Fréttablaðið - 03.12.2009, Side 56
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
40 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
SENDU SMS SKEYTIÐ
EST T4V Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
VINNINGAR ERU:
TERMINATOR SALVATION Á DVD
TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR,
GOS OG MARGT FLEIRA
Á DVDOG BLU-RAY26. NÓV!
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum.199 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
WWW.BREIK.IS/TERMINATOR
9. HVER VINNUR!
Það brakaði í snjónum undan fótum mínum þar sem ég dró sleðann á eftir
mér snemma morguns og ískalt loftið
fyllti lungun. Á sleðanum sat litla skottan
og var ekki síður ánægð með veðurfarið,
sagðist finna svo góða lykt af snjónum.
Enn þá var aldimmt nema ljósastaurarn-
ir vísuðu okkur veginn. Það voru fáir á
ferli þetta snemma og þeir sem við mætt-
um voru álíka útbúnir og við, á snjóþotu
eða sleða og dúðaðir upp fyrir haus.
Farþegarnir sem sátu sleðana voru glaðir,
borðuðu snjó og köstuðu honum yfir sig.
ÉG FAGNAÐI líka þegar fór að
snjóa um daginn. Þó að kuldinn bíti í
kinnar þá finnst mér snjórinn alltaf
lýsa upp skammdegið.
VIÐ ÁTTUM ekki langa ferð fyrir
höndum mæðgurnar, bara rétt út göt-
una og fyrir hornið. En þótt leiðin
sé stutt getur hún dregist á
langinn á svona morgnum
og við vorum heldur ekk-
ert að flýta okkur. Þrædd-
um okkur gegnum hvern
skafl og skoðuðum spor í
snjónum eftir jólaköttinn
og aðrar kynjaverur.
ÉG VAR HÁLFPARTINN
annars hugar. Ég átti erfitt
með að hrista úr höfði mér
frásögn fólks sem ég sá í sjónvarpinu um
daginn sem hafði misst allt á síðasta ári,
þrátt fyrir að vera reglufólk sem stóð í
skilum með sitt. Ég gæti trúað að þessi
saga ætti við um marga aðra. Nú er það
að gerast það sem ég vissi að meðaljón-
inn sem settur var til hliðar í „björgun-
araðgerðunum“ svokölluðu, er að sligast.
Fólkið sem féll ekki í hóp þeirra „sem
mest þurfa á aðstoð að halda“ á síðasta
ári er komið í þann flokk í dag eftir að
hafa borgað og borgað linnulaust.
ÉG HRISTI þessar hugsanir af mér þegar
litla skottan minnti mig á að við þyrftum
að halda för okkar áfram. Í gluggum hús-
anna við götuna tindruðu jólaljósin sem
hafa verið að tínast upp síðustu daga og
þar fyrir innan mátti sjá fólk tygja sig
til vinnu. Röndóttum flannelnáttfötum
og rjúkandi kaffibollum brá fyrir milli
gardína og einhver söng í sturtunni. Ein-
hverjir höfðu líka tekið daginn snemma
til annars en að drífa sig í vinnuna því
smákökuilmur fyllti skyndilega vitin þar
sem ég þrammaði áfram með sleðann.
Ilminn lagði gegnum frostið og við
fengum vatn í munninn.
VANGAVELTURNAR um bágt ástandið
í þjóðfélaginu viku fyrir notalegri til-
finningu í maganum. Jólin eru að koma.
Veturinn verður kannski ekki svo langur
eftir allt saman.
Ilmandi smákökur
Hver
ykkar er
guðfaðirinn?
Getum við fengið
borð fyrir fimm,
fjóra stóla, einn
barnastól og
servíettur fyrir
fimmtíu.
Hringdi fyrri
ökukennari þinn
sig inn veikan?
Já, hann
þjáist af
einhverju
stressi.
Sjálfur á ég í
vandræðum
með magann.
Láttu mig
þekkja það!
Mamma? Hvað er að? Mér er heitt og illt og líður illa í
þessum bölvaða óléttubúningi.
Vaktirðu
mig til þess
að kvarta?
Nei, ég vakti þig
til þess að þakka
þér fyrir að hafa
gengið í gegnum
þetta fyrir mig.
Hey, sjáið!
Þjónustu-
stúlkurnar
hérna fara
líka í úllen-
dúllendoff!