Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 48
3. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR8 ● jakkaföt
Leikarinn George Clooney hefur
margoft lent á lista yfir myndar-
legustu og best klæddu menn ver-
aldar. Því skal engan undra að
gamli silfurrefurinn skyldi stela
senunni þegar hann mætti á frum-
sýningu kvikmyndarinnar Up in
the Air í Kaliforníu nú á dögun-
um.
Clooney, sem klæðist yfirleitt
svörtu og hefur af þeirri ástæðu
meðal annars verið líkt við
sveitasöngvarann sáluga John-
ny Cash, brá ekki út af vananum
í þetta sinn. Hann klæddist svört-
um jakkafötum úr smiðju Ralph
Lauren, svartri fráhnepptri skyrtu
og skóm í stíl.
Kærasta Clooneys, fyrirsætan
þokkafulla Elisabetta Canalis,
kom á óvart með því að feta í fót-
spor síns heittelskaða og klæðast
svörtu frá toppi til táar. Sömu sögu
má segja um móður Clooneys og
aðra frumsýningargesti. - rve
Clooney flottur í
tauinu að vanda
George Clooney og unnusta hans, Elisa-
betta Canalis, mæta til frumsýningar á
kvikmyndinni Up in the Air, en Clooney
fer með eitt af aðalhlutverkunum.
NORDICPHOTOS/AFP
● TIL HEIÐURS JACKSON
Michael Jackson var sannarlega
með sérstæðan fatasmekk en
líklega má þó segja að hann
hafi aldrei þótt sérlega smart í
allt of stuttum buxum, hvítum
sokkum, skrautlegum jökkum
og steinum skreyttum hanska á
annarri hendi.
Við lát hans virðist áhuginn
á söngvaranum hafa aukist til
muna, jafnvel á fatastíl hans.
Þannig klæddist söngvarinn
Norwood Young ansi sérstökum
búningi þegar hann mætti á
bandarísku tónlistarverðlauna-
hátíðina á dögunum. Vísunin í
Jackson var öllum ljós en hvort
Young hafi þótt bera af í smekk-
legheitum fylgir ekki sögunni.
Norwood Young mætir með vinkonu
sinni á bandarísku tónlistarverð-
launahátíðina í Los Angeles í
nóvember.
● HNÚTAR UM HÁLS Hálsbindið er oft punkturinn yfir i-ið þegar klæðast á jakkaföt-
um og vera fínn en þá er lykilatriði að kunna að hnýta hnútinn. Það hefur hins vegar vaf-
ist fyrir mörgum enda ekki augljóst við fyrstu sýn hvernig bera skal sig að. Þetta er ekki nýtt
vandamál heldur hefur það loðað við frá því hálstau varð að mikilvægum hluta af klæðaburði
karlmanna. Fyrsta handbókin í hálstaushnýtingum kom út árið 1820. Það var bókin
Neckclothitania og þar var að finna skýringarmyndir og leiðbeiningar fyrir fjór-
tán mismunandi hnúta á hálsklúta, sem þá voru mikið í tísku, og má
telja næsta öruggt að séu forverar hálsbinda nútímans. Á net-
inu er hægt að finna margar gagnlegar
síður ef bindishnýtingar vefjast
fyrir mönnum. Til dæmis má
finna gagnlega hnúta á
www.boardroom ties.com
en svo rákumst við á íslensk-
ar hnýtingarleiðbeiningar á
jonsdottir.blogcentral.is.
Vandasamt getur verið að binda bindishnúta en ef
handbók er ekki við hendina er ráð að reyna að dreifa
athyglinni.