Fréttablaðið - 03.12.2009, Side 47
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
BERTONI jakkaföt
24.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
6990 kr.
Bindi
4990 kr.
BERTONI jakkaföt
49.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
10.990 kr.
Bindi
3990 kr.
BERTONI jakkaföt
24.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
10.990 kr.
Bindi
3.990 kr.
BERTONI jakkaföt
49.990 kr.
Daniel Bessi skyrta
6.990 kr.
Bindi
4.990 kr.
Herra Hafnarfjörður er orðin
ein af rótgrónari herrafatabúð-
um landsins. Um næstu helgi
verður sérstakt afmælistilboð
þar sem gott málefni verður
styrkt um leið.
„Búðin átti afmæli núna á sunnu-
daginn, 29. nóvember. Þá var ég
búinn að vera hérna í fimmtán ár.
Fimmtán ár í þessum geira, það
er nú svolítið mikið. Með sömu
kennitöluna í fimmtán ár, það eru
ekki allir sem geta státað af því,“
segir Gunni í versluninni Herra
Hafnarfjörður við Fjarðargötu,
stoltur og hress því hann er ný-
kominn úr ræktinni þar sem hann
hefur misst 30 kíló síðustu fimm
mánuði.
„Svo nú um helgina verður
algjört afmælistilboð! Maður er
náttúrlega að hugsa um fólkið á
landsbyggðinni og fólkið sem á
varla fyrir mat. Ég er með svona
tilboð fram á sunnudag að þeir
sem kaupa jakkaföt hjá mér geta
komið með gömlu jakkafötin, sem
hanga inni í skáp, en þá fá þeir
10.000 króna afslátt,“ segir Gunni
og útskýrir að gömlu fötin sem
passa ekki lengur eða eru ekki í
notkun fari svo til Mæðrastyrks-
nefndar.
En hvernig er svo herratískan
í ár? „Það er náttúrlega allt voða-
lega drungalegt og dökkt, það er
bara allt svart. Það er náttúrlega
hægt að poppa það upp með rauðu
bindi eða hafa skyrtuna rauða og
bindið svart. Nú er allt voðalega
stílhreint og spáð í notagildinu,“
segir Gunni og lýsir því að
viðskiptavinirnir hafi breyst frá
því áður. Nú komi menn ekki leng-
ur inn og kaupi tvenn jakkaföt án
þess að spyrja hvað þau kosti.
„Það er bara mjög gott, bara æð-
islegt að hafa hugsandi viðskipta-
vini,“ segir Gunni. Þá segir hann
ekkert teinótt sjást nútildags en
eitthvað sé hins vegar um köflótt.
„Svo er mikið í tísku að klæðast
vesti, skyrtu og bindi og vera þá
jafnvel í gallabuxum við.“
Um helgina býður Gunni upp á
kaffi og kransakökur í versluninni
og á Þorláksmessu ætlar hann að
vera með koníak fyrir viðskipta-
vini. En fólk má ekki láta sér
bregða þótt það komi ekki auga
á Gunni við afgreiðslustörf í búð-
inni, hann er ekki hættur heldur
bara orðinn svo grannur að hann
þekkist varla lengur.
Komdu með gömlu og fáðu ný
Gunni tekur sig vel út í versluninni Herra Hafnarfjörður, sem er við Fjarðargötu í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Niðurmjóar karlmannsbuxur hafa
átt vinsældum að fagna undanfar-
in ár og hefur tískan verið lífseig-
ari en margir höfðu spáð. Eflaust
hafa sumir karlmenn verið farn-
ir að renna hýru auga til
beinni sniða og jafn-
vel „boot cut“ en þeir
þurfa að sýna biðlund
því nú er von á stuttum
buxum.
Ef marka má
l ínurnar sem
f r a n s k i r o g
breskir hönnuð-
ir leggja fyrir
vorið og sumarið
þá ná buxurnar
rétt niður fyrir
miðja kálfa og
má sjá skína í
bera ökkla og
stöku sokkap-
ar. Hvort
tískuhönn-
uðir séu
meðvitað
að leggja
sig fram
u m a ð
gera karl-
menn hlægi-
lega skal ósagt
látið en ef marka má
vinsældir niðurmjóu
buxnanna, sem var
ekki spáð góðu gengi
í fyrstu, er aldrei að vita nema
annar hver karlmaður verði kom-
inn í allt of stuttar buxur áður en
langt um líður. - ve
Úr niðurmjóu í stutt
Hér er sokkunum skartað og
skórnir njóta sín til fulls við
stuttar buxur frá Louis Vuitton.
Hér
má sjá
framlag
franska
hönn-
uðarins
Franck
Boclet
sem hann-
ar fyrir
Emanuel
Ungaro
tískuhúsið.
Topman
Louis
Vuitton
Dries
Van Noten