Fréttablaðið - 03.12.2009, Side 42
3. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR
● SLAUFAÐU EKKI AÐALATRIÐINU Slaufa, eða þverslaufa eins og hún
er stundum nefnd, er formlegt hálsklæði sem hnýtt er eftir kúnstarinnar reglum,
rétt eins og bindi, svo úr verði slaufa sem liggur á þverveginn. Reyndar eru þessar
kúnstarinnar reglur það flóknar að flestar slaufur í dag eru forhnýttar. Einfaldasta
gerðin af slaufum er svonefnd smelluslaufa sem fest er með smellum við skyrtuna,
en vinsælli eru þverslaufur með ásaumuðum linda fyrir aftan hnakka og þá annað
hvort með frönskum rennilás í endanum eða krókapari. Þverslaufur eru mikið notaðar við smóking og
jakkaföt en sumir nota þær þó daglega. Í ár er slaufan aðalmálið, eins og punktur yfir i-ið, í alls konar litum.
Það þarf ekki annað en að líta til hátískuhúsanna.
Stjörnurnar hafa leynt og ljóst
áhrif á tískuna og því er ekki að
undra að hönnuðir keppist um
að klæða þær. Oft getur verið
erfitt að fylgja því allra heit-
asta eftir enda taka sniðin og
litirnir breytingum frá ári til
árs. Þá er ráð að líta í fataskáp
heitustu hjartaknúsaranna
hverju sinni enda má slá því
föstu að þeir séu klæddir af
helstu tískuspekúlöntum
heims. Hér má sjá nokkra
sjóðheita karlmenn í sínu
fínasta pússi. - ve
Stjörnurnar teknar til fyrirmyndar
Fín jakkaföt eru sígildur fatn-
aður herramanna og kannski
bestu kaupin þegar allt kemur
til alls því þau endast vel og
eru viðeigandi við ótal tæki-
færi. Sindri Snær Jensson,
verslunarstjóri í Gallerí 17 í
Kringlunni, veit allt um það.
„Við erum með vel sniðin jakkaföt
á góðu verði, það er það sem menn
vilja núna. Ekkert flækja þetta og
flippa of mikið heldur fókus era á
það sem er sígilt. Svo er hægt að
poppa fötin upp með aukahlutum,
beltum, slaufum eða vasaklútum,“
segir Sindri Snær, sem telur það
besta oft hafa gleymst þegar kaup-
máttur inn var sem mestur. „Nú
þegar þrengt hefur að eru vönduð
og endingargóð föt metin meira,“
fullyrðir hann. Þá er komið að því
að forvitnast um sniðin. „Fötin eru
eins og þau hafa verið undanfarin
ár. Ég segi ekki snolluð en bara
passleg að stærð,“ svarar Sindri
Snær og lýsir þeim nánar. „Jakk-
arnir eru aðsniðnir og flottir og svo
þrengjast flestar jakkafatabuxur
aðeins niður. Það er orðið nær al-
gilt. Sumir verða vantrúaðir á að
slíkt snið henti þeim þegar þeir
skoða buxurnar fyrst en komast svo
að því að þær eru mjög klæðilegar
því þetta er alltaf mjög smekklegt.
Ekkert gulrótardæmi.“
Flest fötin í Gallerí 17 eru úr
blöndu af ull og polýester, 60/40 eða
70/30, með ullina í meirihluta. En
hvað með mynstur og liti? „Fötin
eru mest einlit núna, svört og dökk-
grá. Steingrár litur er mjög sterk-
ur bæði í jakka fötum og öllu öðru.
Þetta er sem sagt klassískt en
með nútíma útfærslu og svo koma
aukahlutirnir og þá breytist útlitið
snarlega,“ segir hann og bendir á
vasaklúta, rauðar slaufur og jafn-
vel hatta sem mikið úrval er af í
versluninni. Hvað skyldu svo góð
jakkaföt kosta í Gallerí 17 í dag?
„Þau eru frá 34.900 krónum upp í
39.900 þannig að við höfum reynt
að halda verðinu þokkalega góðu,“
segir verslunarstjórinn.
Gallerí 17 er með eigin fram-
leiðslu á jakkafötum með merkj-
unum Mao og Parks. Sindri Snær
segir fötin saumuð í Kína úr efnum
frá Ítalíu. Þó er saumastofa hér, þar
sem verslunarstjórar og fleiri innan
fyrirtækisins hittast að sögn Sindra
Snæs vikulega með klæðskeranum
og fara yfir það sem þeir vilja láta
gera. „Við köllum okkur ekki hönn-
uði en leggjum línurnar. Erum samt
ekkert að finna upp hjólið og okkar
hugmyndir eru víða að,“ lýsir hann.
En er hægt að láta sérsníða föt í 17
ef fólk kemur með málin? „Nei, en
á saumastofunni eru ýmsar breyt-
ingar gerðar á fötunum ef þörf
krefur,“ segir hann.
Steingrár litur sterkur inni
„Nú þegar þrengt hefur að eru vönduð og endingargóð föt metin meira en áður,“ segir Sindri Snær, verslunarstjóri í Gallerí 17 í
Kringlunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439
Brad Pitt spókar sig
oft í hvítum jakka-
fötum og hvað er nú
jólalegra?
NORDICPHOTOS/GETTY
Gerard Butler er
klassískur en ef
vel er að gáð má
greina glansáferð
á aðsniðnum jakka-
fötunum.
Jude Law ber
jakkafötin við bol
og gula strigaskó
með ómótstæði-
legri útkomu.
PARKS jakkaföt
39.990 kr.
MAO skyrta
6990 kr.
MAO slaufa
2990 kr.
Vasaklútur
990 kr.
PARKS jakkaföt
39.990 kr.
MAO skyrta
6990 kr.
MAO bindi
2990 kr.
Vasaklútur
990 kr.
MAO jakkaföt
39.990 kr.
MAO skyrta
6990 kr.
MAO bindi
2990 kr.
MAO jakkaföt
34.990 kr.
MAO skyrta
6990 kr.
Marco Pascali bindi
6990 kr.
Vasaklútur
990 kr.