Fréttablaðið - 03.12.2009, Page 54
3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
OZZY OSBOURNE ER 61 ÁRS.
„Ég elska ykkur öll. Ég
elska ykkur meira en lífið
sjálft, en þið eruð öll
snarklikkuð.“
Ozzy Osbourne er söngvari
þungarokksveitarinnar Black
Sabbath. Hann og fjölskylda
hans hafa vakið athygli
í raunveruleikaþáttunum
The Osbournes.
Þennan dag árið 1967 var nýtt hjarta grætt í hinn 53 ára gamla
Lewis Washansky í spítalanum Groote Schuur í Höfðaborg í
Suður-Afríku. Þetta var í fyrsta sinn sem
hjarta var grætt í mann.
Washansky var suðurafrískur kaupmað-
ur sem var langt leiddur af hjarta sjúk-
dómi. Hann fékk nýja hjartað úr Denise
Darvall, 25 ára konu, sem lést í bílslysi.
Skurðlæknirinn Christiaan Barnaard
framkvæmdi aðgerðina sem hafði verið
þróuð af bandarískum vísindamönnum á
sjötta áratugnum en fyrsta hjartaígræðsl-
an sem heppnaðist var gerð á hundi árið
1958.
Eftir uppskurðinn fékk Washansky lyf
sem héldu ónæmiskerfinu niðri svo að
líkaminn hafnaði ekki hjartanu. Af þeim sökum sýktist Washansky
af lungnabólgu og lést átján dögum síðar. Nýja hjartað hafði hins
vegar starfað eðlilega þessa átján daga.
ÞETTA GERÐIST: 3. DESEMBER 1967
Fyrsta hjartaígræðslan
Verslunin Pfaff er áttatíu ára en hún hefur verið í eigu sömu
fjölskyldunnar frá upphafi. „Þetta byrjaði árið 1929 þegar
föðursystir mín bað föður minn Magnús Þorgeirsson að at-
huga hvort hann gæti ekki útvegað sér Pfaff-saumavél sem
hún hafði heyrt að væru sérstaklega góðar. Hann gekk í
málið en fékk það svar að hann gæti ekki fengið eina vél en
ef hann treysti sér til að kaupa sex gæti hann fengið umboð-
ið,“ segir Kristmann Magnússon, sonur Magnúsar Þorgeirs-
sonar sem síðar tók við fyrirtækinu af föður sínum.
Magnús sló til, vélarnar voru fluttar til landsins og var
sú fyrsta seld hinn 28. október sama ár. „Sá dagur hefur
síðan verið álitinn afmælisdagur fyrirtækisins. Pabbi rak
það á haftaárunum en ég tók við árið 1963 og þá var rekst-
urinn farinn að glæðast,“ segir Kristmann sem var einungis
25 ára þegar hann tók við framkvæmdastjórastöðunni. „Ég
hafði þá starfað hjá fyrirtækinu í mörg ár við viðgerðir og
annað tilfallandi og hafði síðan föður minn innan handar
við reksturinn. Það sama hefur síðan átt við um mín börn,“
upplýsir Kristmann en dóttir hans er framkvæmdastjóri og
sonur þjónustustjóri fyrirtækisins í dag. Þó Kristmann hafi
að mestu dregið sig í hlé segist hann enn notaður í sendi-
ferðir auk þess sem hann þýðir alla saumavélarbæklingana
yfir á íslensku.
Kristmann segir fyrirtækið standa vel í dag þó kreppan
segi auðvitað eitthvað til sín. „Við tókum ekki þátt í nein-
um fjárfestingarlátum enda þurftum við á öllu okkar fé að
halda til að geta haldið lager og rekið fyrirtækið. Við höfðum
ekkert aukafé og tókum engin lán,“ segir Kristmann. Hann
segir skynsemi í rekstri arfleið frá föður sínum. „Gamli
maðurinn kenndi bæði mér og dótturinni að reikningana
ætti að borga á gjalddaga og var ég einu sinni hundskamm-
aður fyrir að borga víxil á þriðja degi þó að það hafi verið
leyfilegt á þeim tíma. Pabbi kallaði mig inn á skrifstofu til
sín og sagði mér að ef ég skrifaði upp á víxil til greiðslu á
ákveðnum degi þá ætti að greiða hann á þeim degi og þeirri
stefnu höfum við fylgt síðan.“
Stjórnarhættirnir virðast hafa skilað árangri og hefur
Kristmanni og fjölskyldu hans haldist einstaklega vel á
starfsfólki. „Okkar helsta vandamál er að við losnum ekki
við það starfsfólk sem byrjar hjá okkur,“ segir Kristmann
og hlær.
