Fréttablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 38
TÍSKUHÚSIÐ CHRISTIAN LACROIX virðist liðið undir
lok. Fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta í vikunni en ekki hefur
reynst unnt að bjarga tískurisanum þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Lacroix hefur verið leiðandi í tískuheiminum frá 1987.
Hönnuðurinn Sigríður Sunn-
eva hefur í áraraðir sérhæft sig
í hönnun og framleiðslu á mokka-
skinnsflíkum. „Í öll þessi ár hef ég
geymt afklippurnar, því ég hendi
aldrei neinu. Ég safna þeim öllum
og flokka eftir litum og geymi á
vísum stað. Ég var viss um að einn
daginn gæti ég nýtt þær í eitthvað
sem væri stórkostlegt,“ segir Sig-
ríður Sunneva og brosir. Og fyrir
skömmu rann sá dagur upp. „Ég
þróaði sérstakt mokkaskinnsband
og með hjálp aðstoðar manna, því
þetta er tímafrekt og kallar á
mannshöndina fremur en vélina,
vorum við komin með fleiri fleiri
kíló af mokkaskinnsbandi. Ég hef
síðan verið að hanna prjónapeysu-
línu sem er alveg dásam leg, því
áferðin er mjög mjúk og létt og
eins og besta kasmír.
Það er Kristín Ing-
unnardóttir sem
hefur haldið
utan um hóp-
inn sem hefur
séð um prjóna-
skapinn, en það
þarf sérstaka
tækni til þess að
prjóna úr bandinu.
Við erum búnar að
vera fjóra mánuði að
þróa þetta.“
Sigríður Sunneva
segir að þetta sé alveg
nýtt af nálinni. „Þetta
er í raun og veru hálfgerð
uppfinning því þetta hefur
aldrei verið gert áður svo að
ég viti. Ég nota þarna vannýtt
efni og breyti í hreina hátískuvöru
sem í felst verðmætasköpun. Ég
hef fengið geysilega góð viðbrögð
og mér finnst þetta einnig spenn-
andi útflutingsvara.“
unnur@frettabladid.is
Prjónað úr mokkaskinni
Sigríður Sunneva hefur þróað sérstakt mokkaskinnsband og hannar nú peysur sem prjónaðar eru úr
bandinu. Áferð efnisins er mjúk og létt og eins og besta kasmír að sögn hönnuðarins.
Sigríður Sunnvea við fallega peysu sem
prjónuð eru úr mokkaskinnsbandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Úrvalið í skóverslunum er nokkuð frá-
brugðið því sem verið hefur en þar ríkir
fjólublái liturinn líkt og í fataverslununum.
Fjólublár er liturinn í ár og er varla til sá
tískuvöruverslunargluggi sem ekki skartar
fjólubláum fötum. Skórnir eru ekki
undanskildir í þeim efnum og
er litaúrvalið í skóverslun-
um því nokkuð frábrugðið
því sem verið hefur, en hing-
að til hafa fáar konur fallið
fyrir fjólubláum skóm. Þeir
tóna hins vegar vel við fjólu-
bláa kjólinn, töskuna, beltið eða
klútinn.
Blái liturinn lætur líka á sér
kræla og fyrir þær sem vilja
síður fara út í í fjólublátt gæti
hann verið valkostur.
- ve
Hlý, rauð og fögur
húfa og kragi.
Íslenski veturinn
bítur ekki á þessa
lambhúshettu,
sem er bæði úr
mokkaskinni og
mokkaprjóni.
Glæsileg hönnun,
peysa prjónuð úr
mokkaskinnbandi.
Fjólublátt frá
toppi til táar
Fagurbláir hælar. Skór.
is 15.995 krónur.
Fjólubláir skór hafa hingað til ekki
verið áberandi en nú fást þeir í
úrvali. Skór.is 13.995 krónur.
Belti og axlar-
bönd í einu.
Flott yfir kjól
eða síðan bol
til að undir-
strika brjóst og
mitti. Tónar vel
við bláa skó.
Einvera 6.900
krónur.
Fjólubláir
platform-hælar
fyrir ofurpæjur.
Skór.is 18.995
krónur.
Bláir konfektmolar eins og þessir
geta verið valkostur fyrir þær sem
vilja síður fara út í fjólublátt og
eru smart við svartar flíkur með
bláu ívafi. Einvera 21.900 krónur.
Þótt litaúrvalið sé mikið eru svörtu
skórnir ekkert á undanhaldi. Þessir
geta bæði verið uppreimaðir og
hælar en efra stykkinu má hneppa
af. Einvera 21.900 krónur.
Ný sending
af kjólum og
skokkum
Stærðir 36-50
20% afsl.
fi mmtudag-laugardag.
Lufsupeysur
áður 6990
Nú 3990