Fréttablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 58
42 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Í tilefni þess að 200 ár eru
liðin frá fæðingu Chopins
á næsta ári leikur Sinfóníu-
hljómsveit Íslands báða
píanókonserta meistarans
með ungum íslenskum pían-
istum í vetur. Það er Ástríð-
ur Alda Sigurðardóttir sem
ríður á vaðið á tónleikum í
kvöld.
Ástríður Alda Sigurðardóttir flyt-
ur hinn undurfagra og tregafulla
píanókonsert nr. 2, sem raunar var
fyrri til að vera saminn þótt talan
segi annað. Einnig verður fluttur
Coriolan, forleikur og 3. sinfón-
ía Beethovens. Tónleikarnir eru
hluti af Rauðu röðinni og er uppselt
á þá.
Ástríður Alda lauk námi frá Indi-
ana-tónlistarháskólanum 2003 með
hæstu einkunn og hefur síðan komið
víða fram og fengið afar góðar und-
irtektir. Hún hóf nám í píanóleik
sex ára gömul hjá móður sinni, Guð-
rúnu Guðmundsdóttur. Vorið 1999
lauk hún einleikaraprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík undir
handleiðslu Önnu Þorgrímsdótt-
ur. Á árunum 2000-2003 stundaði
hún nám hjá Reiko Neriki við Indi-
ana University – Jacobs School of
Music í Bloomington þar sem hún
lauk Artist Diploma með hæstu
einkunn.
Robert Spano er hjómsveitarstjóri
á tónleikunum. Hann er einn virt-
asti hljómsveitarstjóri Bandaríkj-
anna um þessar mundir. Hann hefur
gegnt stöðu aðalhljómsveitarstjóra
við Sinfóníuhljómsveitina í Atlanta
frá árinu 2001 en var einnig meðal
þeirra sem voru orðaðir við stöðu
aðalstjórnanda hjá Fílharmóníunni í
New York nú nýverið. Þá hefur hann
hlotið fjölda verðlauna fyrir flutn-
ing sinn, meðal annars allnokkurn
fjölda Grammy-verðlauna. Spano
hefur glæsilegan og þróttmikinn stíl
og það er SÍ sannur heiður að bjóða
þennan frábæra tónlistarmann til
Íslands í fyrsta sinn.
Hetjuhljómkviða Beethovens er
sem sniðin að tilþrifamiklum stíl
Spanos. Það var með þessu verki
sem Beethoven setti mark sitt á sin-
fóníska formið svo um munaði. Sin-
fónían er full af spennu og þrótti
enda átti hún upphaflega að vera
tileinkuð sjálfum Napóleóni Bóna-
parte þótt tónskáldinu snerist hugur
þegar ljóst varð að Napóleón yrði
ekki sá talsmaður jafnréttis sem
margir bundu vonir við og afturkall-
aði tileinkunina, en í tónsmíðinni má
glögglega greina þær miklu vonir
sem bundnar voru við Napóleon á
tímabili evrópskrar vitundar.
Síðari tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands sem eru tileinkað-
ir Chopin eru 25. og 26. febrúar, en
þá leikur Víkingur Heiðar Ólafs-
son píanókonsert nr. 1. Nær uppselt
er á fyrri tónleikana og því hefur
verið bætt við aukatónleikum á
föstudeginum 26.
Tónleikarnir í kvöld verða send-
ir út beint á rás 1 Ríkisútvarpsins
og þeir sem náðu sér ekki miða
gera best að lækka ljósin, loka sig
af og skrúfa græjurnar í botn.
pbb@frettabladid.is
Ástríður Alda leikur Chopin
TÓNLIST Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur í kvöld píanókonsert Chopins nr. 2 með
Sinfóníunni.
ath. kl. 21.
Þá er komið að síðustu tónleikum Múlans í ár.
þar kemur fram hljómsveit sem bassaleikar-
inn Ólafur Stolzenwald leiðir með gítaristun-
um Ásgeiri Ásgeirssyni og Ómari Guðjónssyni
ásamt Scott Maclemore sem leikur á tromm-
ur. Þemað er tónlist eftir Kenny Burrell sem
lék með Coltrane og Jimmy Smith. Ásamt
tónlist Burrells hljóma stef Charlies Haden
og manna hans. Tónleikar Múlans fara fram í
Jazzkjallaranum, á Café Cultura, Hverfisgötu
18, gegnt Þjóðleikhúsinu.
Árlegur flutningur Óperukórsins að viðbættum kröftum á
sálumessu Mozarts verður í Langholtskirkju aðfaranótt 5.
desember, það er upp úr miðnætti föstudags 4.
des og er kirkjan opin frá kl. 23.50 föstudags-
kvöld. Auk sinfóníusveitar koma fram söngv-
ararnir Þóra Einarsdóttir sópran, Sesselja
Kristjánsdóttir messósópran, Garðar Thór
Cortes tenór og Kristinn Sigmundsson
bassi. Stjórnandi er Garðar Cortes.
Ástæða þessa sérstæða tónleikatíma, kl.
00.30 aðfaranótt 5. desember, er sú að
verkið er flutt á dánarstundu tónskáldsins,
Mozarts, sem lést laust eftir miðnætti aðfaranótt
5. des. 1791, aðeins 35 ára að aldri. Vitandi að
hverju stefndi, lagði hann síðustu krafta sína í
að reyna að ljúka tónsmíðinni, en tókst ekki,
og eru því lokakaflar verksins samdir af
nemanda hans Syßmayr. Tónleikum Óperu-
kórsins mun ljúka á síðustu tónunum sem
Mozart samdi og skráði.