Pfaff, sem er til húsa að Grensásvegi 13, er nú með umboð
fyrir hina ýmsu framleiðendur en þar fást saumavélar, síma-
búnaður, hljómflutningstæki, ljós og fleira. „Við ákváðum
að setja eggin í fleiri körfur en við rákum okkur á nauðsyn
þess þegar sauma- og prjónaiðnaðurinn hrundi fyrir fimmt-
án árum. Sú þróun hefur þó heldur betur snúist við upp á síð-
kastið enda hefur mikið prjóna- og saumaæði gengið yfir
landann.“ vera@frettabladid.is
PFAFF: ÁTTATÍU ÁRA FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
Skynsemi í
rekstri alla tíð
MYNDARLEGT SAUMAVÉLASAFN Kristmann státar af myndarlegu
saumavélasafni. Hér situr hann við elstu Pfaff-saumavélina sem hefur
fundist á Íslandi en hún er frá árinu 1904. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
timamot@frettabladid.is
Ástkær sambýlismaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, fósturfaðir og bróðir,
Guðjón Sigurðsson
Hátúni 10b, Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 22. nóvember. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Sigríður Ásgeirsdóttir
Sigurður Auðberg
Guðrún Guðjónsdóttir
Jóhann Kristinn, Andri Snær og Heiða Diljá
Jenný Hildur Clausen
Brynjar Örn Clausen
Halldór Jón Sigurðsson
Sigrún Auður Sigurðardóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Tryggva Guðmundsdóttir
Söebech
Huldugili 31, Akureyri,
lést 26. nóvember á Dvalarheimilinu Hlíð. Jarðsungið
verður frá Akureyrarkirkju 7. desember kl. 13.30.
Sigurgeir Söebech Þuríður Hauksdóttir
Ágústína Söebech Heimir Jóhannsson
Benedikt Haukur Sigurgeirsson
Gunnlaugur Magnús Sigurgeirsson
Rannveig Björk Heimisdóttir
Tryggvi Jóhann Heimisson
Petra Sæunn Heimisdóttir.
og langömmubörn. Okkar ástkæra
Sigurbjörg Ingvarsdóttir
Hrafntóftum 2, áður Langholtsvegi 44,
andaðist að heimili sínu laugardaginn 28. nóv.
2009. Útför hennar verður gerð frá Oddakirkju á
Rangárvöllum laugardaginn 5. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast
hinnar látnu láti Dvalarheimilið Lund á Hellu njóta
þess.
Ragnheiður Jónsdóttir Hafsteinn Ingvarsson
Þórunn Jónsdóttir Steinn Þór Karlsson
Elísabet Vilborg Jónsdóttir Steinar Þór Jónasson
Pálína Jónsdóttir Björgúlfur Þorvarðsson
Margrét Fjeldsted
Jóna Borg Jónsdóttir Ludvig Guðmundsson
og afkomendur.
Elskulegur sonur okkar, bróðir, barna-
barn og frændi,
Hlynur Þór Sigurðsson
Grófarseli 18, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju föstudaginn 4.
desember klukkan 13.00. Blóm og kransar vinsamleg-
ast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Minningarsjóð Hlyns Þórs Sigurðssonar, kt. 411209
0160 banki 115-05-60550.
Sigurður B. Arnþórsson Aðalheiður Diego Hjálmarsdóttir
Arnþór Sigurðsson Elísabet Lúðvíksdóttir
Kristján Þór Sigurðsson
Arnþór Sigurðsson Arndís Árnadóttir
Hjálmar Diego Arnórsson Anna Kristjánsdóttir
og frændsystkin.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýju og vináttu við and-
lát og útför elskulegs eiginmans míns,
föður okkar, afa, sonar, bróður, mágs
og tengdasonar,
Jóhanns Más Jóhannssonar
Heiðardal 1, Vogum.
Við viljum þakka öllu starfsfólki á D-deild á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir frábæra umönn-
un og kærleik í okkar garð. Enn fremur viljum við
þakka lækninum hans, Friðbirni Sigurðssyni, Hrönn
Finnsdóttur hjúkrunarfræðingi og öllum öðrum á
deild 11B sem hlúðu að honum á Landspítalanum fyrir
frábæra umönnun og hlýhug. Við þökkum Ísfelli fyrir
frábæran stuðning.
Ragnhildur B. Svavarsdóttir
Íris Ósk Jóhannsdóttir Kristján Guðbrandsson
Helga Dögg Jóhannsdóttir
Aron Freyr Kristjánsson
María Jóhannesdóttir Jóhann Th. Þórðarson
Jóhanna V Jóhannsdóttir Ingi K. Ingibergsson
Hermann F. Jóhannsson Bryndís María
Björnsdóttir
Anna Bergmann Guðbjörnsdóttir Guðmundur Waage
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Katrín Káradóttir
ljósmyndari, Boðahlein 5, Garðabæ,
lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 1. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Eiríkur Svavar Eiríksson
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir Dirk Lubker
Steinunn Eiríksdóttir Þorsteinn Lárusson
Þóra Eiríksdóttir Ómar Guðjónsson
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Jenný Guðlaugsdóttir
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn
27. nóvember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. desember kl. 15.00.
Björn Jónsson Erna Nielsen
Kristín Jónsdóttir
Guðlaugur Jónsson Sigríður Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
AFMÆLI
JULIANNE
MOORE
leikkona er 49
ára.
ÓLÖF NORDAL
hæstaréttar-
lögmaður er
43 ára.