífinu þessa
dagana,“ segir leikkonan upprennandi en Tinna stefnir á leiklistarnám í New York á nýju ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Fyrst og fremst í heilsudýnum
JÓLATILBOÐ
á stillanlegum rúmum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is