Það er orðin hefð að Óperukórinn flytji sálumessuna á
dánarstund skáldsins og hefur flutningurinn verið tileinkað-
ur föllnum félögum úr hópi tónlistarmanna, þeim sem lát-
ist hafa á liðnu ári sem virðingarvottur við ævi þeirra og
störf enda er sálumessa flutt. Þeir eru Rúnar Júlíusson,
Andrés Kolbeinsson, Guðmundur Finnbjörnsson,
Ingólfur Guðbrandsson, Árni Elfar, Halldór Vilhelms-
son, Sigurveig Hjaltested, Óskar Ingólfsson, Jónína
Gísladóttir, Sigríður Maggý Magnúsdóttir, Haraldur
Bragason og Helga Ingólfsdóttir.
Áhugamönnum um tónlist gefst einstakt
tækifæri til að sjá og heyra Kristin
Sigmundsson leiða hópa fínna
krafta í flutningi á einstöku
verki og slík tækifæri gefast
ekki oft. Miðasala er á
midi.is og takmarkað er
af sætum í kirkjunni
sem best er að tryggja
sér sæti í tíma. - pbb
Sálumessa Mozarts flutt um nótt
TÓNLIST Kristinn Sigmundsson
syngur í Sálumessu Mozarts
aðfaranótt laugardags.
Tilkynnt var á fullveldisdaginn að
Andri Snær Magnason væri þess
heiðurs aðnjótandi að fá Kairos-
verðlaunin þýsku sem stofnun
Alfreds Toepfer í Hamborg veit-
ir listamönnum sem hafa mótandi
áhrif á samtíð sína.
Verðlaunin verða afhent 28.
febrúar 2010 og nemur verðlauna-
féð 75.000 evrum. Alfred Toep-
fer-stofnunin hefur starfað frá
1931 og er staðsett í heimaborg
Alfreðs, Hamborg, þar sem hann
rak verslun og átti jarðir. Hún
stendur fyrir margháttuðu starfi
og eru Kairos-verðlaunin aðeins
hluti af umfangsmiklu menningar-
starfi sem stofnunin annast. Þessi
verðlaun eru ætluð listamönnum á
sviði myndlistar, tónlistar, arkitekt-
úrs, kvikmyndunar, ljósmyndunar,
bókmennta og fjölmiðlunar. Verð-
launin eru nefnd eftir gríska guð-
inum Kairos sem var guð hinnar
„réttu stundar“ og eru hugsuð sem
hvatningarverðlaun.
Alfred Toepfer-stofnunin hefur
um langt skeið veitt verðlaun á sviði
menningar og lista, og er fólk eins
og Harold Pinter, Pina Bauschs,
Imre Kertész og Ólafur Elíasson
meðal þeirra sem þau hafa hlotið.
Dómnefndin, sem í sitja þekkt-
ir áhrifamenn á sviði menning-
armiðlunar á þýska málsvæðinu,
byggði val sitt meðal annars á því
að höfundi hafi tekist að snúa við
friðsælu sambandi skálda við nátt-
úruna, í stað hyllingar hvetji hann
til virkni. Í áliti hennar segir:
Andri Snær „telur ekki að ljóðlist
og barátta í þágu móður jarðar,
fagurfræðileg skynjun og friðsam-
leg mótmæli útiloki hvert annað,
heldur styðji þau hvert annað“.
Enn fremur að bók hans Drauma-
landið, sem kom út árið 2006, þar
sem hann fjallar um áhrif stóriðju
á íslenska náttúru hafi átt sinn þátt
í valinu.
Í fréttatilkynningu Alfred Toep-
fer-stofnunarinnar segir: „Með
húmor og sannfæringarkrafti ljær
hann óhugmyndafræðilegri en
kraftmikilli grasrótarhreyfingu á
Íslandi rödd sína og sköpunarhæfi-
leika.“ Ekki er ljóst hvaða aðgang
dómnefndin hefur haft að verkum
Andra þó þau hafi farið víða.
Fyrr í vikunni voru tvær bóka
Andra valdar vinsælastar í tengsl-
um við tilnefningar Íslensku bók-
menntaverðlaunanna og stóð valið
milli verka sem tilnefnd höfðu
verið frá upphafi. Þá er Andri nýsn-
úinn heim frá kvikmyndahátíðinni í
Amsterdam þar sem Draumalandið
var sýnt en myndin er nú komin í
alþjóðlega dreifingu. Andri vinn-
ur nú ásamt Þorleifi Arnarssyni að
frágangi texta fyrir leiksýninguna
Eilíf óhamingja sem flutt verður í
Borgarleikhúsinu á komandi ári.
pbb@frettabladid.is
Andri fær peninga í verðlaun
BÓKMENNTIR Andri Snær Magnason
rithöfundur. MYND FRETTABLADID
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Svörtuloft
Arnaldur Indriðason
Loftkastalinn sem hrundi
Stieg Larsson
Jólasyrpa 2009
Walt Disney
Brauð og kökubók Hagkaups
Jói Fel
Snorri
Óskar Guðmundsson
Vigdís
Páll Valsson
Karlsvagninn
Kristín Marja Baldursdóttir
Horfðu á mig
Yrsa Sigurðardóttir
Týnda táknið
Dan Brown
Umsátrið
Styrmir Gunnarsson
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
25.11.09 – 01.12.09