Fréttablaðið - 03.12.2009, Page 46
3. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR6 ● jakkaföt
Malcolm X klæddist svokölluðum
zoot-jakkafötum. Zoot-fötin tengj-
ast jakkafötum sem uppreisnar-
gjarnir unglingar, sem voru kallaðir
zooters, klæddust og voru allt of
stór og mjög há í mittið.
Þótt sumum finnist jakkaföt lítið breytast er raunin
önnur þegar litið er yfir söguna. Hér eru talin upp
nokkur jakkaföt sem þóttu marka tímamót í tísku
á sínum tíma. - sg
Winston Churchill vakti mikið
umtal þegar myndir birtust af
honum árið 1940 þar sem hann
var í teinóttum jakkafötum
með hríðskotabyssu og líktist
argasta mafíósa.
Söngvarinn Gram Parsons klæddist jakkafötum
skreyttum maríjúanalaufum, nöktum konum
og stórum rauðum krossi. Jakkafötin urðu fljótt
nokkurs konar gríntákn fyrir hippahreyfinguna.
Fötin voru hönnuð af Nudie Cohn sem einnig
hannaði gullgalla Elvis Presley.
Föt litla umrenningsins sem leikinn var
af Charlie Chaplin einkenndust af mót-
sögnum. Þröngur jakki við allt of víðar
buxur, lítill hattur og allt of stórir skór.
Bítlarnir höfðu án efa mikil áhrif á tísku síns tíma. Flest föt þeirra á fyrstu árum
velgengninnar voru hönnuð af klæðskeranum Douglas Millings. Hin aðsniðnu
jakkaföt sem hljómsveitarmeðlimir skarta í myndinni A Hard Day’s Night höfðu
áhrif á hönnuði á borð við Hedi Slimane og tónlistarmenn á borð við Pete
Doherty.
Kvikmyndin North by Northwest sem skartar Cary Grant í aðalhlutverki hefur verið kosin „most
stylish“ mynd allra tíma af tímaritinu GQ. Því er skæslegum jakkafötum Grant að þakka.
Marlene Dietrich var fyrsta kvenstjarna
veraldar til að klæðast karlmannsjakka-
fötum. Síðan þá hafa margar konur fylgt
í kjölfarið. Konur á borð við Madonnu,
Judy Garland, Díönu prinsessu og
Catherine Deneuve.
Jakkaföt sem
skóku heiminn
Hvítu jakkaföt Toms Wolfe, sem
stundum er kallaður faðir nýrrar
blaðamennsku, eru orðin ein-
kennismerki hans. Hann
keypti fyrstu jakkafötin
árið 1962 og þótti gott að
vera sér á báti. Í dag á hann
heilan fataskáp af hvítum
jakkafötum.